Morgunn - 01.06.1991, Blaðsíða 9
MORGUNN
R1TST| ÓR ARABB
ekki okkar. Fólk hefur frjálsan vilja og velur sína þroskaleið
og hún getur vissulega legið þannig að hún komi hvergi
nálægt dulrænum eða andlegum málum yfirleitt, svo að séð
verði a.m.k.
Sýnum ábyrgð í þessum málum, voðum ekki yfir mismót-
tækilegar sálir án þess að gæta að hvaða fræjum við sáum í
fótspor okkar, hættum að hrópa og kalla, hættum að dásama
og dýrka, höldum áfram að lifa lífinu í eðlilegri blöndu
andlegs og efnislegs lífs, hvoru tveggja er mikilvægt á jarð-
neslcri lífsleið okkar.
Bestum og öruggustum árangri náum við með því að gæta
hófsemi í þessu sem og öðru því sem við erum að fást við.
Eg er hér að fjalla um ýmislegt er lýtur að framkvæmd
kynninga, kennslu og umfjöllun um það sem við köllum
dulræn mál í dag, og þá kannski fyrst og fremst það sem
tengist æðri sJcynjun. Ég er hér að skoða þetta frá svolítið
öðru sjónarmiði en ef til vill tíðkast og er í tísku um þessar
mundir. Ég bið ylckur þó að athuga að með þessari hugleið-
ingu er ég alls eldd að reyna að setjast í eitthvert dómarasæti
um þessi mál, sKkt er mér fjarri, heldur miklu fremur að
vekja til umhugsunar.
Kveikjan að framanrituðu eru einstök tilfelli, atburðir og
umræða sem á fjörur hefur reldð í þessum málum á síðasta
ári og sem hafa valdð mig til umhugsunar, fengið mig til þess
að staldra aðeins við og íhuga hvaða stefnu þessi mál eru
að taka í þjóðfélaginu.
Mér finnst t.d. að stundum hafi einum of fljótt verið hlaup-
ið til með opinberar lcynningar og umfjöllun um erlenda
menn og málefni án þess að trúverðugleild, tilkoma og
bakgrunnur viðkomandi hafi verið kannaður áður. Þeir eru
engu að síður hylltir og þeim hampað til jafns við þá sem á
traustari og þeklctari grunni byggja. Þetta er miður og gæti
orðið til þess að hingað til lands tald að streyma óvandaðir
aðilar á þessum vettvangi er einungis vilja spila á trúgirni
fólks. Verum því á varðbergi, látum ekki bjóða okkur hvað
sem er.
Meö bcstu kveöjum,
Guöjón Baldvinsson.
7