Morgunn - 01.06.1991, Blaðsíða 87
MORGUNN
Útdráttur úr skýrslu
árin hefur htin séð um að dreifa um landið, og reyndar allan
heirrtinn, fólki með verulega ýmisskonar dulræna hæfiJeika,
fólki sem síðan með starfi sínu hefur haft sífelld áhrif á sitt
nánasta umhverfi, viðhaldið og vakið áhuga fólks og aukið
vitneskju þess um tilgang lífsins á jörðinni og áframhald
þess eftir hinn svo kallaða dauða.
Svona er starfið stöðugt í gangi og ekki hvað síst fyrir bein
°g óbein áhrif félaga okkar, ættingja og vina fyrir handan.
Og í mínum augum er ekki nokkur vafi á að með stjórn og
starfsfólki Sálarrannsóknafélags íslands starfar hópur
áhugasams fólks fyrir handan, sem bæði leiðbeinir okkur
°g hjálpar í starfinu. Fyrir því hef ég reyndar orð fleiri en
etns og fleiri en tveggj a rrtiðla, auk þess sem ég tel mig sj álfan
hafa orðið þess varan, oftar en einu sinni.
Eg vil því ekki síður en öðrum þakka þessu fólki fyrir
samstarfið og þátt þess í vexti félagsins.
Nú kann að vakna sú spurning hvort þetta sé ekki dauma-
staða stjórnar sérhvers félags, þ.e. sú sem raunin er á hjá
Sálarrannsóknafélaginu nú, öflug starfsemi og stöðugt og
rnikið innstreymi nýrra félaga ásamt verulegri fjölmiðla
urnfjöllun um dulræn mál. Það skyldi maður nú ætla og það
er það í raun að nokkru leyti. En það varð ég sjálfur að játa
að ég hafði gjarnan kosið að þessi þróun hefði gerst örlítið
haegar. T.d. hefur félagaaukningin á þessu starfsári einu
numið allt að 1.500 einstaklingum. Það segir sig sjálft að slík
aukning kallar á skjót viðbrögð og verulega aukinn tíma og
vmnu stjórnar. Reyndar er það mér mikil ánægja að geta
sagt það nú að sú stjórn sem starfað hefur á þessu starfsári
sem er að líða, var ágætlega undir það búin og hefur því
tekist býsna vel að taka við og sinna þessari miklu aukningu
félagsmanna og áhuga þeirra.
^ð mati stjórnar félagsins var álag á skrifstofu þess orðið
það mikið að ekki væri verjandi lengur að ætla einni niann-
eskju það starf. Tekin var því sú ákvörðun um Ieið og
járhagur félagsins leyfði að ráða til starfa með skrifstofu-
stjóra félagsins Auði Hafsteinsdóttur, Kristínu Sigbjörns-
ðttur, hálfan daginn til að byrja með. Tel ég þetta
uiikilvægan áfanga hjá félaginu, sem muni stuðla að því að
85