Morgunn - 01.06.1991, Blaðsíða 76
Hvað er lífritmi?
MORGUNN
Tilfinningalegt samlyndi
Ef litið er frekar á kortin og nú með tilfinningahringinn í
huga, kemur í lj ós að bæði er uð þið í j ákvæða eða fyrsta stigi
þess hrings.
Bæði finnið þið til einingar, eruð kát, bjartsýn og svarandi.
Ykkur finnst þið bæði vera samvinnuþýð, skapandi og vin-
samleg.
I stuttu máli sagt, þið hafið bæði sömu viðhorf og leitið þess
sama. Ykkur finnst báðum að þið séuð fær um að fást við
hvað það sem ykkur langar til að gera, örugg í þeirri vissu
ykkar að þið séuð bæði sama sinnis.
Ef annað ykkar væri í neikvæðum kafla þá væri lítið sam-
lyndi, sama og ekkert félagslyndi ogí raun engin samvinna
á milli ykkar.
Sá félaginn sem er í jákvæða sviðinu þarf að leggja harðar
að sér til þess að halda sambandinu á einhvers konar réttum
kili vegna þess að hinn aðilinn annað hvort vill það eða
getur ekki.
Andlegt samlyndi
Ef við lítum aftur á kortin og nú með andlega hringinn í
huga, þá muntu sjá að andlegi ritminn hjá þér er í neikvæð-
um hluta.
Þú getur átt erfitt með að einbeita þér, þú ert kannski
gleyminn, skynjun þín er dauf og þig skortir yfirleitt al-
menna skynsemi.
Félagi þinn er aftur á móti í jákvæðum hluta. Skapandi
starf virðist ganga betur, hugmyndir koma á færibandi og
skynjunin er í hámarki. Skilningarvitin eru vakandi og
viðbrögðin mun sneggri. I stuttu máli, þú sérð að þið eruð
í raun ekki andlega samlynd. Samt sem áður, ef þú vilt leggj a
á þig tíma og fyrirhöfn til að skapa málamiðlun þá eru engin
takmörk fyrir því sem þú getur gert.
74