Morgunn - 01.06.1991, Blaðsíða 93
morgunn
Útdráttur úr skýrslu
steinn sýnt mikla hæfileika til heilunar og árangur starfs
hans verið mjög góður. Hann hefur starfað einu sinni í viku,
þ e. á miðvikudagskvöldum og hefur aðsókn til hans farið
hraðvaxandi og mun nú svo komið að fólk þarf að bíða í
yfirleitt þrjár til fjórar vikur til þess að komast að hjá honum.
Það er því ljóst að þörfin á þessu líknarstarfi er mikil og
hefur stjórn félagsins því lagt áherslu á að fá fleiri góða
heilara til starfa sem fyrst.
A vegum félagsins hafa starfað 5 þróunar- og bænahringir
i vetur og það er gaman að geta greint frá því að innan þeirra
hafa komið fram talsvert af verulega hæfileikaríkum mann-
eskjum á ýmsum sviðum þessara mála og m.a. heilun. Vil
eg færa umsjónarmönnum hringanna, þeim Kormáki
Bragasyni, Auði Hafsteinsdóttur og Þórunni Maggý Guð-
wundsdóttur bestu þakkir fyrir afar gott og hvetjandi starf
á þeim vettvangi.
Eins og ég gat um áðan var Hafsteinn í heilunarþjálfun og
skóla hj á Zenu Davies og er hann nú orðinn félagií breskum
heilunarsamtökum, The Christian spiritualist association,
°g starfar því m.a. skv. þeirra reglum og sl<yldum, sem eru
afar strangar.
Zena hefur á sama hátt tekið í sérstakt nám 4 aðila úr
fyrrgreindum þróunarhringjum og erum við að vona að
það fólk geti komið til starfa á næsta starfsári. Sumt af þessu
fólki situr reyndar nú þegar sem stuðningsaðilar á fundum
hjá Hafsteini, auk þess sem vel gengur með þjálfun vænt-
anlegra skyggnilýsingamiðla.
Það er því óhætt að segja að verulega bjart sé yfir þessum
þætti starfseminnar og ljóst að félagið á Zenu Davies mikið
að þakka fyrir velvilja hennar og ósérhlífni við að aðstoða
okkur í þessu máli.
Einu sinni í mánuði voru einnig hafðar svo kallaðar heil-
onartilraunir á vegum félagsins, þar sem fólk úr þróunar-
hringum gat þjálfað sig og kynnst heilun. Umsjón með
þessum tilraunum höfðu að mestu þær Þórunn Maggý og
Auður Hafsteinsdóttir og færi ég þeim hér með bestu þakkir
fyrir gott starf að því máli.