Viðar - 01.01.1939, Page 99
Viðar]
ÆSKAN OG UPPELDIÐ
93
Aldur .............
Aldur eftir hæð . .. .
Aldur eftir þyngd. ..
11,4 X 2 = 22,8
15.2
15.3
53,3 : 4= 13,3
Þessar tölur eru lagðar saman og deilt með 4, og kemur þá
út þroskaldur drengsins, 13,3 ár.
Þegar skólamót eru haldin, er sjálfsagt, að skólarnir ráði
tilhögun þeirra, svo að þau séu í fullu samræmi við upp-
eldisstefnu þeirra.
Ekki má þó líta á íþróttir eins og töfralyf, allra meina bót,
líkt og Kínalífselixír eða Voltakross, þar sem öllu sé borgið,
ef skólarnir búi vel að þeim. Heimili barnanna eiga sína
hlutdeild í uppeldi þeirra, og þau verða að uppfylla sínar
skyldur, ef vel á að fara.
Heima hjá sér þurfa börn og unglingar að njóta hvíldar
og svefns. Umfram allt þarf svefninn að vera nægur. Einn-
ig þurfa heimilin að sjá um það, að börnin séu nóg úti og
hafi nægilegt og fjölbreytt fæði, og allur aðbúnaður sé
góður.
Til þess að gera mönnum ljóst, hvaða þýðingu heimilin
hafa fyrir þroska barnanna, er ekki úr vegi að minnast á
mælingar, er fyrrnefndur læknir, Carl Schiötz, gerði í Oslo.
í barnaskólunum var meðalhæð 14 ára drengja 148,2 cm.
og meðalþyngd 38,5 kg.
í tveim unglingaskólum, þar sem nemendur voru frá ó-
brotnum, góðum heimilum, var meðalhæð 152,3 cm. og
meðalþyngd 40,1 kg.
í tveim unglingaskólum, sem sóttir voru af nemendum
frá efnaðasta borgarhlutanum, var meðaihæð 153,3 cm.
og meðalþyngd 44,4 kg.
Samkvæmt mælingum hans var líkamsþroski þeirra barna
mestur, sem áttu heima í beztu húsakynnunum og minnst-
ur í lélegustu íbúðunum. Enskur læknir prófaði gáfur barna
á sama aldri i tveimur skólum. í öðrum voru börn frá fá-
tælcum heimilum, en í hinum frá sæmilega efnuðum.