Viðar - 01.01.1939, Page 105
Viðar]
BORGFIRZK ÆSKA FYRIR SJÖTÍU ÁRUM
99
staklingar, annaðhvort með aðstoð sóknarprestsins eða af
eiginn rammleik, gætu lært skrift og reikning, þá var það
meiri hluti pilta og næstum allar stúlkur, er komust lítið
á veg í þeim listum, vegna þess, að lítið eða ekkert var
fyrir hendi, sem til þess þurfti hvorki kennari, húsrúm,
pappír, blek né kennslubækur. En það var engu líkara en
þessi miklu vanefni gjörðu stöku unglinga ástundunar-
samari við það að komast eitthvað áfram á eigin spýtur,
en þótt allt hefði verið fyrir hendi, bæði tæki og tilsögn.
Við skriftarlærdóminn var allt nýtt og'notað. Skrifað var
á fjalir með krít, á svell og snjóskafla með broddstöfum og
með fingri á myglaða fjósrafta og hélaðar rúður, ef ekki
var annað betra fyrir hendi. Varð það líka að ávana fyrir
sumum að vera síklórandi og krotandi á allt, sem í náðist.
Allir vissu, að fögur rithönd jók álit ungra manna í augum
kvenna, og varð það m. a. nokkur hvatning til þess að æfa
þessa list. Og betra var hjá sjálfum sér að taka, en sinn
bróður að biðja, ef menn vildu hefja bónorð bréflega. Samt
vissi ég um menn, sem leituðu á náðir annarra um hjálp í
þessum sökum. Gat það verið gott úr því, sem gjöra var,
þegar erindið gekk að óskum. En á miklu stóð að fá trúan
lesara, þegar svarið kom bréflega og biðillinn var ólæs á
skrift. En þess vissi ég dæmi, að gjörvulegir menn og sæmi-
lega greindir gátu þar ekki bjargazt á eigin spýtur.
Á flestum heimilum voru verkefni í ýmsum myndum,
bæði úti og inni, sem börnum og unglingum var lagt á
herðar að rækja með trúmennsku. Fullorðna fólkið var sí-
vinnandi vetur, sumar, vor og haust. Gaf það börnum góða
fyrirmynd og vakti undir eins athygli þeirra á ýmsum
vinnubrögðum, sem þau þurftu að nema til þess að geta
gengið í spor feðra og mæðra. Fæstar sveitastúlkur hugs-
uðu þá hærra en það að verða óbreyttar bændakonur í
sveit og búa við lík æfikjör og mæður þeirra höfðu gjört, því
að fáa var þá farið að dreyma fyrir þeim miklu umbótum,
sem í vændum voru. Ýmis vinnutæki höfðu þá að vísu
fengið nokkra búningsbót, svo sem vefstólar, rokkar og
7*