Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 158
152
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
[Viðar
húsið sett undir eitt þak. Eftir húsinu endilöngu að norðanverðu
er gangur með þvottaskálum og salerni, en móti suðri eru átta her-
bergi. Hlaðan og fjósið voru lengd um fullan helming. Hlaðan mun
taka 10—1200 hestburöi og fjósið allt að 40 kýr. Við endann á því
eru tvær votheyshlöður, sem taka um 200 hestburði báðar.
Húsagarðurinn þarna er í þremur pöllum. Öflugur vegur hefur verið
lagður milli skólans og bæjarins' og „Örkin“ jöfnuð við jörðu. Þá
hefur móinn sunnan við Birkihlíð verið plægður og herfaður og
nokkuð meira nýtt land brotið, samtals um 1% ha. Túnið er orðið
fullir 20 ha. að stærð, að mestu véltækt. Hlaðnir hafa verið tveir
flóðgarðar alls og áveita undirbúin á ýmsan hátt. Þá er nokk-
uð á veg komin bygging nýs gróðurhúss og loforð fengið fyrir frysti-
vélum. Þetta á þó nokkuð langt í land ennþá. Frystihúsbygging og
gróðurhúsa er bæði vandasöm og dýr.
Ég vona, að Laugvetningum sé nokkur ánægja að því að fylgjast
með því, sem hér gerist, ekki eingöngu sjálfri skólastarfseminni
heldur einnig búskaparframkvæmdum, þar sem öll slík starfsemi er
í beinu sambandi við það markmið, að fegra staðinn og tengja skól-
ann og sveitabúskap sem traustustum böndum.
Ýmislegt fleira en hér er nefnt má segja, að afráðið sé að fram-
kvæma, svo sem byggingu útisundlaugar og húsmæðraskóla, lengra
framundan er svo íþróttavöllur og leikfimihús, kennarabústaðir
o. fl. o. fl.
Gjafir.
Jónas Jónsson alþm. gaf skólanum kappróðrarbátsári, fyrirmynd
til að smíða eftir. Einnig gaf hann skólanum handsláttuvél. Með
henni eru slegnir grasreitirnir kringum skólann. Þannig er hægt að
halda þeim snyrtilegum.
Ríkharður Jónsson listamaður gaf skólanum borðfánastöng. Stang-
arfóturinn er í vörðulíki úr útskornu, íslenzku birki, sem í rauninni
heitir ilmbjörk (betula odorata).
Undir vörðunni eru þrír stallar, sá neðsti sléttur, 12 sm. að þver-
máli, næsti stallur nokkuð minni og sá efsti minnstur. Á efri stallana
er skorin með upphleyptu letri svohljóðandi vísa:
Varða, varða, vísaðu mér leið,
vísaðu mér fram hin réttu göng.
Öræfin þau eru hál og breið,
ungum manni hættuleg og ströng.
Á framhlið vörðunnar er skorinn upphleyptur skjöldur, og er Laugar-
vatnsmerkið rist á hann. Ofan við skjöldinn stendur leiðarsteinn