Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 184
178
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
LViðar
Æfingar í lestri bundins og óbundins máls í lesbókum mag. Guðna
Jónssonar og próf. Sigurðar Nordals.
Likamsœfingum, sundi, leikfimi og glímu. Æfingar pilta, 5L4 st. á
viku auk útivistar með leikjum, skíða- og skautaferðum og tíma til
gufubaðs á hverjum laugardegi. Leikfimi og sund stúlkna, 4>/2st. á
viku, auk sama tima og piltar höfðu til útivista og gufubaðs.
Eldri deild.
Málfrœði, 1 st. á viku. Bók Bj. Guðfinnssonar lesin og miklu bætt
við viðvíkjandi setningafræðinni.
Réttritun. Ritreglur Preysteins Gunnarssonar hafðar til stuðnings.
Ritæfingar, 1. st. á viku. Heimastíll vikulega og ein stund á viku til
að yfirfara hann með nemendum.
Reikningur. Bók Ól. Dan. 4 st. á viku. Farið yfir jöfnur, flatar- og
rúmmálsfræði og mörg dæmi reiknuð utan bókarinnar. Auk þess ein
st. á viku til bókfærsluæfinga.
Danska, 3 st. á viku. Bækur Jóns Ófeigssonar iesnar. II. og III. hefti
og málfræði I. h. vandlega yfirfarin. Ritæfingar vikulega.
Enska, 3 st. á viku. Lokið við Geirsbók. Heimastílar vikulega og rit
og talæfingar í tímum.
Handavinna. Piltar bundu inn bækur, 3% st. á viku. Voru bundnar
um 100 bækur. Handavinna stúlkna var sameiginleg fyrir báðar deildir,
12 st. á viku.
Yngri deild.
Málfrœði Bj. Guðfinnssonar lesin að bls. 64, og margar æfingar
utan bókarinnar og í hljóðfræði og orðmyndun. Ritæfingar vikulega og
ein stund til að yfirfara stíla.
Reikningur, 4 st. á viku. Bók Ól. Dan. lærð út að jöfnum, Mörgum
dæmum bætt við.
Danska. Sömu námsbækur og í e. d., en aðallega lesið I. og II. hefti.
Skriflegar æfingar í tímum og heima.
Félagslif.
Meginþáttur í lífi og starfi hvers heimavistarskóla er félagslíf
nemendanna, bæði í sjálfu skólaheimilinu og einstökum félögum, sem
þeir hafa með höndum og bera uppi bæði stjálfstætt og með stuðningi
og leiðbeiningum kennaranna.
Hér starfar U. M. F. Gróandi, er hefur fundi vikulega og gefur
út blað, sem lesið er á öðrum hvorum fundi. Allir nemendur voru
félagar þess og einnig i B. F. S. Fundir voru oft fjörugir og kapp í
umræðum, er þá stóðu nokkuð fram eftir kvöldi.