Morgunblaðið - 06.09.2009, Síða 1
Opið til 13–18
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að hafni
Bretar og Hollendingar nýsamþykktum lögum um Icesave
vegna þeirra fyrirvara sem Alþingi setti inn í lögin um ríkis-
ábyrgð sé komin upp ný og grafalvarleg staða og „málið í al-
gjörri upplausn“.
„Ég held að þá væri komin upp staða sem við myndum ekki
ráða við án einhvers konar utanaðkomandi stuðnings,“ segir
Steingrímur í samtali við Morgunblaðið í dag.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins kom ekkert það fram
á fundi embættismanna landanna þriggja í Haag í Hollandi á
miðvikudag sem skýrði hver afstaða Breta og Hollendinga væri
til málsins eins og það hefði verið afgreitt frá Alþingi.
Fundurinn hefði fyrst og fremst verið til þess að upplýsa og
svara spurningum sem upp komu.
Samkvæmt sömu heimildum hafa breskir og hollenskir
embættismenn gert kröfu til þess að ekkert verði upplýst um
málið að svo stöddu. Stjórnvöld í hvoru landi fyrir sig þurfi ein-
hverja daga til þess að mynda sér skoðanir og samræma.
Morgunblaðið hefur upplýsingar um að misjafnar áherslur
séu í mismunandi ráðuneytum í hvoru landi um sig. Þannig mun
vera meiri harka í garð Íslendinga í breska fjármálaráðuneytinu
en forsætisráðuneytinu og hjá Hollendingum mun fjármálaráðu-
neytið vera Íslendingum hliðhollara en forsætisráðuneytið.
Fullvíst er talið að hafni Bretar og Hollendingar einhverjum
tilteknum atriðum í fyrirvörunum verði reynt að leysa slík mál á
fundum ráðherra landanna, hvort sem það verða fundir fjár-
málaráðherra eða forsætisráðherra. agnes@mbl.is »12
UPPLAUSN HÉR
VERÐI ICESAVE-
LÖGUM HAFNAÐ
Einn maður Steingrímur J. Sigfússon segir að ráðherrann Steingrímur og stjórnarandstöðuþingmaðurinn Steingrímur séu einn og sami maðurinn. „Sami sveitastrákurinn, sem bara lenti í pólitík.“
Morgunblaðið/Kristinn
6. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
241. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
STUTT Í HÚMORINN
TENGSL: HILDUR EIR OG JÓNA HRÖNN
MANSTU
EFTIR
búkslætt-
inum? ÓDÝRT
Leik-
stjórar
lækka
seglin
KATRÍN
Í BÍÓ
Með því að halda Jaycee Dugard í ein-
angrun í 18 ár eftir að hann rændi
henni og hafði gert hana háða sér um
allt er talið að bandaríski barnsræn-
inginn Phillip Garrido hafi haft hana
algerlega á valdi sínu og ráðskast með
hana eins og ambátt.
Þetta er talin helsta skýringin á því
að Jaycee Dugard, sem er nú orðin 29
ára, reyndi ekki að sleppa eða biðja
um hjálp fyrr þótt oft hafi gefist tæki-
færi til þess, að mati sálfræðinga sem
hafa rannsakað barnsrán í Bandaríkj-
unum.
Stúlkan gerð
að ambátt
SUNNUDAGUR
EPLI OG APPELSÍNUR?»4 BREYTTI BARNINU Í ÞRÆL»6 „LEIÐRÉTTINGAR - NAUÐGANIR“»8
Hópnauðgunin og morðið á lesbísku
knattspyrnukonunni Eudy Simelane
hefur vakið athygli langt út fyrir heima-
land hennar, Suður-Afríku.
Nauðganir eru óvíða algengari.
Lesbíur eru í sérstakri
hættu, þar sem
sumir trúa að
hægt sé að
„lækna“ þær
af kynhneigð
sinni með of-
beldi.
Verður réttlæt-
inu fullnægt?
Barátta Eudy
Simelane er minnst.
Sala Orkuveitu
Reykjavíkur á hlut
félagsins í HS Orku
greiðir fyrir fjár-
mögnun félagsins
á frekari uppbygg-
ingu á Hengils-
svæðinu, að sögn
Hjörleifs B. Kvaran, forstjóra OR. Það
léttir óvissu af rekstrinum.
Tilraunaboranir á Hengilssvæðinu
hafa gengið vel og nú er beðið eftir láni
frá Evrópubankanum upp á 27 millj-
arða, sem lofað var í september í fyrra.
Greiðir fyrir
fjármögnun
Umdeild HS Orka.