Morgunblaðið - 06.09.2009, Page 10

Morgunblaðið - 06.09.2009, Page 10
10 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 HAUST 5 Móseldalurinn er ægifagur, haustlitirnir skarta sínu fegursta og vínuppskerutíminn er hafinn. Flogið verður til Frankfurt og gist í 5 nætur hjá vínbændum í Leiwen við ána Mósel. Þaðan verður farið í áhugaverðar skoðunarferðir, t.d. til Bernkastel og Cochem, sem þykir einn fallegasti bær við ána. Þá verður komið til Idar-Oberstein sem frægur er fyrir skartgripagerð og hellakirkjuna frægu sem byggð er inni í kletti. Einnig verður komið til elstu borgar Þýskalands, Trier, sem hefur að geyma miklar fornminjar frá tímum Rómverja. Síðustu 2 næturnar gistum við á góðu hóteli í Bingen við Rín, en þaðan er upplagt að fara með ferju til Rüdesheim eða til fallegu borgarinnar Koblenz þar sem árnar Mósel og Rín mætast. Fararstjóri: Guðbjörn Árnason Verð: 132.400 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, gisting, allar skoðunarferðir með rútu, hálft fæði og íslensk fararstjórn. 9. - 16. október Sp ör eh f. s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Vínbændur &kastalar Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar BAKKABRÆÐUR, sem samkvæmt þjóðsögunni bjuggu eitt sinn á Bakka í Svarfaðardal, hétu eins og alþjóð veit Gísli, Eiríkur og Helgi. Þeir voru orðlagðir fyrir heimsku og heimskupör þeirra mjög í frásögur færð. Þeir reyndu til dæmis að bera inn í gluggalaus hýbýli sín sólskin í húfum sínum. Aðrir Bakkabræður, sem ekki eru þjóðsagna- persónur, heita Ágúst og Lýður Guðmundssynir. Þeir voru stærstu eigendur Exista, stærstu hlut- hafarnir í Kaupþingi og stofnendur og eigendur Bakkavarar og hafa sem slíkir getað skammtað sjálfum sér lánsfé að vild úr Kaupþingi, gegn litlum og/eða ótryggum veðum. Þeir eru ekki orð- lagðir fyrir heimsku, heldur bíræfni, sem sýnir sig í mörgum, og flestum ógeðfelldum, myndum. Bíræfni þeirra felst í endalausum tilraunum þeirra til þess að koma eignum, sem þeir ekki eiga, undan og því að reyna að ná yfirráðum í fé- lögum án þess að borga það sem þeim ber að borga. Nýlegustu dæmin eru tilraunir Bakka- bræðra nútímans til þess að skjóta 40% eign- arhlut Exista í Bakkavör Group inn í sérstakt eignarhaldsfélag ELL 182, eins og DV greindi frá í síðustu viku, og að hafa reynt að hrifsa til sín meirihlutaeign í Exista í fyrrahaust, með því að auka hlutafé í félaginu um 50 milljarða króna, en greiða aðeins 2 aura fyrir hvern aukinn hlut í stað einnar krónu, sem er lögleysa, eins og Fyrir- tækjaskrá hefur úrskurðað um. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, var kokhraustur á aðalfundi Exista þann 26. ágúst sl. þar sem hann sagði m.a. að yfirtökutilboð BBR ehf. og samþykki annarra hluthafa Exista við til- boðinu héldi þrátt fyrir að Fyrirtækjaskrá hefði úrskurðað að hlutafjáraukning í Exista hefði verið ólögmæt. BBR er í eigu Lýðs og Ágústs bróður hans. „Okkar mat er að þetta hafi verið ólögmæt hlutafjáraukning og hana hafi borið að færa til baka,“ segir Skúli Jónsson hjá Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Stofnunin hefur þegar fært hlutaféð til baka, í samræmi við úrskurð sinn, og er það núna skráð eins og það var áður en tilkynnt var um hlutafjáraukninguna. En þetta breytir nú litlu í huga hins kokhrausta stjórnarformanns Exista, því hann segir að yf- irtökutilboðið haldi, án þess að rökstyðja það frekar. Hann er eiginlega eins og kenjóttur krakki, sem notar röksemdina „Af því bara“ þegar hann kemst í rökþrot. Lagalega séð átti BBR ehf. að greiða eina krónu fyrir hvern hlut í yfirtökutilboðinu, en ekki tvo aura. TVO AURA! Hugsið ykk- ur frekjuna, yfirganginn og græðgina! Hvenær ætla þessir menn að læra að fyrir margt löngu hafa þeir ofboðið almenningi þessa lands, sem situr nú uppi með afleiðing- arnar af græðgisvæðingu þeirra og annarra og þarf að axla að miklum hluta þær óheyrilegu skulda- byrðar sem þeir rétti- lega hefðu átt að axla. Þetta ákváðu þeir Bakkabræður, Lýð- ur og Ágúst Guð- mundssynir, í desember sl. og Fyrirtækja- skrá úrskurð- aði fyrr í sumar að um ólög- mæta hlutafjáraukningu hefði verið að ræða. en þeir gefa ekkert fyrir það, því þeir vita svo miklu betur. Alveg eins og þeir vita að þeir eiga að fá uppgert við Kaupþing samkvæmt evruskráningu Seðlabanka Evrópu í haust, ekki samkvæmt skráningu evru í Seðlabanka Íslands. Svo toppaði Lýður sjálfan sig í ósvífni, í ræðu sinni, þegar hann bað hluthafa afsökunar og þótt- ist þar með vera að axla hluta ábyrgðarinnar á því hvernig staða Exista var orðin. Hann var að biðja sömu hluthafa afsökunar og hann og bróðir hans höfðu rænt með hlutafjáraukningunni. Mér býður í grun að Lýður hafi ofboðið lýðnum öllum með þessari svokölluðu afsökunarbeiðni. Á einum punkti í ræðu Lýðs fann ég þó til mik- illar samkenndar og samstöðu með honum, en það var þegar hann lét „samfélag hugleysingja“ í bloggheimum fá það óþvegið: „Ég ætla ekki að elta ólar við það samfélag hugleysingja sem stór hluti bloggheima virðist orðinn. Sóðakjaftur þeirra sem þar skýla sér undir dulnefnum á samt sinn þátt í því andrúmslofti sem daglega er kynt undir og því miður leika nokkrir oddvitar umræð- unnar í netheimum þar talsvert hlutverk líka,“ sagði Lýður orðrétt. Þetta eru orð að sönnu hjá Lýð. Bleyður, sem fá útrás fyrir lágar hvatir, róg, óhróður, mannorðs- morð og hvers konar skepnuskap í skjóli nafn- leysis eru vitanlega ekki svaraverðar. Þær dæma sig sjálfar af orðum sínum og vita sem er, að með því að koma fram undir nafni gætu þær ekki verið í þeim drullukökuleik, sem þær virðast njóta svo mjög í ábyrgðarlausu skjóli nafnleysisins. agnes@mbl.is Agnes segir… Bíræfnir Bakkabræður Bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi báru sól- skin í húfum sínum inn í dimma húsið sitt. Bakkabræður nútímans Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru ekki orðlagðir fyrir heimsku, heldur fyrir ótrúlega bíræfni og ósvífni, þegar kemur að því að raka til sín eignum, hvort sem fyrir þær hefur verið greitt eða ekki. Stundum eru skynsamlegar til-lögur ekki líklegar til að fá brautargengi vegna þess að rang- ur maður ber þær fram. Þetta átti mjög sennilega við um málflutning Björns Vals Gíslasonar, varafor- manns fjárlaganefndar, í hádegis- fréttum Ríkisútvarpsins á fimmtu- dag, þegar hann lagði til að sjómannaafslátturinn yrði afnum- inn.     Á meðan 62þingsystkin Björns Vals sátu á sumarþingi í allt sumar og lögðu mörg hver nótt við nýtan dag til þess að ná lendingu í hinu mjög svo umdeilda Ice- save-máli, var Björn Valur, vara- formaður þingnefndarinnar, sem mest mæddi á í málinu, úti á sjó. Þar var hann sem skipstjóri Kleifarbergsins, og hefur vænt- anlega bæði notið skipstjóralauna og sjómannaafsláttar.     Er ekki tvískinnungur í því hjáþingmanninum að gera það að sinni fyrstu tillögu eftir að hann hefur hoppað í land, að afnema sjómannaafsláttinn?     Svo allrar sanngirni sé gætt, þálagði þingmaðurinn ekki til að sjómannaafslátturinn yrði aflagður með öllu, heldur að útgerðin tæki að sér að greiða hann. Enda er sjómannaafslátturinn í raun ekki annað en niðurgreiðsla skattgreið- enda á launakostnaði útgerðarinn- ar.     Björn Valur veit mætavel, einsog allir sjómenn, núverandi og fyrrverandi, að ítrekað hafa stjórnvöld reynt að koma því til leiðar að sú leið sem hann leggur til yrði farin, en útgerðin hefur jafnharðan þvertekið fyrir að svo yrði. Það sama hefur gerst nú. Hvað gerir Björn Valur þá? Björn Valur Gíslason Rétt tillaga, rangur maður Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 8 skúrir Lúxemborg 10 skýjað Algarve 20 heiðskírt Bolungarvík 7 skýjað Brussel 12 léttskýjað Madríd 16 heiðskírt Akureyri 2 heiðskírt Dublin 11 skýjað Barcelona 21 skýjað Egilsstaðir 5 alskýjað Glasgow 12 skýjað Mallorca 23 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 7 rigning London 12 heiðskírt Róm 24 léttskýjað Nuuk 6 alskýjað París 10 heiðskírt Aþena 25 heiðskírt Þórshöfn 10 skýjað Amsterdam 14 skúrir Winnipeg 17 heiðskírt Ósló 11 heiðskírt Hamborg 13 skúrir Montreal 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 15 skúrir Berlín 12 skúrir New York 23 alskýjað Stokkhólmur 14 heiðskírt Vín 13 skúrir Chicago 17 léttskýjað Helsinki 15 skýjað Moskva 11 þoka Orlando 24 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STAKSTEINAR VEÐUR 6. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 1.12 0,3 7.13 3,9 13.22 0,4 19.26 4,0 6:26 20:27 ÍSAFJÖRÐUR 3.20 0,2 9.09 2,1 15.26 0,3 21.19 2,2 6:25 20:37 SIGLUFJÖRÐUR 5.38 0,2 11.52 1,2 17.40 0,2 6:08 20:21 DJÚPIVOGUR 4.27 2,1 10.36 0,4 16.42 2,1 22.50 0,4 5:54 19:58 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á mánudag Austlæg eða breytileg átt, víða 5-10 m/s og rigning eða skúrir. Hiti 7 til 12 stig. Á þriðjudag Norðan- og norðvestan 8-13 m/s og víða rigning eða skúrir, en hægara og bjart SA-lands. Hiti 6 til 11 stig. Á miðvikudag og fimmtudag Suðvestlæg átt með skúrum, en bjart NA-lands. Á föstudag Breytileg átt og úrkomulítið, en kólnar heldur. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hægur vindur, 1-7 m/s. Rigning með köflum en þurrt á N- og A-lands framan af degi. Hiti 7 til 14 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.