Morgunblaðið - 06.09.2009, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
Eftir Stefán Snævarr
N
óbelshagfræðingurinn
Joseph Stiglitz gistir
Ísland þessa dagana
og er flestum aufúsu-
gestur. Hann er
Bandaríkjamaður af gyðingaættum
og var í heiminn borinn á því herr-
ans ári 1943. Hann hefur lagt gjörva
hönd á margt, unnið hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, skrifað alþýðleg
fræðirit, meðal annars um hnatt-
væðinguna, stundað rannsóknir á
sviði upplýsingahagfræði o.s.frv.
Þær rannsóknir veittu honum Nób-
elsverðlaunin árið 2001.
Upplýsingar og hagfræði
Á Íslandi er vart messufært meðal
hagfræðinga nema hinum „frjálsa“
markaði sé sungið lof og prís. En úti
í hinum stóra heimi er fjöldi hag-
fræðinga sem ekki tekur undir þann
rammfalska söng, Stiglitz er einn
þeirra. Hann tilheyrir þeim fríða
flokki vísindamanna sem gagnrýna
frjálshyggjuna og það af talsverðri
hind. Það sé engin tilviljun að hönd
markaðarins sé ósýnileg, hún sé
nefnilega ekki til!
Frjáls markaður hafi að forsendu
að allir hafi jafnmikla þekkingu, jafn
góða yfirsýn yfir alla kosti. En því sé
ekki að heilsa í hinum napra veru-
leika handan frjálshyggjukenning-
anna hátimbruðu. Þekking markaðs-
gerenda sé einatt ósamhverf
(asymmetrísk), allir eru jafnir en
sumir eru jafnari en aðrir þegar
markaðsþekking er annars vegar.
Yfirleitt eigi „the usual suspects“,
þ.e. hinir ríku og voldugu, greiðari
aðgang að markaðsþekkingu
en sauðsvartur almúg-
inn, það er munur á
Jóni og séra Jóni á
markaðnum helga.
Þetta er einn meg-
inþátturinn í upplýsinga-
hagfræði Stiglitz en
kjarni hennar er nákvæm
greining á upplýsingum
sem gerendur í efnahags-
lífi hafi. Þær séu enda
burðarás hvers kyns efna-
hagsstarfsemi.
Skammarstrik AGS
Stiglitz telur að hagfræ-
ðikreddur frjálshyggjunnar
eigi sök á ýmsu sem miður
fer í hnattvæðingu samtímans. Hann
er ómyrkur í máli um markaðs-
strangtrúarstefnu AGS. Sjóðurinn
gefi sér fyrirfram að frjáls markaður
sé ævinlega lausnin á öllum efna-
hagsvanda. Starfsmenn hans skilji
ekki að frjáls markaður virki ekki al-
mennilega við skilyrði þar sem upp-
lýsingar manna eru takmarkaðar.
Það þýðir einfaldlega að hann muni
aldrei virka almennilega því útilokað
má telja að menn verði alfróðir.
Til að gera illt verra nenni sjóðs-
menn ekki að kynna sér sérstakar
aðstæður í einstökum ríkjum. Þess
séu dæmi að þeir hafi ljósritað
skýrslur um land X og yfirfært yfir á
land Y án þess að vita neitt um Y.
Þessi kreddutrú leiddi til þess að
sjóðurinn þvingaði Austur-Asíuríkin
til opinbers sparnaðar sem lausn á
kreppu áranna rétt fyrir aldamót.
En sjóðsmönnum yfirsást sú stað-
reynd að gróði var á fjárlögum í
þessum löndum og að rætur krepp-
unnar voru ekki hjá ríkinu heldur
einkafyrirtækjum. Ábyrgðarlaus
einkafyrirtæki höfðu ástundað fjár-
glæfrastefnu og spekúlasjónir, ekki
síst í fasteignum, að sögn Stiglitz
(segir orðasambandið „ábyrgðarlaus
einkafyrirtæki“ Íslendingum eitt-
hvað?)
Ekki fær stefna sjóðsins í mál-
efnum Rússlands hærri einkunn hjá
nóbelsverðlaunahafanum. Hann seg-
ir að ráðgjafar sjóðsins hafi skipst í
tvær fylkingar, frjálshyggjumenn
vildu „sjokkterapíu“, sem þýðir
„einkavæðingu strax í gær“. Þeir
skynsömu (Krugman og Stiglitz)
vildu fara hægar í sakirnar, leggja
grundvöll að réttarríki og skapa
skattakerfi. Án almennilegra réttar-
og skattakerfa virki markaðurinn
ekki.
Eymd frjálshyggjunnar
Frjálshyggjumenn telja líka að
þróunaraðstoð sé af hinu illa en því
andæfir Stiglitz kröftuglega. Sumar
þjóðir búa við svo veikburða efna-
hagskerfi að þær geta ekki tekið
þátt í alþjóðaviðskiptum. Til að gera
þeim kleift að verða „alvöru“ mark-
aðsgerendur verður að veita þeim
aðstoð.
Enn fremur segir Stiglitz að mola-
kenning (trickle down theory) frjáls-
hyggjunnar standist ekki. Mola-
kenningarsinnar halda því fram að
hinir ríku spari meira en hinir fá-
tæku, sparnaðinum sé fjárfest og all-
ir hagnist á fjárfestingunum. En í
Austur-Asíuríkjunum er mikill
sparnaður þótt tekjum sé frekar
jafnt dreift. Þessi ríki hafi reynt að
koma í veg fyrir mikinn ójöfnuð og
jafnframt auka hagvöxt. Þeim tókst
það, falsspámönnum molakenning-
arinnar til mikillar hrellingar.
Ekki eigi falsspámennirnir auð-
veldara með að skýra þá staðreynd
að lífskjör almennings versnuðu á
blómaskeiði frjálshyggjunnar í Bret-
landi Viktoríutímans. Eða geta
molakenningarsinnar skýrt hvers
vegna kjör hinna verst stæðu vest-
anhafs versnuðu á níunda áratug
síðustu aldar, áratug mikillar
markaðsvæðingar? Eftir þrjátíu ára
Stiglitz og eymd
Hagfræðingurinn Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz, gagnrýnandi frjálshyggju.
Bækur Nokkur rita Stiglitz um hagfræði.
– meira fyrir áskrifendur
Fjármál
heimilanna
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Það eru erfiðir tímar og þrengir að
fjárhag landsmanna. Margir standa
ráðþrota frammi fyrir vaxandi skuldum
og atvinnuleysi á meðan aðrir vita ekki
hvað gera skal við sparnað og fjár-
festingar til að forða þeim frá frekara
tjóni. Hvernig er staðan og hvað er til
ráða svo fólkið í landinu komist hólpið
út úr kreppunni?
Viðskiptablað Morgunblaðsins
skoðar fjármál heimilanna
í veglegu sérblaði 10. september
næstkomandi
• Hvaða úrræði standa venjulegum heimilum til boða
til að rétta úr kútnum?
• Hvaða leiðir eru færar til að spara í útgjöldum
heimilisins án þess að draga úr lífsgæðum?
• Kunna Íslendingar að fara með peninga
eða kunna þeir ekki að varast gildrurnar?
• Hvaða úrræði eru í boði fyrir þá sem vilja geyma
spariféð sitt?
• Hvaða kostir og gallar eru við það
að lengja í lánum?
Spennandi úttekt sem á erindi
við alla landsmenn.
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
569 1134 - 692 1010 - sigridurh@mbl.is
Auglýsendur!
Auglýsingapantanir eru í síma 569 1134
eða sigridurh@mbl.is til 7. september.