Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 34
34 Svipmynd MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Texti: Freysteinn Jóhannsson freysteinn@mbl.is Ljósmyndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is K omdu sæll, ég heiti Björn Sigurðsson, kall- aður Bangsi,“ segir hann þegar Árni Sæ- berg ljósmyndari kynnir okkur, og hand- takið er þykkt. Svo heilsar hann tíkinni með virðingu. Þau Svarthvít þekkjast frá fyrri ferðum þeirra Árna til Hvamms- tanga. „Ég er nú búinn að vera hér á sömu torfunni alla tíð, fæddur í byrjun árs 1935 og því kominn á þann aldur að það tekur því ekki fyrir karlinn að flytja.“ Hann er fæddur í Syðsta-Hvammi fyrir ofan þorpið, þar sem nú er tjaldstæði og unaðsreitur til útivistar, Kirkjuhvammskirkja og Myllan sem Bangsi smíðaði upp við annan mann. Foreldrar hans voru Sigurður Davíðsson kaupmaður og Ósk Jónsdóttir, seinni kona Sigurðar. „Afi minn bjó á Ánastöðum. 1882 rak hval út á Krossanesi á Vatnsnesi og þangað fór afi að kaupa hval. En þegar hann var að færa hvalinn upp á hest kom Hans á Þóreyjarnúpi til hans og sagði: Þú þarft ekki að fá mikinn hval núna Eggert minn. Þú færð meira bráðum. Skömmu síðar rak 32 reyðarhvali undan ís niður undan Ánastöðum. Þeir urðu lífsbjörg fólki í fleiri en einni sýslu. Hefur fengizt smávegis við hitt og þetta Ég ólst upp við þessa venjulegu leiki og störf, sem þá tíðk- uðust, en ég hef snemma haft gaman af veiðiskap, því ég man eftir því að þegar ég var í kringum fermingu bað Anna systir mig að taka kolanetin. Þau voru lögð frammi á firði. Síðan hef ég mest veitt úr sjó, en líka farið í Vesturhópsvatn. Svo hef ég eitthvað smávegis fengizt við eitt og annað í landi; byggingavinnu, bátasmíð og rækjuvinnslu. En í raun og veru hef ég aldrei gert neitt. Og ekki hefur það skánað í seinni tíð. Ég fer í kaffihornið í kaupfélaginu að hitta karlana og svo kem ég við í bókasafninu og lít í blöðin. Nú er ég aftur orðinn smápatti á bryggjunni og skrepp á sjó þegar mig langar til. Ég þakka bara fyrir meðan ég get staðið í lappirnar og farið á sjóinn.“ Þykir vænzt um verzlunarhúsið og Mylluna Bangsi segir að af þeim handtökum sem hann eigi á Hvammstanga þyki honum vænzt um hús Sigurðar Páls- sonar og Mylluna. Karl Sigurgeirsson, vinur Bangsa og fréttaritari Morgunblaðsins, segir að þegar Bangsi gerði við verzlunarhúsið hafi hann lagað magnaða steypublöndu, sem hann vildi alls ekki gefa upp. „En þetta heldur og að auki er handbragðið einstaklega fallegt.“ Myllan uppi í Hvammi hafði ekki verið notuð í 100 ár þegar Bangsi gerði henni til góða við annan mann. „Svo byggði ég þetta hús sem ég bý í. Ég gat það alveg.“ Og Naust lofar meistarann eins og önnur hans verk. Bangsi hefur smíðað átta báta um ævina og rær sjálfur á einum sem hann smíðaði 1958. „Þeir ætluðu nú einu sinni að saga hann í sundur, en vinur minn, Þór Magnússon þjóð- minjavörður, sagðist þá ganga í það að friða bátinn. Ég þorði samt ekki annað en loka hann inni í bílskúr í heilt ár. Ég mála hann tvisvar á ári þannig að það eru komnar kringum 100 umferðir á hann. Ætli hann hangi ekki bara saman á málningunni eins og sagt var um skektuna á Heggs- stöðum að hún héngi saman á tjörunni. Það voru einhverjir karlar, sem spáðu ekki vel fyrir mér þegar ég var að byrja bátasmíðina. Einn gat ekki á heilum sér tekið yfir þessari hrokasmíð, en eftir að báturinn var kominn niður sagði hann ekki orð. Annar fékk yfir höfuðið, þegar hann sá samsetninguna, en svo bráði af honum, þegar báturinn flaut. En þessir menn voru nú engir smiðir. Þótt mönnum hafi ekki litizt á upphafið þá bjargazt allt fyrir horn hjá mér.“ Ég hef orð á því hvað Svarthvít er elsk að Bangsa. „Já þeir kunna að meta mig hundarnir,“ segir hann. „Eitt sinn kom til mín minkaveiðihundur af bæ hér skammt frá og sett- ist upp hjá mér. Hér var hann í tíu ár, fór alltaf heim um veiðitímann, en kom svo hingað aftur. Ég held honum hafi líkað betur frelsið hjá mér en að vera bundinn heima við.“ Hann er bara að sökkva „Nei blessaður vertu, það hefur aldrei neitt sögulegt hent mig á sjó. Ég dró alltaf grásleppunetin þannig að ég gæti fleygt þeim út aftur ef með þyrfti. En einu sinni var ég úti á flóa, þegar hann hvessti skyndi- lega. Ferðin gekk vel inn að firðinum, en það var dálítið mál að halda bátnum á floti. Hann var farinn að síga að framan, þegar stór skvetta kom inn, ég henti öllu út og náði að keyra hann upp aftur. Einhverjir voru þarna úti og kölluðu mig upp í talstöðinni og spurðu, hvort eitthvað væri að. Já, svolít- ið, sagði ég. Hann er að sökkva. Þeir sigldu þá til mín, en þegar þeir komu var ég búinn að bjarga bátnum og á heim- leið inn fjörðinn. Ég tala við bátinn eins og hund. Ef eitthvað kemur fyrir þá er það ekki bátnum að kenna, heldur mér.“ Eitt af því sem Bangsi hefur lagt gjörva hönd að á Hvammstanga er verzlunarminjasafnið. „Pabbi var kaup- maður í 50 ár og hann henti aldrei neinu. Það var því eitt og annað til, þegar verzluninni var lokað, og ég tók margt til handargagns og eitthvað af því er á verzlunarminjasafninu. Safnari? Ég? Veit ekki hvað skal segja. Það er svona ým- islegt drasl í kringum mig. Ég held ég eigi bara vini en enga óvini. Ég hef reynt að lifa laus við öfund og hatur. Þau fara illa með marga. Ég gleðzt frekar en hitt, þegar öðrum gengur vel. En nú eru erfiðir tímar hjá mörgum og ég finn til með því fólki sem á bankabágt. Ég hef aldrei tekið lán í banka. Einu sinni þurfti ég á því að halda en fékk neitun. Það bjargaði mér alveg. Ég hefði ekki haft gott af því að fara að skulda peninga og vinna fyrir banka.“ Og Bangsi ekur sér eins og einhver óværa hafi læðzt niður bakið á honum. „Ég var einhvern tímann að telja fisktegundirnar sem ég hef fengið. Man nú ekki í svipinn hvað þær eru margar og finn ekki snepilinn sem ég krotaði þetta á. En ég hef fengið lax, það er reyndar bannað að veiða lax í sjó, en það bannar þér enginn að sleppa honum aftur. Eru ekki allar laxveiðar orðnar upp á það að sleppa fiskinum aftur? En nýjustu tegundirnar sem ég hef fengið eru skötuselur og makríll. Hann beit mig nú skötuselurinn fyrir vikið. Það má svo sem segja að ég hafi boðið honum upp með því að vera án ullarvettlinganna.“ Lífskúnstner og líka hvers manns hugljúfi „Þótt Bangsi hafi verið piparsveinn alla tíð er hann ekki einfari, heldur gæðir hann allt lífi og fjöri í kringum sig. Hann er vinmargur og meistari á mannamótum,“ segir Karl Sigurgeirsson. Í Syðsta-Hvammi var það lenzka í fjölskyld- BETRI ER SMÁR FENGINN EN STÓR ENGINN Við erum á spegilsléttum Miðfirði, báturinn pústar letilega en taktfast og Bangsi situr aftur í, með aðra hönd á stýri og hina á handfærarúll- unni. Áður en nemur við botn er fiskur á hverjum öngli. Bangsi dregur þá brosmildur upp í bátinn. Hann ætti að vera glaður með þetta karl- inn, segir hann. Betri er smár fenginn en stór enginn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.