Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 39
Umræðan 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
Bredgade 33
DK-1260 Kbh. K
Tel +45 8818 1111
Mánudaginn 7. september kl. 13-18 á Hverfisgötu 29, 101 Reykjavík
Bruun Rasmussen Kunstauktioner er stærsti uppboðshaldari Danmerkur. Sérfræðingar okkar bjóða þig velkominn
til ókeypis mats á listmunum þínum án nokkurra skuldbindinga. Við bjóðum upp skartgripi, silfur, Georg Jensen
listmuni, Flora Danica skartgripi, rússneska list, mynt, frímerki, vopn, bækur og vín árið um kring. Láttu okkur
vita ef þú átt listmuni í þessum flokkum og einn af sérfræðingum okkar mun hafa samband við þig áður en
þeir koma til landsins. Við erum einnig að leita að verkum eftir íslenska listmálara eins og:
Jón Stefánsson, Olafur Eliasson, Ásgrím Jónsson og Jóhannes S. Kjarval og marga fleiri.
Við bjóðum besta verðið á markaðinum ásamt skjótu uppgjöri.
Hægt er að meta listmuni heima hjá fólki þann 6. eða 7. september. Vinsamlegast
hafðu samband – með góðum fyrirvara – við Kasper Nielsen í síma +45 6035 1121
eða með tölvupósti: k.nielsen@bruun-rasmussen.dk
Næstkomandi skoðanir og uppboð, sjá: www.bruun-rasmussen.dk
Uppboð
Matsdagur í Konunglega danska sendiráðinu
NÚ FER í hönd
haustið sem er í senn
hið náttúrulega haust,
þar sem göturnar fyll-
ast af sölnuðu laufi og
skólabörnum, og haust
kreppu, undanfari efna-
hagslegs frostavetrar.
Þetta er veturinn sem
markar botninn á timb-
urmannatímabilinu eft-
ir sukkið góða um árið –
afeitrun í gangi og svo eftirmeðferð
og vonandi að lokum bati!
Batinn felur í sér nýtt Ísland, laust
við þá græðgi og siðleysi sem ein-
kenndi fyrri tíð – það er að minnsta
kosti krafan. Hið nýja Ísland skal
byggja á hófsemd, siðsemd og rétt-
læti! Í þessari grein ætla ég að fjalla
um hið síðastnefnda: réttlætið. Og ég
ætla að fjalla um það út frá stærsta
óréttlætismáli sem við stöndum
frammi fyrir – skuldabyrði heimila og
fyrirtækja í landinu.
Hagsmunasamtök heimilanna
blása til greiðsluverkfalls þann 1.
október til að þrýsta á um að komið
verið til móts við kröfu um leiðrétt-
ingu húsnæðislána. Frá því að ný rík-
isstjórn tók við hefur hún þverskall-
ast við sanngjörnum kröfum um
þessa leiðréttingu. Þeir ætla aðeins
að bjarga hinum verst settu og fólk
sem hefur alltaf staðið við sínar
skuldbindingar á nú ekki að fá aðstoð
nema með auðmýkjandi tilsjón og af-
skiptum. Sorrý – ekki ásættanlegt.
Við erum nógu hnípin, við þurfum
ekki meira!
Í hverju felst svo óréttlætið?
Færa má rök fyrir því að myntkör-
fulánin sem gömlu bankarnir héldu
að fólki síðustu árin í
rekstri hafi breyst í
svikamyllur, þótt það
hafi kannski ekki verið
ásetningur í upphafi.
Blekið var varla þornað
af lánunum þegar lán-
veitendurnir, gömlu
bankarnir, tóku stöðu
gegn krónunni og felldu
hana jafnt og þétt á
þriggja mánaða fresti
þegar kom að upp-
gjörum og milli-
uppgjörum. Þannig
hækkuðu þeir höfuðstól lánanna (auk
þess að hækka vextina) og juku tekjur
sínar en voru eftir sem áður með út-
gjöld af sínum rekstri í krónum hérna
heima. Þetta er sambærilegt því að
maður keypti bíl og fengi lán frá fjár-
mögnunarfyrirtæki en svo kæmi mað-
ur frá fyrirtækinu á þriggja mánaða
fresti og rispaði og beyglaði bílinn.
Eftir eitt, tvö ár væri verðmæti bíls-
ins orðið innan við helmingur þess
sem maður skuldaði í bílnum – og
fjármögnunarfyrirtækið krefðist þess
að maður borgaði að fullu!
Síðan tekur ríkið yfir svikamylluna
og ætlar að ganga að þessum kröfum
að fullu þar sem það er hægt. Þetta er
sambærilegt við að þegar Enron fór á
hausinn hefðu bandarísk yfirvöld tek-
ið yfir svikamylluna, haldið áfram að
féfletta raforkuneytendur og svarað,
eins og viðskipta- og fjármálaráð-
herra Íslands svara í dag: „Við höfum
ekki efni á að hætta þessu.“
Nú á ég fullt eins von á að málefni
myntlána verði útkljáð fyrir dóm-
stólum í einhverjum af þeim próf-
málum sem eru í gangi dag varðandi
skuldamál. Sem vinstrimanni og þátt-
takanda í að koma þessari ríkisstjórn
á koppinn þykir mér það þó ansi
snautlegt ef dómstólar þurfa að
skikka vinstristjórn til að sýna rétt-
læti – þetta er fyrst og fremst krafa
um réttlæti.
Þessir gjörningar bankanna sem
felldu krónuna skiluðu sér svo inn í
verðtryggðu lánin okkar í gegnum
verðbólguskotið sem þetta olli. Auk
þess erum við með falskar forsendur
inni í vísitölunni; neyslumynstur há-
þenslutímans 2005-2007 og íbúðaverð
frysts markaðar sem á eftir að fara
mun neðar.
Áðurnefndir ráðherrar fjármála og
viðskipta hafa talað gegn því að fólk
fari í aðgerðir eins og greiðsluverk-
fall. Þeir segja að það komi fólki að-
eins í enn meiri vandræði. Nú er ég
ekki með neinar sérstakar væntingar
til embættismanna sem púkkað hefur
verið upp á tímabundið í ráðherra-
stöðu. En leiðtogar vinstrimanna
ættu að hafa snefil af sögulegri vitund
og réttlætiskennd. Verkföll hafa til
skemmri tíma aldrei verið neinum til
góðs, hvorki þeim sem fara í verkfall
né þeim sem verkfallið beinist gegn.
Þau hafa þó verið nauðsynlegt tæki
þegar allt um þrýtur og til lengri tíma
hafa þau átt sinn hlut í að skapa það
velferðarkerfi sem hér er þó enn til
staðar.
Afleiðingar greiðsluverkfalls sem
byggir á réttlátum kröfum eru á
ábyrgð þeirra sem það beinist gegn!
Greiðsluverkfall fyrir réttlæti
Eftir Kjartan
Jónsson » Fólk á nú ekki að fá
aðstoð nema með
auðmýkjandi tilsjón og
afskiptum. Sorrý – ekki
ásættanlegt. Við erum
nógu hnípin!
Kjartan Jónsson
Höfundur er þýðandi
og íslenskukennari.
Fréttir í tölvupósti