Morgunblaðið - 06.09.2009, Síða 41
Umræðan 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
• Rótgróin heildverslun með gjafavörur. Auðveld kaup.
• Lítil heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 80 mkr. Hentar vel til
sameiningar.
• Þjónustufyrirtæki sem selur um 600 fyrirtækjum þjónustu sína. Ársvelta 100
mkr.
• Vinsælt veitingahús. Ársvelta 230 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að þjónustu- og innflutningsfyrirtæki.
Ársvelta áætluð um 200 mkr. Ágætur hagnaður.
• Heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 170 mkr. Mjög skuldsett.
• Meðeigandi óskast að nýju framleiðslufyrirtæki. Reiknað er með 30-35%
árlegri ávöxtun eigin fjár næstu árin.
• Sérverslun með fatnað á góðum stað. Ársvelta 150 mkr. Góð framlegð.
• Iðnfyrirtæki í matvælaframleiðslu með mikinn og vaxandi útflutning. Ársvelta
240 mkr.
• Rótgróið iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 400 mkr.
Hagstæðar skuldir.
• Rótgróið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 130 mkr.
• Þekkt innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. Ársvelta 240 mkr. EBITDA 35
mkr. Hagstæðar skuldir.
• Þjónustufyrirtæki sem selur fyrirtækjum lögbundna þjónustu með föstum
samningum. Ársvelta 170 mkr.
Í tilefni af Vísindavöku 2009 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 ára og 10-12 ára.
Efni myndanna skal vera „Vísindin í daglegu lífi“
Myndum skal skilað fyrir 16. september til Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík.
Verðlaun verða veitt á Vísindavöku 25. september 2009. Nánari upplýsingar á...
...www.rannis.is/visindavaka
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Vísindavaka
2009
Skilafrestur er
til 16.sept. 2009
ÞAÐ SKIPTIR
sköpum á íslenskum
vinnumarkaði í dag
að starfsfólki gefist
kostur á að þróa
áfram hæfni sína í
starfi til að geta tek-
ist á við álag og
flóknari verkefni. Á
þann hátt geta allir
tekið þátt í því end-
urmati og upp-
stokkun sem nú á sér stað og
byggt upp til framtíðar. Símennt-
un eykur virði hvers einstaklings
og eflir bjargir í einkalífi og starfi.
Starfsefling og persónuleg upp-
bygging má því ekki mæta afgangi
í núverandi ástandi heldur á hún
þvert á móti að fá forgang sem
aldrei fyrr. Glímt er við stórar
spurningar þessa dagana sem
varða starfsvettvanginn og þau
kjör sem bjóðast. Innan stofnana
er einnig rýnt í framtíðina, breytta
verkefnaskipan og fleiri samstarfs-
fleti. Þar þarf að mæta nýjum að-
stæðum og fyrirsjáanlegum breyt-
ingum með öflugri menntun og
þjálfun starfsfólks.
Fræðslusetrið Starfsmennt get-
ur mætt starfsmönnum og stjórn-
endum í þeirri vinnu með margs-
konar þjónustu til að efla
vinnustaði, vinnubrag og vilja til
verka. Með aukinni menntun og
góðri undirbúningsvinnu má leggja
nýjan grunn þar sem skemmtilegri
verkefni bíða og þar
sem velferð fólks er
sett í öndvegi.
Virk starfsþróun
Fræðslusetrið
Starfsmennt starfar á
sviði símenntunar og
starfsþróunar og er í
eigu fjármálaráðu-
neytisins og flestra að-
ildarfélaga ríkisstarfs-
manna innan BSRB.
Þar er unnið að þróun
starfstengdrar þekkingar og þjálf-
unar með fræðslu og ráðgjöf. Þátt-
taka í námi setursins er fé-
lagsmönnum að kostnaðarlausu
enda byggist starfið á kjarasamn-
ingum eigendanna. Leiðin að auk-
inni starfsmenntun er því greið og
besta svarið við núverandi óvissu.
Með því að virkja starfsmenn til
náms treysta stjórnendur grunn
starfseminnar og auka líkur á já-
kvæðari vinnustaðarmenningu. Nú
er lag að huga enn frekar að
menntamöguleikum og móta
stefnu í starfsþróun þar sem
starfsmenn þróa áfram færni sína
og viðhorf og fullnýta hæfileika
sína. Á þann hátt er þekking
vinnustaðarins uppfærð og líkur á
faglegu gæðastarfi aukast.
Hagur starfsmanna
og stjórnenda
Markviss stefna í starfsþróun
varðar leiðina sem sett er í for-
gang og auðveldar útfærslu, fram-
kvæmd og mat. Á þann hátt eykst
skýrleiki og gagnsæi á þessu mik-
ilvæga sviði mannauðsstjórnunar
og dregið er úr tilviljanakenndum
vinnubrögðum. Virk starfsþróun
er alltaf samstarfsverkefni starfs-
manna og stjórnenda þar sem gætt
er að hagsmunum beggja; starfs-
fólk tileinkar sér nýja þekkingu
sem nýtist vinnustaðnum, náms-
hvatning og áhugi bætir starfsand-
ann og eykur líkur á betri nýtingu
fjármagns og tíma. Fræðslusetrið
Starfsmennt er einn öflugasti
fræðsluaðilinn sem getur komið til
móts við stofnanir á þessu sviði
með sérsniðnum úrræðum og ráð-
gjöf sem beint er að markhópi set-
ursins en nýtist vitaskuld vinnu-
staðnum í heild.
Heildstæð símenntun
starfsfólks
Starfsmennt hefur nú um árabil
boðið stofnunum og starfshópum
upp á starfstengda símenntun. Sí-
menntun starfsfólks hefur verið
sett fram á þann hátt að þróaðar
hafa verið sérsniðnar námsleiðir
sem skipt er í sjálfstæð námskeið
eða námslotur sem starfsmenn
velja úr í samræmi við eigin
fræðsluþarfir og framtíðarsýn
stofnana. Stýrihópar námsleið-
anna, sem í eiga sæti jafnmargir
starfsmenn og stjórnendur, ráða
síðan hraða og framboði náms út
frá möguleikum stofnana og eft-
irspurn. Stýrihóparnir geta einnig
breytt áherslum námsins ef breyt-
ingar verða á starfsumhverfi og
tryggt þannig að nám úreldist
ekki.
Námsleiðir Starfsmenntar eru í
senn einstaklingsmiðaðar og sam-
eiginlegar öllum starfsmönnum.
Þær ríma við starfsmarkmið stofn-
ana og eru rauði þráðurinn í
fræðslustarfi þeirra. Starfsmenn
hafa því yfirsýn yfir símennt-
unarkerfið í heild sinni en ferðast
um það á sinn einstaka hátt. Með
heildstæðum námsleiðum verður
stefna stofnunar í símenntun
starfsmanna skýrari en ella um
leið og gætt er að nauðsynlegum
sveigjanleika. Margar þessara
námsleiða hafa verið unnar með
aðstoð Ráðgjafa að láni og kennd-
ar um allt land sem sjálfsagður
hluti vinnunnar.
Ráðgjafi að láni
Ríkisstofnunum hefur staðið til
boða að nýta Ráðgjafa að láni til
að innleiða aðferðir mannauðs-
stjórnunar á vinnustað og hafa um
fimmtíu stofnanir nýtt sér tæki-
færið. Stofnanir geta sótt um að-
stoð til að innleiða þá þætti mann-
auðsstjórnunar sem þær kjósa
helst. Starfsmennt er í samstarfi
við sérfræðinga sem hægt er að fá
lánaða í allt að 40 klukkustundir
og kostar Starfsmennt vinnu
þeirra. Markmið ráðgjafarinnar er
að vinna að markvissri mann-
auðseflingu og taka þannig fyrstu
skrefin í að forgangsraða aðferð-
um til að auka starfsþróunarmögu-
leika starfsfólks. Verkefnin lúta að
öllu sem viðkemur mannauðs-
stjórnun eins og mótun starfs-
mannastefnu, jafnréttisstefnu,
siðareglum, heilsustefnu eða grein-
ingu á vinnustað, fræðslu, áhuga-
sviði og starfsánægju. Öll þessi
verkefni og þjónusta Starfs-
menntar miðast að því að efla
starfsfólk í að takast á við sí-
breytilegt umhverfi og aðstoða
stofnanir við að koma þessum mik-
ilvæga málaflokki í góðan farveg.
Tilgangurinn er að gera stofnanir
ríkisins að enn betri vinnustöðum
og efla hæfni og líðan starfsfólks
sem vinna mikilsverð störf á um-
brotatímum.
Eftir Huldu A.
Arnljótsdóttur
Hulda A. Arnljótsdóttir
» Símenntun, starfsefl-
ing og persónuleg
uppbygging má ekki
mæta afgangi í núver-
andi ástandi heldur á
þvert á móti að fá for-
gang sem aldrei fyrr.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Fræðslusetursins Starfsmenntar.
Menntun og mannauðsefling
ríkisstarfsmanna