Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 52
52 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
Ekki hvarflaði að
mér miðvikudaginn 19.
ágúst, þegar við Sig-
urður Odds kvöddumst eftir langt
símtal, að hann yrði allur aðeins
þremur dögum síðar og að þetta sím-
tal væri það síðasta sem við ættum
um heimsminjamál, Þingvelli og nor-
rænt samstarf.
Við Sigurður kynntumst í lok árs
2002, þegar unnið var að undirbúningi
þess að fá Þingvelli inn á heimsminja-
skrá UNESCO, og upp úr því sam-
starfi spratt góð vinátta. Ekki var
síðra að kynnast hans góðu konu,
Herdísi, en þau hjónin voru einstak-
lega samhent. Höfum við Hans notið
vináttu og gestrisni á þeirra fallega
heimili á Nesinu og sælureitnum í
Borgarfirði. Fyrir það skal þakkað af
alhug.
Við Sigurður höfum átt margar
góðar stundir í tengslum við heims-
minjamálin, sérstaklega á norrænum
vettvangi. Mér er minnisstætt þegar
við unnum ásamt fleirum að undir-
búningi árlegs fundar norrænna
heimsminjastaða, sem haldinn var
hér á landi haustið 2005. Fundurinn
þótti heppnast mjög vel og hafa fé-
lagar okkar á Norðurlöndum enn orð
á því hvað það hafi verið einstakt að
sækja Ísland og Þingvelli heim. Sú
lífsreynsla að fara yfir Kaldadal í
björtu veðri en ísköldu og vindasömu,
þar sem gerður var stans á hæsta
punkti og Sigurður bauð norpandi
gestum upp á harðfisk og brennivín,
hefur reynst mörgum ógleymanleg.
Sigurður var einstaklega skemmti-
legur ferðafélagi. Því kynntumst við
Helga dóttir mín, þegar við fórum
ásamt honum og Herdísi á norrænan
heimsminjafund í Alta í Noregi haust-
ið 2006, og ekki síður í fyrra, þegar
fundurinn var haldinn á Grænlandi.
Þar mætti Sigurður að vísu bara einn
til leiks en við þrjú áttum saman
nokkra góða daga og fórum m.a. í
langa siglingu meðfram vestur-
ströndinni til að skoða frægt náttúru-
undur við grænlenska jökulinn.
Sigurður var mikill náttúruunnandi
og í sorginni yfir alltof ótímabæru frá-
falli hans má þó hugga sig við það að
hann var staddur mitt í íslenskri nátt-
úru, sem hann unni svo mjög, þegar
kallið kom.
Við Hans, Helga og Jóhannes send-
um Herdísi og allri fjölskyldunni ein-
lægar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Sigurðar K. Oddssonar.
Ragnheiður Helga Þórarins-
dóttir.
Okkar kæri vinur Sigurður Odds-
son er látinn. Fregnin kom öllum í
opna skjöldu eins og ætíð þegar and-
lát ber að höndum svo skjótt. Hann
kvaddi lífið fyrirvaralaust.
Sigurður átti lengi þann draum að
ganga á Herðubreið, þetta tignarlega
Sigurður K. Oddsson
✝ Sigurður KristjánOddsson fæddist á
Hafursá í Vallahreppi
í S-Múlasýslu 22. jan-
úar 1940. Hann lést á
Herðubreið 22. ágúst
síðastliðinn og var út-
för hans gerð frá
Dómkirkjunni í
Reykjavík 2. sept-
ember.
Meira: mbl.is/minningar
fjall, drottningu
fjallanna. Við, göngu-
hópurinn Geirfuglar,
vorum eitt sinn á ferð í
nágrenni Herðubreið-
ar og ætlunin var að
ganga á fjallið. Herðu-
breið getur verið við-
sjárverð og ekki alltaf
fært upp sökum veðurs
og skýjafars. Við bið-
um færis í tvo daga en
ákváðum svo að halda
áfram suður í Kverk-
fjöll þangað sem för
okkar var heitið. Ein-
sýnt þótti að ekki gæfist færi á að
ganga á fjallið í þetta sinn. Ekki vor-
um við fyrr lögð af stað en þoku og
skýjum létti af fjallinu og heiðskírt
varð og bjart. Sumir vildu snúa við og
nota tækifærið en samt var ákveðið
að halda áfram. Þarna blasti Herðu-
breið við okkur í öllu sínu veldi alveg
þangað til við komum í Kverkfjöll.
Það var engu líkara en að hún væri að
stríða okkur og segði: „Ykkur var
nær.“ Mikla eftirsjá vakti í hópnum
að hafa ekki notað tækifærið, snúið
við og gengið á fjallið. Sigurður hét
því að hann skyldi sigra þetta ögrandi
fjall þótt síðar yrði. Engan grunaði þá
að sá sigur yrði svo örlagaríkur sem
raun varð á.
Sigurður lagði af stað í sína síðustu
fjallgöngu, á Herðubreið, laugardag-
inn 22. ágúst sl., komst á toppinn en
þá kom kallið. Hann andaðist í faðmi
Herðubreiðar, draumurinn rættist en
hann reyndist dýrkeyptur.
Við sem eftir lifum stöndum hnípin
og söknum vinar í stað. Sigurður var
einstaklega ljúfur maður, góður vin-
ur, skemmtilegur og frábær ferða-
félagi. Við vottum Herdísi, börnum
þeirra og fjölskyldunni allri innilega
samúð.
Blessuð sé minning hans.
Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir.
Ragnar Ragnarsson.
Okkur setti hljóð og við vorum
harmi slegin þegar okkur barst sú
frétt að Sigurður K. Oddsson, félagi
okkar og vinur, hefði látist á göngu
upp á Herðubreið laugardaginn 22.
ágúst sl.
Vinskapur okkar við Sigurð og
Herdísi á sér langa sögu. Hvað Krist-
ínu og Herdísi varðar allt frá þeim
tíma þegar þær voru saman í mennta-
skóla. Það var því eitt fyrsta verk
Kristínar þegar við kynntumst sum-
arið 1969 að kynna Geir fyrir Herdísi
vinkonu sinni, líklega til að kanna
hvernig henni litist á þennan unga
mann. Þá hitti Geir Sigurð í fyrsta
sinn. Síðan vorum við erlendis í nokk-
ur ár, en alltaf þegar við komum heim
þá heimsóttum við þau. Þegar við vor-
um síðan alkomin heim uxu og treyst-
ust vinaböndin. Við teljum að það hafi
verið mikil gæfa að eiga þau sem vini
og félaga. Allt frá árinu 1983 höfum
við ásamt fleiri vinum ferðast um
landið og í samveru við góða vini upp-
lifað ótrúlega töfra Íslands. Á göngu
um friðsæla staði töluðum við saman
um margbreytilega þætti mannlífsins
og deildum með Sigurði skini og skúr-
um í lífinu.
Sigurður var einstakur smekkmað-
ur. Smekkur þeirra Herdísar fór
mjög vel saman og á Vesturströnd-
inni bjuggu þau sér einstaklega fal-
legt heimili, allt féll þar ljúflega sam-
an og myndaði einstaklega
heildstæða mynd og fagurt heimili.
Sigurður var lærður tæknifræðing-
ur og smiður. Fyrir allnokkrum árum
byggðu þau Herdís sér sumarbústað í
Heyholti í Borgarfirði og varði hann
ófáum stundum við að byggja húsið
og síðan við stækkun þess í nokkrum
áföngum. Bústaðurinn ber gott vitni
um hversu mikill og góður hand-
verksmaður Sigurður var og er hann
annað dæmi um einstakan smekk
þeirra hjóna. Þar var ekki eingöngu
fallegur bústaður, þar var ekki síður
hlýlegt hreiður þar sem manni líður
vel.
Að koma í heimsókn til þeirra hvort
sem var á Vesturströndina eða í Hey-
holtið var alltaf mjög ánægjulegt, því
gestrisnin var einstök. Manni leið svo
vel í návist þeirra því sambandið
þeirra á milli var svo gott, náið og
gagnkvæmt. Maður skynjaði um-
hyggju og ást þeirra hjóna hvors á
öðru.
Sigurður var mikill fjölskyldumað-
ur og umhyggja hans fyrir Herdísi og
fjölskyldunni var einstök. Umhyggja
sem við vitum að var endurgoldin.
Sigurður var einstaklega heilsteypt-
ur, vandaður og ljúfur maður og það
var mjög gott að vera í návist hans.
Hann hafði einstaklega hlýtt viðmót
og góða nærveru. Við teljum það
mikla gæfu að hafa átt hann sem góð-
an vin og félaga.
Á þessum tímamótum koma upp í
hugann atburðir frá liðnum árum,
sem skerpa þá mynd sem við höfum
af Sigurði. Í huga okkar mun lifa
einkar hugljúf mynd af ljúfum og góð-
um manni, mynd sem við eigum fá orð
til að lýsa en varðveitum með okkur
svo lengi sem við lifum.
Við vitum að harmur Herdísar,
Tómasar, Kristínar, Sigríðar og fjöl-
skyldna þeirra er mikill við skyndi-
legt fráfall Sigurðar. Hugur okkar er
með þeim á þessari stundu og við biðj-
um að ljúfar minningar um hann veiti
þeim styrk á þessum erfiðu tímum.
Kristín og Geir.
Mér var verulega brugðið þegar sú
frétt barst að Sigurður K. Oddsson
væri fallinn frá á besta aldri, svo
skömmu áður en hann hugðist
minnka við sig störf og snúa sér að
áhugamálum sínum, sem voru mörg.
Sigurði kynntist ég fyrir rúmum 10
árum í gegnum starf mitt fyrir Þing-
vallanefnd og höfum við átt mikil og
ávallt farsæl samskipti í gegnum tíð-
ina í tengslum við það.
Sigurður hafði einstaklega ljúfa og
notalega nærveru, en gat samt verið
fastur fyrir þegar svo bar undir og á
þurfti að halda. Á reglulegum fundum
okkar, þegar við höfðum lokið við að
fara yfir þau verkefni sem á dagskrá
voru, áttum við alltaf skemmtilegt
spjall um daginn og veginn. Honum
varð tíðrætt um börnin sín og barna-
börn, sælureit þeirra hjóna, sumarbú-
staðinn, skíðaferðir, gönguferðir og
útivist almennt. Ég tel mig hafa lært
margt af Sigurði og þá það ekki síst
að lifa lífinu lifandi. Lífið bíður ekki
eftir manni.
Ég kveð Sigurð með söknuði og
votta Herdísi, eftirlifandi eiginkonu
hans, börnum og barnabörnum inni-
lega samúð mína vegna fráfalls hans.
Lilja Jónasdóttir.
Við kveðjum í dag með söknuði vin
okkar og félaga Sigurð K. Oddsson.
Árið 1983 ákváðu nokkur vinahjón
að ganga Laugaveginn, þeirra á með-
al Herdís og Sigurður. Í framhaldi af
þeirri ferð stækkaði síðan hópurinn,
til varð hópur sem við köllum Geir-
fuglana, sem á hverju sumri síðan þá
hefur ferðast saman innanlands til að
kynnast fegurð landsins og njóta fé-
lagsskapar hvert með öðru. Einnig
hafa verið farnar nokkrar ferðir út
fyrir landsteinana í sama tilgangi.
Herðubreið höfðaði af einhverjum
ástæðum sérstaklega til Sigurðar.
Hann hafði staðið á toppi Öræfajök-
uls, hæsta fjalls landsins, með Tómasi
syni sínum og hann hafði gengið með
okkur á Snæfell, hæsta fjall utan
jökla, en Herðubreið var eftir. Á ein-
um af ferðum okkar um landið höfð-
um við ætlað að ganga á Herðubreið,
en morguninn sem fara átti á fjallið
var toppur þess hulinn skýjum þannig
að hætt var við för. Ákveðið var í stað-
inn að fara í Öskju. Þegar komið var
að Upptyppingum var áð og þegar
horft var til Herðubreiðar, drottning-
ar allra fjalla, blasti fjallið við í allri
sinni dýrð, skýin voru horfin. Þá sagði
einn í hópnum: „Sjáið helvítið hana
Herðubreið.“ En þá var of seint að
snúa til baka og ganga á fjallið. Oft
síðar hafði Sigurður á orði að við yrð-
um að ganga á „helvítið hana Herðu-
breið“. En því miður varð aldrei úr
því að við færum saman á Herðu-
breið. En fjallið hafði eitthvert sér-
stakt aðdráttarafl á Sigurð og ekkert
okkar grunaði þegar við fréttum að
nú væri hann loksins að fara á Herðu-
breið að það yrði hans síðasta ferð.
Við vorum öll svo ánægð að nú léti
hann drauminn rætast. Við vitum öll
hvernig fór, en hann komst þó að lok-
um upp á Herðubreið, þótt það yrði
hans síðasta ferð.
Við fráfall Sigurðar hefur stórt
skarð verið höggvið í þennan vinahóp,
skarð sem ekki verður fyllt. Við sem
eftir lifum geymum minninguna um
ljúfan dreng og mjög góðan félaga.
Kæra Herdís og fjölskylda, við vit-
um að harmur ykkar er mikill við
óvænt fráfall Sigurðar. Hugur okkar
er með ykkur á þessari stundu og við
biðjum að ljúfar minningar um hann
og almættið veiti ykkur styrk.
F.h. Geirfuglanna,
Geir A. Gunnlaugsson.
Það dimmdi yfir þegar Rótarý-
félögum á Seltjarnarnesi bárust þau
sorglegu tíðindi að góður og vinsæll
félagi okkar, Sigurður K. Oddsson,
væri látinn 69 ára að aldri.
Sigurður gekk í Rótarýklúbb Sel-
tjarnarness 14. júní 1985. Hann var
gjaldkeri klúbbsins 1988/89 og kosinn
verðandi forseti klúbbsins í desember
sl. Hann var sæmdur Paul Harris-
orðunni 2007 fyrir góð störf í þágu
klúbbsins.
Vegna starfa sinna sem þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum átti hann ekki
gott með mætingar yfir sumartímann
en þess á milli var hann mjög virkur
og sannur Rótarýmaður sem setti
þjónustu ofar eigin hag. Félagar nutu
og góðs af veru hans á Þingvöllum,
þar tók hann á móti okkur í einni af
sumarferðum klúbbsins, leiddi okkur
um staðinn og sagði deili bæði á nátt-
úru og sögu, af sinni einkennandi yf-
irvegun og þekkingu.
Ég minnist Sigurðar sem afskap-
lega ljúfs manns í allri viðkynningu,
trausts félaga sem gott var að ræða
við. Gamansögur hans af þeim fé-
lögum Matta og Pekka verða mér
alltaf ógleymanlegar. Það er afskap-
lega sárt að sjá á bak okkar ágæta fé-
laga og vini í blóma lífsins.
Félagar í Rótarýklúbbi Seltjarnar-
ness þakka Sigurði langa samfylgd og
gott starf í þágu klúbbsins. Mörg okk-
ar hafa eftir fráfall hans haft á orði
hve nærvera hans hafi alltaf verið
þægileg á fundum. Hann alltaf hóf-
stilltur og fágaður í allri framgöngu.
Sigurður flutti mál sitt á yfirvegaðan
hátt með vönduðu orðfæri þannig að
það sem hann hafði að segja náði eyr-
um félaganna og oftast hitti hann í
mark.
Í Færeyjaferð klúbbsins fyrir
tveimur árum stóð Sigurður upp í há-
tíðarkvöldverði og flutti minnisstæða
ræðu. Hann spurði samferðafólk sitt
hvort það hefði tekið eftir því að
hrafninn í Færeyjum flygi hægar en
hrafninn á Íslandi. Út af því lagði
hann, taldi hreyfingar hrafnsins mót-
ast af mannlífinu og sýna að það væri
meiri rósemd yfir Færeyingum en
okkur Íslendingum. Ekki gat farið á
milli mála hvorn framgangsmátann
Sigurður kunni betur að meta. Hóg-
værð hans og yfirveguð framganga
gerðu spurningu þess efnis óþarfa.
Herdísi ekkju hans og öðrum ástvin-
um vottum við samúð okkar.
Guð blessi minningu Sigurðar K.
Oddssonar.
Fyrir hönd Rótarýklúbbs
Seltjarnarness,
Egill Þór Sigurðsson forseti.
Síðustu fundir okkar voru um
margt táknrænir fyrir Sigurð; það
var snemma morguns, hann sagði frá
því með blik í augum, að nú skyldi
haldið á Herðubreið. Drottning
fjallanna var ein eftir af þeim ögrun-
um í fjallamennsku sem hann hafði
sett sér fyrir löngu. Bjartsýnn, kátur,
við hlógum saman og klöppuðum hvor
öðrum á bakið í kveðjuskyni, eins og
svo oft áður. Tveim dögum seinna
kom símhringingin. Siggi örendur í
efstu hlíðum fjallsins.
Ótímabært andlát hans kallar fram
ótal minningar. Ferðalög með göngu-
hópnum okkar, Geirfuglunum, um allt
Ísland, frá afskekktustu fjörðum til
hæstu tinda; um Alpana, sunnan meg-
in og norðan, gangandi eða á skíðum,
frá starfsvettvangi hans í þjóðgarð-
inum á Þingvöllum; í matgæðinga-
veislum; eða bara að hitta þau Herdísi
úti í búð hér á Nesinu lága, þar sem,
andstætt því sem Þórbergur kvað,
stórt er hugsað.
Það var sama í hvaða aðstæðum
var ferðast; í margra daga grenjandi
rigningu og kulda á Hornströndum, á
hálendinu fjarri mannabyggðum,
undir Alpatindum, alltaf kom hann að
lausnum vandamála af yfirvegun og
glaðværð. Í öllu volki Geirfuglanna
vildi stundum hvessa milli manna, og
jafnvel milli hjóna, þó aldrei alvarlega
eða lengi. En milli Herdísar og Sigga
geislaði alltaf brosmildi og samlyndi,
sama hvað gekk á.
Myndirnar í hugskoti okkar ein-
kennast af hlýju hans og eðlislægri
gleði. Hann var í senn forvitinn og
fræðandi; kurteis þiggjandi og frá-
bær gefandi. Allt sem hann tók sér
fyrir hendur var gert af virðingu og
alúð fyrir verkefninu, jafnt í starfi
hans sem þjóðgarðsvörður á Þingvöll-
um; skógarhögg eða annað smátt eða
stórt í kringum bústað þeirra í Borg-
arfirði; og ekki síst sem eiginmaður,
faðir og afi. Missir Herdísar, barna
þeirra, tengdabarna og barnabarna
er stór.
Í lok hverrar Geirfuglaferðar var
stórveisla, etið og drukkið, talað mik-
ið og sungið undir harmónikkuleik.
Lokalagið var gjarnan þjóðvísan góða
frá Álandseyjum, „Vem kan segla fö-
rutan vind“ og leiddi Sigurður söng-
inn. Lokalínurnar eru. „Men ej skiljas
från vännen min
utan att fälla tårar“.
Eftir stöndum við og drúpum höfði
í minningu um góðan dreng.
Ingunn Benediktsdóttir
og Högni Óskarsson.
Drengur góður og vinur er horfinn
á braut langt um aldur fram. Við sem
eftir stöndum erum harmi slegin. Ég
kynntist Sigurði í gegnum Guðmund
eldri bróður hans, en við vorum á
sama reki. Foreldrar þeirra bræðra,
Oddur húsasmíðameistari og Guð-
björg, bjuggu í Helgamagrastræti 15
á Akureyri og var heimilið okkur vin-
unum ætíð opið. Það var ekki fyrr en
eftir að ég fór í nám í arkitektúr til
Þýskalands en Sigurður í húsasmíði
og við fórum að vinna saman við mæl-
ingar og fleiri störf að við kynntumst
betur og hélst sú vinátta alla tíð síðan.
Sigurður fór í framhaldsnáms við
Tekniska Högskolan í Stokkhólmi. Á
þessum tíma var skylda í námi mínu
að taka eitt ár í praxís á teiknistofu.
Ég ákvað að reyna að fá vinnu í
Stokkhólmi og spurði Sigurð hvort
mögulegt væri að fá húsaskjól hjá
honum á meðan ég leitaði að vinnu og
var það auðfengið. Sigurður leigði hjá
greifynjunni von Rosen sem hafði
verið sendiherrafrú í Brasilíu áður en
hún varð ekkja. Ég var fljótur að fá
vinnu en erfiðara var að fá leigt svo ég
dvaldist þar lengur en ætlað var. Það
ríkti gagnkvæm virðing á milli greif-
ynjunnar og Sigurðar en hún var
einnig verndari hans gagnvart
sænskum stúlkum þar sem hún vildi
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður
minnar og systur okkar,
UNNAR KETILSDÓTTUR
frá Ísafirði,
Kleppsvegi 120,
Reykjavík.
Innilegar þakkir fær starfsfólk Fríðuhúss, Laugaskjóls og Skjóls.
Auður Bjarnadóttir,
Ása Ketilsdóttir,
Dóra Ketilsdóttir,
Guðmundur Ketilsson
og fjölskyldur.