Morgunblaðið - 06.09.2009, Síða 53
ekki að slíkur öðlingur færi að flytja
frá Íslandi. Ég held að hún hafi skynj-
að að ástina væri að finna hér heima.
Það reyndist rétt því stuttu eftir
heimkomuna kynntist Sigurður ást-
inni sinni, Herdísi Tómasdóttur. Her-
dís og Sigurður voru mjög samhent.
Samband þeirra var sérstaklega fal-
legt og einkenndist af gagnkvæmri
ást og virðingu.
Þau voru bæði miklir fagurkerar
og bjuggu sér og börnunum einstak-
lega fallegt heimili. Þau voru höfð-
ingjar heim að sækja og þar var alltaf
glatt á hjalla. Við Gyða áttum einstak-
lega góðar stundir með þeim. Einnig
var einlægt samband þeirra Herdísar
og Sigurðar við Friðfinnu móður
mína og systur mínar, Dísu og Sig-
rúnu.
Sigurður stofnaði Tækniþjón-
ustuna sf. ásamt fleirum og oft leitaði
ég til hans um úrlausn á flóknum
verkefnum, sem hann leysti ávallt
með prýði.
Sigurður var dagsfarsprúður, kát-
ur og léttlyndur í allri umgengni.
Hann var náttúru- og útilífsunnandi,
göngumaður góður og skíðamaður.
En hann var ekki einn um þessi
áhugamál því Herdís var hans föru-
nautur.
Elsku Herdís, missir þinn og fjöl-
skyldu þinnar er mikill og sár, en
minningin um góðan dreng mun lifa.
Við Gyða og Dísa systir vottum þér,
fjölskyldu og aðstandendum innilega
samúð okkar.
Haukur Arnar Viktorsson.
Fyrir 26 árum söfnuðu vinir okkar
saman hópi hjóna til þess að ganga
um víðáttur landsins. Í þessum hópi
voru meðal annarra Herdís og Sig-
urður og við. Var þetta upphaf að
góðri vináttu milli okkar. Árlegar
gönguferðir og veislur þar sem litið
var yfir farinn veg eru eftirminnileg-
ar. En tækifærin til að hittast voru
enn fleiri, svo sem afmæli, brúðkaup,
Rótarý, jólaboð og aðrir vinafagnaðir.
Sigurður var hógvær, háttvís,
hreinskiptinn, hjartahlýr og heiðar-
legur, allt með hástöfum skrifað. Eftir
á að hyggja er H-ið einkennandi fyrir
hann. Í júlí gekk gönguhópurinn yfir
Hallormsstaðaháls og yfir upptök
Hafursár en Sigurður fæddist á sam-
nefndum bæ. Í landi Heyholts í Borg-
arfirði undu þau hjón við gróðurrækt
og smíðar. Þessu lífi lauk síðan á
Herðubreið.
Það lék allt í höndum þeirra hjóna,
hann var völundur til verka og hún
listamaður af Guðs náð. Var unun að
fylgjast með einstaklega samhentum
hjónum og verkum þeirra. Stærsta
H-ið er þó Herdís sem hugurinn dvel-
ur hjá á erfiðri stundu. Við sendum
henni og fjölskyldunni okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Minningin um mæt-
an mann lifir og huggun er í öllu því
fallega sem Sigurður skilur eftir sig.
Guðrún Sveinsdóttir,
Jón B. Stefánsson.
Eg vil með fáum orðum minnast
Sigurðar Oddssonar. Ég varð þess
láns aðnjótandi að kynnast fjölskyld-
unni á Vesturströnd 5 ungur að árum.
Tommi, sonur þeirra hjóna, hefur
verið minn besti vinur frá því ég man
eftir mér og var ég mikið inni á heimili
þeirra á mínum uppvaxtarárum. Sig-
urður var einstaklega vel gerður mað-
ur með hlýja og einlæga nærveru og
hafa margar góðar minningar rifjast
upp fyrir mér undanfarna daga.
Ég fékk margoft að fara með fjöl-
skyldunni í skíðaferðir í Skálafell og
aðrar útivistarferðir. Það var alltaf
farið snemma af stað til að nýta dag-
inn vel og með gott nesti. Það fór
mjög vel um mig í þessum ferðum.
Mér hefur þótt vænt um að þegar við
höfum hist á liðnum árum höfum við
rifjað upp þessar ferðir.
Á skólaárunum, allt frá grunnskóla
og gegnum háskóla, meðan Tómas
bjó í heimahúsum, nutum við skóla-
félagarnir margoft einstakrar gest-
risni og hlýhugar Sigurðar og Her-
dísar. Stór vinahópurinn var ávallt
velkominn á Vesturströnd 5 og köll-
uðum við hann okkar á milli „Sigga á
Nesinu“ með mikilli virðingu.
Margir hafa nú misst góðan mann
en minningin um Sigga Odds mun
lifa.
Aðalsteinn Jónsson.
Minningar 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
✝ IngimundurSmári Björnsson
fæddist í Laufási í
Víðidal í V-Húna-
vatnssýslu, 28. apríl
1947. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands á Selfossi
föstudaginn 21 ágúst
sl.. Foreldrar hans
voru Ingibjörg Jóns-
dóttir húsmóðir í
Laufási, f. 1913, d.
1994 og Björn Líndal
Guðmundsson bóndi í
Laufási, f. 1906, d.
1996. Systkini Smára eru: a) Inga
Björnsdóttir, Stöðvarfirði, f. 1935,
var gift Kristni Sigurðssyni, látinn,
börn hennar eru Hafdís Magn-
úsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir,
Sævar Kristinsson, Björn Ingi
Kristinsson, Halldór Kristinsson,
Hafsteinn Kristinsson og Jónas
Ægir Kristinsson. b) Trausti
Björnsson, f. 1938, búsettur á Laug-
arbakka, var kvæntur Lilju Kol-
brúnu Steindórsdóttur, látin, börn
þeirra eru Dóra Kristín Trausta-
dóttir og Björn Líndal Traustason.
c) Jón Helgi Björnsson, f. 1948, bú-
settur í Danmörku, kvæntur Dag-
björtu Sveindóttur, börn hans eru
Ingibjörg Jónsdóttir og Sigríður
Jónsdóttir og stjúpbörn hans eru
Borga Harðardóttir, Sigurður Héð-
inn Harðarson og Pétur Jónsson.
Smári ólst upp hjá foreldrum sín-
um í Laufási og fékk snemma
áhuga á bifvélavirkj-
un. Hann vann við
vélaviðgerðir bæði á
Íslandi og einnig um
tíma í Svíþjóð og Nor-
egi.
Smári kvæntist
28.10.1982, Álheiði
Ósk Einarsdóttur frá
Bjarmalandi í Vest-
mannaeyjum, f. 1943.
Þau áttu engin börn
saman en áður átti
Álfheiður Guðrúnu
Eyju Hafliðadóttur, f.
1963, d. 1968, og þrjú
önnur sem urðu jafnframt fóst-
urbörn Smára: Bjarna Diðrik Sig-
urðsson prófessor, f. 1966, maki
Anna Jónsdóttir, börn þeirra eru
Sigurður Sturla Bjarnason og
Hekla Hrund Bjarnadóttir; Einar
Rúnar Sigurðsson, ferðaþjón-
ustubóndi í Hofsnesi í Öræfasveit, f.
1968, maki Matthildur Unnur Þor-
steinsdóttir, börn þeirra eru Aron
Franklín Jónsson, Ísak Einarsson
og Matthías Einarsson; Eyrún Ósk
Sigurðardóttir leikskólakennari, f.
1972, sonur hennar er Salómon
Smári Óskarson.
Smári og Álfheiður voru fyrst bú-
sett á Hornafirði, síðar í Vest-
mannaeyjum og síðustu 8 árin á
Hvolsvelli.
Útför Smára fór fram í kyrrþey.
Jarðsett var í Hvolsvall-
arkirkjugarði.
Meira: mbl.is/minningar
Smári var hægur, hljóðlátur og fá-
máll en glaðværðin var aldrei fjarri.
Ég tók eftir þessum manni þegar
hann starfaði í FES-Vestmannaeyj-
um. Hann var iðulega í vélastörfum.
Hann fæddist í Laufási í Víðidal.
Skólaganga hans var stutt en lang-
skólanámið var vélaverkstæðið
heima og á Laugarbakka. Hann fór
til Noregs og Svíþjóðar til að vinna
og lagfæra vélar.
Hann bjó á Flötum 10 með Heiðu
sinni og börnum hennar þeim
Bjarna, Einari og Eyrúnu. Hann fór
að venja komur sínar í Betel en
Heiða hafði fáum mánuðum áður
gengið í söfnuðinn. Ég vissi ekki
hvernig Smára líkaði samkomuhald
eða prédikun.
Svo kom Smári með okkur að
Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð að und-
irbúa sumarmót Hvítasunnumanna.
Ýmislegt þurfti að undirbúa fyrir
slíkt mót.
Prédikunin þar greip Smára.
Hann fór til fyrirbænar yfirvegaður
og rór. Þá varð bylting í lífi Smára.
Honum varð ekki svefnsamt þá nótt.
Ég hitti hann árla um morguninn og
heilsaði. Hann tók undir á ógleyman-
legan hátt, kom til mín og sagði:
„Mig langar nú bara að taka utanum
þig!“ það var hlýtt faðmlag frá góð-
um manni. Kvöldið áður hafði hann
reynt kröftuga heilags anda snert-
ingu.
Trúin á Jesú, að hvort sem ég lifi
eða dey þá er ég Drottins, hélt hon-
um uppi í dauðastríði.
Snorri í Betel.
Smári Björnsson
✝ Björgvin Þór Guð-mundsson fæddist
á Seyðisfirði 26. sept-
ember árið 1957. Hann
lést á Landspítalanum
í Fossvogi 27. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Svanhvít
Hannesdóttir, f. í
Fagradal í Vopnafirði
17. janúar 1928 og
Guðmundur Vigfús
Björgvinsson, f. á Ket-
ilsstöðum í Jökuls-
árhlíð 1. maí 1925.
Systkini Björgvins eru
Rúnar, f. 1951, Guðríður Birna, f.
1952, Stefán Árni, f. 1954, Hannes
Sigurður, f. 1959, Hilma Lind, f.
1963 og Sólveig Dögg, f. 1965. Hálf-
systir Björgvins sammæðra er Vil-
borg Helgadóttir, f. 1970.
Sambýliskona Björgvins síðustu
tvo áratugi er Ingi-
björg Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir, f.
1953.
Björgvin bjó fyrstu
æviárin á Seyðisfirði
og síðan á Egils-
stöðum. Haustið 1962
flutti hann að Skála-
túni í Mosfellssveit og
bjó þar til 1980. Eftir
það bjó Björgvin á
sambýlum í Reykja-
vík á vegum Áss
styrktarfélags.
Lengst af í Auð-
arstræti 15. Björgvin var um tíma
nemandi í Þjálfunarskóla ríkisins
við Stjörnugróf. Hann vann í Bjark-
arási og síðar á vinnustofunni Ási.
Útför Björgvins fór fram frá
Digraneskirkju 6. ágúst.
Meira: mbl.is/minningar
Björgvin minn, ég trúi því ekki að
þú, þessi góði drengur, sért farinn.
Björgvin var alltaf hress og kátur,
það var gott að búa með honum og
gaman að kynnast honum. Við rædd-
um oft um daginn og veginn en við
unnum saman á Ási.
Ég vona að nú líði honum vel og að
Guð veri með honum. Hvíl í friði.
Þinn vinur,
Stefán sendill.
Ég kynntist Björgvini í Skálatúni
á síðustu öld. Hann var tíu ára gam-
all þegar ég kynntist honum. Hann
gerði stundum að gamni sínu þegar
vel lá á honum. Við fórum oft út að
labba í góða veðrinu og við löbbuðum
á hitaveitustokknum. Það var gaman
að ganga út í góða veðrinu í Skála-
túni. Gaman að vera úti með góðu
fólki en ég hafði mest kynnst honum.
Þá var oft gaman að vera til og tína
blóm í haganum. Björgin var vinur
minn í 42 ár. Við fórum oft í bíó um
helgar að sjá góða mynd í Háskóla-
bíói klukkan þrjú.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Þín vinkona
Ingeborg Eide Geirsdóttir.
Björgvin Þór
Guðmundsson
Ævi Guðrúnar Stef-
ánsdóttur móðursyst-
ur okkar var löng, far-
sæl og að sumu leyti
ströng. Minning okkar
um hana er samofin hugrenningum
okkar um Skuld, heimili móður-
ömmu og afa okkar. Skuld var vett-
vangur fjölskyldumeðlima, vina og
nágranna fyrir samveru, skeggræð-
ur og spil. Þessar minningar virðast
okkur systrabörnum Guðrúnar nú
fjarlægar í mósku tímans, frá því
löngu fyrir gos. En þetta eru góðar
minningar sem hafa búið notalega
um sig í hugarfóstri okkar.
Guðrún var elsta systir móður
okkar og ein fimmtán ár á milli
þeirra. Elsti sonur hennar, Stefán
eða Denni, var nánast eins og bróðir
mömmu. Þó að aldursmunirinn á
mömmu og Guðrúnu væri töluverður
var mjög kært á milli þeirra og
sterkur strengur. Heimili Guðrúnar
eftir að hún fluttist til Reykjavíkur
eftir gos var dýrmætt athvarf fyrir
okkur þegar við áttum erindi í bæ-
inn. Dyrnar og faðmurinn voru alltaf
opin og þegar Stefán bróðir okkar
hóf sitt háskólanám sinnti hún hon-
um eins og eigin syni. Hann snæddi
Guðrún Stefánsdóttir
✝ Guðrún Stef-ánsdóttir fæddist
í Reykjavík 30. júní
árið 1908.
Hún lést 13. ágúst
sl.
Útför Guðrúnar
var gerð frá Landa-
kirkju 5. september
sl.
ófáa málsverðina í
Tjarnarbólinu og á
sunnudögum var yfir-
leitt reitt fram lamba-
læri að hætti
„mömmu“. Erna syst-
ir okkar átti einnig
margar gistinætur hjá
Guðrúnu í sínum er-
indagjörðum í höfuð-
borginni þar sem
mörgum kvöldstund-
um var eytt í notalegt
spjall. Erna minnist
hennar ekki bara sem
frænku heldur vin-
konu og reyndar átti Guðrún þær
margar og á öllum aldri. Aldursmun-
ur var óþekkt fyrirbæri í þessu sam-
hengi.
Við minnumst hennar léttu lundar
og ríku kímnigáfu. Þó mikið hafi
reynt á hana í lífinu bar hún það ekki
utan á sér, yfir henni var reisn og
myndugleiki og alltaf var stutt í
hennar létta, vinalega hlátur. Þegar
systurnar þrjár, Guðrún, Eygló og
Minna, móðir okkar, komu saman
var mikið hlegið og gantast, gaman-
sögur sagðar af samferðafólki þar
sem eftirherman fékk að njóta sín.
Guðrún var heiðarleg og réttsýn
kona sem kom fram við samferða-
menn sem jafningja.
Við þökkum okkar góðu frænku
alla umhyggjuna, væntumþykjuna
og hlýjuna og kveðjum með miklum
söknuði. Blessuð sé minning Guð-
rúnar Stefánsdóttur frá Skuld.
Margrét Rósa, Erna, Tómas,
Stefán Haukur, Iðunn Dísa og
Ingunn Lísa Jóhannesarbörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns,
föður, tengdaföður og afa,
HALLDÓRS KRISTINS VILHELMSSONAR
söngvara og trésmiðs,
Furulundi 10,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítala Landakoti fyrir einstaka alúð og umhyggju í veikindum
hans.
Áslaug B. Ólafsdóttir,
Sigurður Halldórsson, Stefanía Adolfsdóttir,
Hildigunnur Halldórsdóttir,
Marta Guðrún Halldórsdóttir, Örn Magnússon
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR ÞORLÁKSDÓTTUR,
Hávallagötu 33,
Reykjavík.
Arnfríður Sigurðardóttir,
Erna Sigurðardóttir, Már Gunnarsson,
Ásgeir Sigurðsson, Marín Pétursdóttir,
Halldór Þorlákur Sigurðsson, Björg Jónasdóttir,
Kristín Huld Sigurðardóttir,
Erin, Patrick Steinn, Þór Sigurður, Fjóla, Sigurður,
Pétur Steinn, Sólveig, Kristín Auður, Aðalheiður Björg,
makar og langömmubörn.