Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 62
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Í UPPHAFI er rétt að vefengja þá skilgreiningu sem haldið er á loft af bakhjörlum RWWM (fjári gott nafn), að myndin sé fyrsti íslenski spennutryllirinn. Ekkert er fjær sanni. Upphaf „kvikmyndavorsins“ hófst með spennumyndinni Morð- sögu, síðan hafa þær verið nánast árlegur viðburður. Köld slóð, Mýr- in, Reykjavík Rotterdam, o.s.frv. RWWM er öllu frekar fyrsta „splat- ter“, eða blóðhrollurinn í íslensku kvikmyndaflórunni og ekki vonum seinna, þessi grein hefur notið furðu mikilla vinsælda frá því að hún stakk upp ófrýnilegum koll- inum í einhverjum mæli á 7. ára- tugnum. Samt sem áður er ekki um dæmigerða splattermynd að ræða (á borð við Hostel, Saw, The Texas Chainsaw Massacre, Halloween og allar hinar subbulegu eftirhreytur þeirra). Vissulega bregður fyrir suddalegum köflum þar sem blikar á flugbeitt axarkjagg og ofbeldi og kvalalosti taka völdin, en samt sem áður er RWWM í aðra röndina og engu síður groddaleg gamanmynd með talsverða áherslu á hina spaugilegu og kaldhæðnu hlið vandamálanna sem hópur ferða- langa víðs vegar að úr heiminum upplifir í því sem lagt var upp í sem venjulega hvalaskoðunarferð sem endar síðan í blóðdrifinni martröð. RWWM hefst á klassísku mið- bæjarfylliríi, síðan fyrir alvöru morguninn eftir niður við höfn, þar sem túrhestahópur bíður þess að hvalaskoðunarbátur taki hann upp og sigli út á flóann, á vit stórhvela. Þetta er sundurleitur söfnuður, gegnsýrður af óvild, vantrausti og fordómum. Hvalaskoðarar verða fyrir ýmiss konar áreiti, ekki síst frá vanheilum piltungi, sem mynd- ast við að pranga inn á þá útskurð- arverkum meðan beðið er bátsins. Um síðir birtist fleyið, langt á eft- ir áætlun. Eitthvað hefur farið úr- skeiðis því óásjálegur manndráps- bolli hefur verið dubbaður upp í hlutverk skoðunarskipsins, en far- þegunum er lofað glæstri hvalasýn og þeir drífa sig um borð. Þar ræð- ur ríkjum Pétur skipstjóri (Gunnar Hansen út Texas Chainsaw Massa- cre). Skyggni er slæmt, kapteinninn endar líf sitt hroðalega, eins og Raf Vallone í The Omen, og nokkrar slíkar vísanir hressa upp á atburða- rásina. Skoðunarferðin endar með ósköpum og obba ferðalanganna er bjargað um borð í gamallegt hval- veiðiskip. Þar ræður ríkjum morðóð fjölskylda fyrrum hvalfangara sem hafa verið sviptir lífsafkomu sinni fyrir tilstuðlan erlendra hvala- verndunarsinna, sem fjölskyldan setur undir einn hatt. Nú hugsar hún sér gott til glóðarinnar að ná fram hefndum á þessum slæp- ingjum. Fordæðan, mamman (Guð- rún Gísladóttir) og Tryggvi (Helgi Björnsson), elsti sonurinn, stýra blóðbaðinu. Hér er á ferðinni enn ein myndin byggð á sígildu hrollvekjuefni: Sak- lausu ferðamönnunum sem verða fórnarlömb geðveikrar, drápsglaðr- ar fjölskyldu. Framan af er myndin á góðri siglingu, minnir jafnvel ör- lítið á snilldarmyndina Deliverance, á meðan óvitalegir túristarnir eru að koma sér af stað út í óvissuna, jafnvel gáfnaskerti piltungurinn til staðar, þó hann taki ekki upp banjó- ið. Haldið er á vit framandi æv- intýra á aflóga dalli í dumbungs- veðri, fyrir stafni aðstæður sem þeir þekkja ekki hið minnsta. Hand- ritið lúrir á meinfýsnum at- hugasemdum farþeganna hver í garð annars, kynhneigð-ar- og kyn- Blóðbað í bugtinni Sambíóin Reykjavik Whale Watching Massacre (RWWM) bbmnn Leikstjóri: Júlíus Kemp. Aðalleikarar: Helgi Björnsson, Guðrún Gísladóttir, Stefán Jónsson, Gunnar Hansen, Pihla Vitala, Nae Yuuki, Miranda Hennessy,. Útlitshönnun: Eggert Ketilsson. Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson. Hljóð: Árni Gústafsson. Klipping: Sigurbjörg Jóns- dóttir. Kvikmyndatökustjóri: Jean-Noël Mustonen F.S.C. Handrit: Sjón. 90 mín. Ísland, Finnland, Bretland. Kisi ehf., Solarfilms Oy. Kvikmyndafélag Íslands ehf. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára Magnað og blóðugt framhald af Halloween sem Rob Zombie færði okkur fyrir tveimur árum. Hinn stórhættulegi og snargeðveiki raðmorðingi Michael Myers heldur áfram að myrða fólk á hrottalegan hátt! Bráðskemmtileg heimildarmynd um mestu goðsögn tískuheimsins, Önnu Wintour, fyrirmynd persónu Meryl Streep í myndinni The Devil Wears Prada. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBOGANU M 750kr. TILBOÐSVERÐ550 KR Á SÝNINGAR MERKTAR RAUÐU SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i. 16 ára The Taking of Pelham 123 kl. 6 B.i. 16 ára Time Travelers Wife kl. 8 B.i. 12 ára The Goods kl. 10 B.i. 14 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3 (300 kr.) LEYFÐ Karlar sem hata konur kl. 3 (600 kr.) B.i. 16 ára September issue kl. 6 - 8- 10 LEYFÐ Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 ára The Time Traveler´s Wife kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Stelpurnar okkar kl. 4 (550 kr.) LEYFÐ Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 ára Night at the Museum kl. 3:30 (300 kr.) LEYFÐ Gullbrá kl. 4 (300 kr.) LEYFÐ Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 4 (300 kr.) LEYFÐ G.I. Joe kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.12 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára The Goods, live hard.... kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 750 kr B.i.14 ára Night at the Museum kl. 4 300 kr LEYFÐ Taking of Pelham 123 kl. 5:30 - 8 - 10:30 750 kr B.i.16 ára Ice Age 3 (enskt tal) kl. 3:40 300 kr LEYFÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.