Morgunblaðið - 06.09.2009, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
SANDRA BULLOCK RYAN REYNOLDS
HHHH
– IN TOUCH
HHH
„HITTIR Í MARK.“
-S.V. MBL
BÓNORÐIÐ
HERE COMES THE BRIBE ...
THE PROPOSAL
33.000 MANNS
FRÁ FRUMSÝNINGU
FRÁSAM RAIMI
LEIKSTJÓRA EVIL DEAD OG SPIDER MAN
MYNDANNA SEM ER Í TOPPFORMI Í SINNI
BESTU KVIKMYND TIL ÞESSA!
GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI:
ENTERTAINMENT WEEKLY - 100/100
LOS ANGELES TIMES - 100/100
WALL STREET JOURNAL - 100/100
WASHINGTON POST - 100/100
FILM THREAT - 100/100
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNN
20.000 gestir
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHH
ÓTRÚLEGA VEL UNNIN
OG SKEMMTILEGUR
SVARTUR HÚMOR”
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
ÍSLENSKU LEIKARARNIR
HELGI BJÖRNSSON,
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
OG STEFÁN JÓNSSON
TRYGGJA
MISKUNNARLAUSA
SKEMMTUN FRÁ UPPHAFI
TIL ENDA.
„MISKUNARLAUS SKEMMTUN“
HHH
„...MARKAR NÝJA SLÓÐ
Í ÍSLENSKRI
KVIKMYNDAGERГ
ÓHT RÁS 2.
/ KRINGLUNNI
REYKJAVÍKWHALE.. kl. 6:10 - 8:20 - 10:20 16 G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 23D - 43D L
UP m. ensku tali kl. 5:503D - 83D - 10:103D L DIGITAL 3D THE PROPOSAL kl. 8:20 L
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 1:503D - 43D - 6:103D L DIGITAL 3D
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 1:50 - 4 L
PUBLIC ENEMIES kl. 10:20 16
/ ÁLFABAKKA
REYKJAVÍK WHALE WAT.. kl. 6 - 8 - 10 16 UP m. ensku tali kl. 8 L
REYKJAVÍK WHALE WAT.. kl. 3:40 - 8 - 10 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 1:30-5:50 LÚXUS VIP
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 8 - 11 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L
DRAG ME TO HELL kl. 8 - 10 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L
PUBLIC ENEMIES kl. 10 16 HARRY POTTER 6 kl. 2 - 5 10
G-FORCE m. ísl. tali kl. 2 - 4 L HANGOVER kl. 3:40 síðustu sýningar 12
THE PROPOSAL kl. 1:30 - 5:50 - 8- 10:20 L
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
ÖRN Elías Guðmundsson, eða bara
Mugison, er iðinn maður en hann var
venju fremur fjörugur í síðasta mán-
uði þegar hann hélt til að mynda
fimm tónleika í fimm hverfum New
York á einum og sama deginum.
Allt bar þetta svo til að Mugison
gaf Amnesty International helming
höfundarréttar á laginu „The Ani-
mal“ sem er á síðustu plötu hans,
Mugiboogie. Hann langaði svo að
ganga lengra og ákvað að gefa sam-
tökunum allan rétt á laginu, en þeg-
ar hann hafði svo samband við þau
kviknaði sú hugmynd að hann myndi
halda tónleika á vegum þeirra. Þar
sem hann var á leið til New York í
einkaerindum lá vel við að halda tón-
leikana þar og hví þá að takmarka
sig við eina tónleika?
Endasenst um Stóra eplið
Fjörið hófst á hádegi 18. ágúst síð-
astliðinn, en þá lék hann í tíbetsku
listasafni á Staten Island. Tveim
tímum síðar var hann kominn til
Queens, þrem tímum eftir það til
Bronx, þá var það Manhattan og svo
voru lokatónleikarnir í Brooklyn ell-
efu tímum eftir að allt byrjaði.
Mugison segir að þetta hafi gengið
merkilega vel þótt það hafi vitanlega
tekið talsvert á og hann meðal ann-
ars lést í öllum hamaganginum. „Ég
hafði mestar áhyggjur af því að ég
myndi missa röddina, en það var allt
í lagi,“ segir Mugison, en hverjir tón-
leikar voru um fimmtíu mínútur svo
hann hefur þá sungið samanlagt í um
þrjá klukkutíma.
Vatns- og víndrykkja
Annars segist hann ekki hafa haft
tíma til að hafa áhyggjur af neinu
þegar allt var farið af stað, það
komst ekkert annað að en spila,
pakka og keyra. „Þetta gekk annars
eins og í sögu og við vorum ekki of
seinir nema á eina tónleika og þá
skeikaði ekki nema tólf mínútum. Ég
drakk hrikalega af vatni yfir daginn,
veit ekki hvað það voru margir lítrar
í það heila, en þó veit ég að þar eftir
aðra tónleikana var ég búinn með á
fjórða lítra. Ég var hálfdauður í tvo
daga eftir þetta, en það skýrist
kannski af því að ég datt hrikalega í
það eftir síðustu tónleikana,“ segir
hann og hlær við. Grillaður Mugison var kampakátur eftir þolraunina, skiljanlega.
Mugison, sonur Súðavíkur, lék á fimm tónleikum í fimm hverfum New York á
einum degi Verkefnið var í gegnum Amnesty International
Úr Súðavíkinni í Jórvíkina
ROBBIE Williams kemur og fer úr
Popplandi með reglubundnum
hætti. Enn ein endurkoman er nú í
bígerð, en nýtt lag, „Bodies“, kem-
ur út í október, fyrsta smáskífa
hans síðan 2007. Robbie sparar
ekki túlann fremur en vanalega og
segir að þessi næsta plata muni
„ákvarða örlög sín“, hvað sem það
nú þýðir. „Bodies“ mun svo prýða
Reality Killed The Video Star,
væntanlega breiðskífu kappans, en
sú síðasta, Rudebox (2006) floppaði
allsvakalega. Það er Trevor Horn
sem upptökustýrir (Frankie Goes
To Hollywood). Robbie hefur líka
lýst því yfir að hann hafi áhuga á að
starfa á ný með gömlu félögunum
sínum í Take That á einhverjum
tímapunkti. Jamm...
Kominn aftur Robbie Williams
Robbie úr roti