Saga - 1952, Page 27

Saga - 1952, Page 27
285 líkur sér í óhag, þá var sök hennar alls ekki sönnuð hvorki samkvæmt þágildandi lögum né núgildandi. Það hefði átt að dæma henni tylft- areið, eins og áður er sagt, og málsúrslit áttu svo að fara þar eftir. Jafnframt dauðadómi um Þórdísi dæmdu um- boðsdómendur Tómas Böðvarsson einnig til dauða fyrir samfarir við mágkonu sína Þórdísi, jafnskjótt sem hann kynni að nást. Tómas hafði ekki verið tekinn til rannsaks, svo að kunnugt sé, nema hvað fógeti bar hann sök á Vallalaugar- þingi, enda hafði hann boðið eið bæði á alþingi 1609 og á téðu þingi. Byggðarrómur hefur sjálf- sagt beinzt að honum. In raunverulega synjun Þórdísar um faðernislýsingu, pyndingarlýsing hennar á Vallalaugarþingi og brottreið hans af þinginu fal í sér líkur gegn honum, sem leiða máttu til þess, að honum yrði dæmdur tylftar- eiður til synjunar samfara við Þórdísi. En þessi atriði voru alls ónóg til þess að byggja á þeim dauðadóm, eins og umboðsdómendur gerðu. Og dómendur brutu þá einnig íslenzk lög með upp- kvaðningu þessa dóms yfir Tómasi. Það var því engin furða, þó að mönnum þætti ekki dæmt að íslenzkum lögum, enda segir Björn á Skarðsá svo: „Þóttust þá flestir ekki ná íslenzkum lög- um'1.1) Sagt er, að Jón lögmaður Sigurðsson, sem umboðsdómendur dæmdu af embætti 2. júlí á alþingi, hafi lýst yfir því, að hann væri beitt- ur ólögum, með því að hann hefði þegar bætt fyrir þá sök, sem hann var borinn, og hafa um- boðsdómendur engan dóm kveðið upp eftir það, heldur farið þegar af þingi og voru komnir til 1) Annales Isl. I. 209.

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.