Saga - 1952, Blaðsíða 37
295
þeira synjuðu þess.“ Um vorið fór Þorvarður
norður til Eyjafjarðar, en Yngvildur fór frá
Sælingsdalstungu og gerði bú að Ballará. Þar
lét bún búa sér sérstakt svefnhús og var þar
löngum. Hún hafði fótarmein um sumarið og
sýslaði lítt um bústörf.
Um haustið „at sex vikum"1) kom að Ballará
kona úr Eyjafirði, Þórdís Leifsdóttir að nafni.
Eftir skamma dvöl ól hún meybarn, sem nefnt
var Sigríður, og faðir þess Þorsteinn Þorleifs-
son, norðlenzkur maður. Um haustið fór Þórdís
aftur til Eyjafjarðar og tók meyna með sér
Meðal fólks féll sá grunur á, að ekki mundi
allt með felldu um barnsfæðing Þórdísar, „ok
gerðu menn margort um ráð þeirra Þorvarðs
ok Yngvildar", segir Sturlu saga. Höfundur
Laxdælu orðar aftur í 34. kap. orðróminn um
samdrátt Þórðar Ingunnarsonar og Guðrúnar
á þessa leið: „ok fell þar mörg umræða á um
kærleika þeira Þórðar ok Guðrúnar".
Ef skrafið um Þorvarð og Yngvildi hafði við
sannindi að styðjast, var hér næsta alvarlegt
mál á ferðinni og það á fleiri vegu, þótt höf.
Sturlu sögu leiði alveg hjá sér að skýra málið
frá þeirri hlið. Fyrst og fremst voru samfarir
milli þeirra í meinum — frændsemis spell hið
meira —, því að þau voru þremenningar að
frændsemi þannig:
1) Það má minna á það hér, að í 68. kap. Laxdælu
segir, að brúðkaup Þorkels og Guðrúnar hafi verið
að Helgafelli hjá Guðrúnu eftir kröfu hennar, „at
sex vikum sumars“.