Saga - 1952, Page 71

Saga - 1952, Page 71
329 biskup „greinilega öll leyndarmál fyrir Þor- valdi, áðr þeir skildust, þau er honum mátti nauðsynleg þikkja, sum til leyndar, en sum til uppburðar eftir sinn dag"1). Lítill vafi getur á því leikið, að Klængur biskup hefur borið sig að á sama hátt sem hér var sagt, er hann taldi rétt að láta það uppi, að hann væri faðir meybarns þess, er Yngvildur Þorgilsdóttur hafði þá fætt. Engum blöðum er heldur um það að fletta, hver sá trúnaðarmaður var, er geyma skyldi þetta leyndarmál til réttrar stundar. Það hefur verið Gizur Hallsson. En vera má, að Jón Loftsson hafi einnig verið trúnaðar- maður biskups um þetta mál. „Þeir váru hans vinir traustastir", segir Hungurvaka, og enn- fremur mest virðir á Islandi. Þótt barneign biskupsins hafi líklega með þessum hætti verið leynt fyrir alþýðu manna um hans daga, er ekki ósennilegt, að eitthvað hafi kvisast um samband hans og Yngvildar, er hún hafði fætt barn sitt. Vér vitum þó ekk- ert um, hvar hún hefur dvalizt á þessum árum og hinum næstu, meðan Jóra var í bernsku. 1 Hungurvöku segir: „Klængur biskup hélt allt til elli vegsemd sinni ok vinsældum, svá at all- ir virðu hann mikils, þeir er mest váru verðir“. Þessi frásögn er etfirtektarverð. Eftir allri lýsingu höfundar á þessum biskupi, hefði hún átt að vera óþörf. Setningin vekur því grun um, að hér leynist á bak við orðin sú stað- reynd, að biskup hafi einhvern hnekki beðið á virðingu sinni meðal sumra manna. Er ekki 1) Bisk. I. 295 og 296.

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.