Saga - 1952, Page 72

Saga - 1952, Page 72
330 ólíklegt, að einmitt orðrómur um barneign hans hafi verið orsök þessa. Telja má nokkurn veginn víst, að þetta atvik, þótt vitnazt hafi, muni eigi hafa orðið til þess að skerða vin- sældir og virðingu biskupsins meðal höfðingj- anna. Margir þeirra höfðu sjálfir kirkjulegar vígslur, voru djáknar og prestar, og létu leika nokkuð á lausu í kvennamálunum. Kirkjuleg þjónusta og veraldleg völd fóru saman. Og hinir vígðu höfðingjar hafa skilið það til hlít- ar, að jafnvel biskupsvígsla afmáði ekki mann- legt eðli um ástir karls og konu. Þess verður eigi vart, að það hafi verið talið foreldrum til vanza að eiga bam í þremenningsmeinum, þótt skóggang varðaði að lögum, enda mátti bæta fyrir þá yfirsjón með fjárútlátum til lögrétt- unnar og biskups. En hvað sem þessu líður, og hvort sem þessi barneign biskupsins hefur verið á vitorði fleiri eða færri og virðing hans liðið við það hjá einhverjum, má telja það víst, að þessi atburð- ur hafi fengið mjög á biskupinn sjálfan og breytt lifnaðarháttum hans. Eftir fyrri frásögn höfundar Hungurvöku kemur hann lesandanum á óvart, er hann skýrir frá því, að Klængur biskup hafi í mörgu lagi verið meinlátsamari en aðrir biskupar höfðu verið, í vöku, föstum og í klæðabúnaði. Hann hafi oft gengið ber- fættur um nætur í snjóum og frostum. Ólíklegt er það, að biskupinn hafi iðkað þenna mein- lætalifnað á sama tíma biskupsdóms síns og hann hélt hóflitlar veizlur og bar af í kæti og gannaði sér og öðrum á keskifimi. Getur ekki hjá því farið, að lífsvenjubreytinguna hafi

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.