SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Blaðsíða 47
25. apríl 2010 47
LÁRÉTT
1. Vonarsteinar reynast vera betlistafur sem er
ekki gott að vera á. (10)
5. Leikfélag sonar Dags? (9)
8. Drabbar líkt og erlendir menn. (6)
9. Dýrgrip passi eins og krás. (9)
11. Um kind syngi og fastráði. (6)
12. Þornaðir þegar hitaði. (6)
14. Borga sem einn af liðlegheitum. (10)
15. Bæjarhluti fari í burtu. (6)
19. Geisla stoðvef eða sveif. (10)
20. Biskupstíund er á mörkum þess að gera býs-
anska mynt. (6)
22. Setti innra tvö þúsund að einum meðtöldum í
umgerð. (10)
23. Blóm sem er líka þekkt sem kvæði. (5)
24. Píla söngvara er þreytt. (7)
27. Þel Bandaríkjamanns er blanda. (7)
28. Fiskur í fiskatali. (5)
30. Ábending vegna maskínu er blekking. (6)
31. Veikur í kinnum sér rakið. (10)
32. Sólguð gaffla vekur afl. (7)
33. Hurðarás felur í sér hæð þakta grjóti. (7)
34. Ryk mömmu veldur örbirgð. (7)
LÓÐRÉTT
1. Þjónastarf á veiðitíma. (6)
2. Notast slík á hverju ári sem óvenjuleg. (9)
3. Lendingarstaðarstaður á andliti okkar. (3)
4. Sofi Lúðvík. (5)
6. Skurðbrúnin á fuglaafurðunum. (5)
7. Bolurinn í bænum. (5)
9. Herfan fékk Gunnar til að sýna ránsfeng. (7)
10. Æða þótt það sé veðurofsi. (10)
13. 2 x 1501 einhvern veginn varð myrkt. (6)
14. Festing missir net við að verða að steypuefni.
(4)
15. Óvilhallur hefur ekki grip. (8)
16. Greiða fyrir hana er sérstök hárgreiðsla. (10)
17. Magi kenndur við mann reynist vera páka. (10)
18. Stýrið inn til að lakka. (9)
20. Náttúrugreind sem konur hafa en ekki karlar?
(9)
21. Töframatur er stórkostlegur. (11)
25. Afkvæmi páfagauka eru háðfuglar. (8)
26. Tómar ná í kenningu yfir konu. (7)
29. Fimma raka í einhvers konar hrogn. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 25. apríl
rennur út fimmtudaginn 29. apríl.
Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 2. maí.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinn-
ingshafi krossgátunnar 18. apríl sl. er Hall-
grímur Axelsson. Hann hlýtur í verðlaun bókina
Hvíti Tígurinn eftir Aravind Adiga. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Eldgosið í Eyjafjallajökli varð til
þess að skipuleggjendur heims-
meistaraeinvígis Anands og
Topalovs í Sofia í Búlgaríu féllust
á að fresta einvíginu um einn dag
en Anand hafði áður beðið um
þriggja daga frestun vegna erf-
iðleika með að komast frá Spáni
þar sem hann býr. Eiginkona
Anands, Aruna, greip til þess
ráðs að pakka föggum heims-
meistarans í stóran sendiferðabíl
og síðan var ekið í gegnum Evr-
ópu. Tók sú ferð 40 klukkutíma.
Fyrstu skák einvígisins átti sam-
kvæmt nýrri dagskrá að tefla í
gær, laugardag og Topalov með
hvítt. Þeir munu tefla 12 skákir.
Anand er af mörgum talin sig-
urstranglegri vegna meiri
reynslu í löngum einvígjum. Þeir
hafa teflt 44 kappskákir, Topalov
hefur unnið ellefu sinnum, An-
and tíu sinnum og þeir hafa gert
23 jafntefli. Topalov lét þess get-
ið í viðtali á dögunum að þeir
Anand hefðu sl. fimm ár borið
höfuð og herðar yfir aðra skák-
menn og einvígi þeirra væri eðli-
legt uppgjör bestu skákmanna
heims.
Í því einvígi sem framundan er
liggur ljóst fyrir að báðir kepp-
endur munu fullnýta þann öfl-
uga hugbúnað sem skákmönn-
um stendur til boða. Samkeyrsla
fjölmargra forrita til að fá nið-
urstöður í flóknum byrjunum er
krafa dagsins. Anand var að
þessu leyti mun fremri Vladimir
Kramnik í heimsmeistaraeinvíg-
inu í Bonn 2008.
Þó að Anand hafi vakið athygli
í skákheiminum þegar árið 1986
einkum þó fyrir hversu fljótur
hann var að leika, taldi hann í
viðtali sem Riz Khan átti við
hann á sjónvarpsstöðinni Alja-
zeera á dögunum að árið 1987
hafi markað þáttaskil fyrir sig
hvað skákferilinn varðaði. Þá
varð hann heimsmeistari ung-
linga og var einnig útnefndur
stórmeistari, fyrstur Indverja.
Af mörgu er að taka frá þess-
um árum en þegar greinarhöf-
undur sló upp í gagnabanka kom
á daginn að þetta ár tefldi hann
við Ingvar Ásmundsson á World
Open í Bandaríkjunum. Þetta var
hörkuskák og Ingvar gaf sig
hvergi þó að hann hafi fengið
erfiða stöðu eftir byrjunina.
Sennilega hefur Anand verið of
fljótur á sér að hafna 26. Rxc5
bxc5 27. Hd7 Hc8 því 28. g4! Kf8
29. f5 gefur honum góða vinn-
ingsmöguleika. Annar vendi-
punktur kom í 38. leik, Anand
hefði átt að skjóta inn 38. fxg7+.
Svo var mikill bægslagangurinn
þegar Anand tefldi á þessum ár-
um að hann átti stundum erfitt
með að „bremsa sig af“. Í enda-
taflinu sem upp kom gat Ingvar
náð jafntefli með 39. … Rd6! því
40. a4 standar á 40. … Ke7 og
riddarinn á b6 á aðeins a8-
reitinn. Aftur missir Ingvar af
jafntefli í 41. leik með Kc7 í stað
41. … c4.
Philadelphia 1987:
Wisvanathan Anand – Ingvar
Ásmundsson
Aljékíns vörn
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4.
Rf3 Bg4 5. Be2 e6 6. 0-0 Be7 7. c4
Rb6 8. Rc3 O-O 9. Be3 R8d7 10.
b3 dxe5 11. Rxe5 Bxe2 12. Dxe2
Rxe5 13. dxe5 Rd7 14. Had1 Dc8
15. f4 Bc5 16. Re4 Bxe3 17. Dxe3
Hd8 18. h4 Rf8 19. h5 h6 20. Dc5
Hd7 21. Db4 b6 22. Da4 Dd8 23.
Hxd7 Dxd7 24. Dxd7 Rxd7 25.
Hd1 Rc5 26. Rc3 a6 27. b4 Rb7 28.
Hd7 Hc8 29. f5 Rd8 30. b5 axb5
31. cxb5 Kf8 32. f6 Rb7 33. Re4
Ra5 34. Hd4 c5 35. Hd7 Rc4 36.
Rd6 Rxe5 37. Hxf7 Rxf7 38. Rxc8
gxf6 39. Rxb6 Ke7 40. Ra4 Kd6
41. Rc3 c4 42. a4 Kc5 43. a5 Rd6
44. b6 Kc6 45. g4 Kb7 46. Kf2
Ka6 47. Ke3 f5
48. g5 hxg5 49. h6 e5 50. h7 Rf7
51. Ra4 Kb7 52. Rc5 Kc6 53. b7
Kc7 54. a6
– og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Eldgos tefur heimsmeistaraeinvígi
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang