SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Page 53
25. apríl 2010 53
Penguin í Ástralíu gaf út bók
og kallaði „Pastabiblíuna“,
sem er í sjálfu sér ekki í frá-
sögur færandi. Það sem þykir
fréttnæmt er þó það að í vik-
unni lét fyrirtækið eyða öll-
um þeim eintökum sem það
átti af bókinni á lager, 7.000
bókum alls, vegna prentvillu í
einni uppskriftinni.
Í uppskrift að tagliatelle
með sardínum og prosciutto
skinku stóð nefnilega að í
uppskriftina skyldi nota salt
og nýmalað svart fólk („freshly ground
black people“ upp a ensku). Þó að ólíklegt
sé að nokkur reyndi að fylgja uppskriftinni í
ystu æsar þótti þetta þvílík hneisa að ekki
væri annað verjandi en að eyða því sem til
væri af bókinni.
Ekki gekk fyrirtækið þó svo
langt að innkalla bókina úr
verslunum, sögðu að það væri
of mikið umstang, en kostnaður
af eyðingunni samsvarar um
fimm milljónum króna.
Þeim sem keypt hafa bókina
eða kaupa hana í bókaversl-
unum stendur til boða að fá
henni skipt út fyrir nýja úgáfu
eða endurgreidda, en útgáfu-
stjóri Pengurin í Ástralíu segist
þó telja ólíklegt að nokkur sé
svo smámunasamur, eins og
hann orðaði það.
Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast þó
miður sín yfir þessu slysi. Í viðtali við út-
gáfustjórann kom í ljós að leiðrétting-
arhugbúnaði væri um að kenna og ekki væri
við prófarkalesara að sakast.
Kostnaðarsöm prentvilla í pastauppskrift
Nýmalað svart fólk
Pastabiblía með ókræsi-
legri uppskrift.
New York Times
1 Changes - Jim Butcher
2 The Help - Kathryn Stockett
3 Caught - Harlan Coben
4 The Walk - Richard Paul Ev-
ans
5 A River in the Sky - Eliza-
beth Peters
6 Silver Borne - Patricia
Briggs
7 House Rules - Jodi Picoult
8 The Black Cat - Martha Gri-
mes
9 Deception - Jonathan Kell-
erman
10 Matterhorn - Karl Marlantes
Waterstones
1 The Girl Who Kicked the
Hornets’ Nest - Stieg Lars-
son
2 The Return: Nightfall –
Vampire Diaries (bókaröð)
#5 - L.J. Smith
3 Wolf Hall - Hilary Mantel
4 61 Hours - Lee Child
5 The Perfect Murder - Peter
James
6 The Immortals: Blue Moon -
Alyson Noel
7 The Short Second Life of
Bree Tanner - Stephenie
Meyer
8 Tempted – House of Night
(bókaröð) #6 - Kristin Cast
9 Burned – House of Night
(bókaröð) #7 - P.C. Cast,
Kristin Cast
10 One Day - David Nicholls
Eymundsson
1 8th Confession - James
Patterson
2 Ford County - John Grisham
3 Fear The Worst - Linwood
Barclay
4 Take a Chance On Me - Jill
Mansell
5 501 Must-See Destinations
- Bounty Books
6 Blindman’s Bluff - Faye
Kellerman
7 Readers Digest Atlas of the
World - Readers Digest
8 The Complaints - Ian Rank-
in
9 Purge - Sofi Oksanen
10 Eclipse - Stephenie Meyer
Bóksölulisti
C
harlaine Harris er sannkölluð
bókafabrikka, hefur skrifað á
fimmta tug bóka og það með
góðum árangri því bækur henn-
ar eru tíðir gestir á metsölulistum vestan
hafs. Hún skrifar gjarnan bókaraðir þar
sem sömu persónur eru í aðalhlutverkum
og þá líklega þekktust bókaröðin um
gegngilbeinuna skyggnu Sookie Stack-
house, fyrsta bókin í röðinni kom út 2001
og á íslensku nú fyrir stuttu.
Bækurnar um Sookie Stackhouse eru nú
orðnar ellefu og segja allar frá ævintýrum
Sookie með vampírunni sem hún elskar og
vinum hennar og óvinum, auk þess sem
fjölskylda hennar kemur nokkuð við sögu.
Fyrsta bókin í röðinni, sú sem hér er tekin
til kosta, vann til nokkurra verðlauna sem
besta ævintýrabók ársins og átti það skilið
því Harris tekst bærilega að flétta saman
ofbeldi, óhugnað og spennu og krydda
rækilega með léttbláum kynlífslýsingum.
Bækurnar gerast í Suðurríkjum Bandaríkj-
anna, nánar tiltekið í Louisiana, og fólkið
flest því marki brennt, hálfgerðar teikni-
myndapersónur, nett úrkynjaðar og hæfi-
lega siðspilltar. Lífið gengur meira og
minna út á brennivín og kynlíf og af því
síðarnefnda er meira en nóg, svo mikið
reyndar að maður verður hálf leiður á
endalausum hvílubrögðum Soookie og
vampírunnar hennar.
Að því sögðu þá er sagan spennandi og
vekur áhuga á að lesa meira, sérstaklega
hvað varðar heim vampíranna sem verður
væntanlega betur útskýrður í næstu bók-
um, en tilvist þeirra er skýrð bærilega,
ekkert yfirskilvitlegt, bara vírus. Annað
sem kemur við sögu er ekki leyst eins vel,
en kemur ekki að sök. Eini gallinn á bók-
inni er það hver aðalóþokkinn er – full
billegt fyrir minn smekk.
Bækur
Dauð þar til dimmir
bbbnn
Eftir Charlaine Harris. JPV
gefur út, Halla Sverrisdóttir
þýddi.
Árni Matthíasson
Atriði úr True Blood sjónvarpsþáttaröðinni, sem notið hefur hylli vestan hafs en þeir þættir
eru byggðir á bókaröðinni um Sookie Stackhouse og vampíruna sem hún elskar .
Ofbeldi, óhugnaður og kynlífslýsingar
Ég er að ljúka við bók núna sem heitir Zen
& The Art of Motorcycle Maintenance eft-
ir Robert M. Pirsig frá árinu 1974. Hún er
að hluta til sjálfsævisöguleg og fjallar um
mann sem ferðast ásamt syni sínum á
mótorhjóli þvert yfir Bandaríkin.
Frásögnin er í raun tvískipt, annars veg-
ar fylgjumst við með vélhjólaferðalaginu
sjálfu og hins vegar með heimspekilegum
hugrenningum ferðalangsins. Og þessar
hugrenningar eru ekki svo léttvægar því í
raun er Pirsig þarna að setja fram nýtt
heimspekikerfi sem hann síðan útvíkkaði
enn frekar í næstu bók sinni Lila.
Þessi bók sló í gegn þegar hún kom út
og seldist í milljónum eintaka en Pirsig
hefur aðeins skrifað þessar tvær bækur.
Þegar ég verð búinn með „Zen og við-
hald mótorhjóla“ þá bíður mín bók sem
heitir Eating Animals og er eftir Brook-
lyn-höfundinn unga Jonathan Safran-Foer
sem er í talsverðu uppáhaldi hjá mér. En
þetta er reyndar ekki skáldsaga heldur er
Safran-Foer í þessari bók að kanna undir-
heima matvælaiðnaðarins eins og er mikið
í tísku þessi misserin. Ég kem reyndar
nokkuð vel undirbúinn að þessari bók því
ég las nýverið bókina Omnivore’s Di-
lemma eftir Michael Pollan sem vakti
mikla athygli í Bandaríkjunum þegar hún
kom út árið 2006.
Hún fjallar á mjög ítarlegan hátt um
matvælaiðnaðinn í Ameríku og þá brengl-
aðu matarmenningu sem er viðhaldið af
stórfyrirtækjum og yfirvöldum þar og víða
í hinum vestræna heimi.
Spurningin er hvort bók Saffran-Foer
nái að breyta mér í grænmetisætu. Ég held
ég muni þó seint fúlsa við íslensku fjalla-
lambi, krydduðu á fæti. Eða hvað?
Lesarinn Daníel Bjarnason tónskáld
Zen og matvæla-
iðnaðurinn
Bandaríski heimspekingurinn og rithöfund-
urinn Robert Maynard Pirsig.
Wikipedia/Ian Glendinning
Drekar spú eitri
en eru sem betur fer
flestir úr pappír
og eitrið rjátlast af manni.
Við verðum þó
að hafa þykkan skráp
svo að eitrið komist
ekki inn í sálina
því að þá verður drekinn glaður
og við vansæl.
Við skulum reyna
að brynja okkur með ást.
Ljóðið er úr nýrri bók Þórs, 2009
Ljóð. Í henni birtist dagbók hans fyrir
árið 2009 en skáldið einsetti sér að
yrkja eitt ljóð á dag allan ársins hring
og sækja yrkisefnið í fréttir líðandi
stundar eða hvunndag sjálfs sín.
24. apríl –
Drekar
Þór Stefánsson