SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Side 15
23. maí 2010 15
minnistap er langoftast fyrsta ein-
kenni um Alzheimer-sjúkdóm en
ekki endilega um aðra heilabil-
unarsjúkdóma.“
Önnur einkenni um Alzheimer eru
frá aftari hluta heilans; málstol,
verkstol, sjónskynstol (t.d. það að
þekkja andlit) og rýmdarskynjun (að
geta teiknað, ratað eða að hafa til-
finningu fyrir stærð bíls sem sjúk-
lingur keyrir).
Einkenni æðavitglapa eru hins
vegar frá framheila, annaðhvort
framtaksleysi eða ofvirk hegð-
unarvandamál.
„Skerðing á flóknari vitrænni
getu er t.d. að geta ekki hugsað
óhlutbundið, skilið rök og reiknað,
dómgreindar- og innsæisleysi,
skipulags- og stýritruflanir, t.d. að
skipuleggja daginn, vera sveigj-
anlegur í hugsun og samskiptum.“
Sérhæfð meðferð til að hægja á
Alzheimer-sjúkdómi er ekki til. Helst
eru bundnar vonir við bólusetningar,
en slíkar rannsóknir eru farnar af
stað aftur eftir erfiðar aukaverkanir.
Hins vegar er möguleiki á að hægja
á æðavitglöpum með lyfjagjöf.
usta gekkst fyrir á dögunum.
Hún segir öllu máli skipta að
sjúklingurinn fái að halda reisn
og að mikilvægasta verkefni að-
standandans sé að tryggja að svo
sé. „Ef ég ætti svo að gefa fólki
góð ráð væri það að sýna þol-
inmæði og að muna eftir húm-
ornum.“
Ragnheiður Elín segir að eftir
á að hyggja hafi Alzheimer-
einkenna fyrst orðið vart hjá
móður hennar um 1990, þegar
hún var um sextugt. „Við átt-
uðum okkur samt ekki á því
strax. Einkennin koma smátt og
smátt í ljós og það er eitt af því
sem gerir sjúkdóminn svo erf-
iðan.“
Hólmfríður vann árum saman
sem aðalbókari Sparisjóðsins í
Keflavík og Ragnheiður Elín
hugsar til þess með hlýhug
hvernig forráðamenn sjóðsins
komu fram við móður hennar.
„Eftir að mömmu fór að hraka
voru ákveðin verkefni færð frá
henni en hún sinnti öðrum í
staðinn. Hún fór í vinnuna,
hafði sína skrifstofu og sinn titil;
var aldrei beðin um að hætta en
einn daginn ákvað hún það sjálf
á eigin forsendum. Hún hélt
sinni reisn og fyrir það er ég for-
ráðamönnum Sparisjóðsins
óendanlega þakklát.“
Ragnheiður Elín segist sjá
mest eftir því, í samskiptum við
móður sína, að hafa ekki verið
nógu þolinmóð. „Ég var sjálfs-
elskur unglingur, rúmlega tví-
tug, og á í minningunni fullt af
setningum sem ég vildi óska að
ég hefði ekki sagt; Mamma, ég
var búin að segja þér þetta
hundrað sinnum … Móðir mín
var stórkostleg kona og ég vildi
að ég hefði áttað mig á því að
þetta lét henni líða verst; hún
hefur örugglega fundið að hún
var að að missa stjórnina en ég
nuddaði henni upp úr því. Ekki
af illgirni, heldur af hugs-
unarleysi og vanþekkingu.“
Hún ráðleggur þeim sem þurfa
að standa í þessum sporum að
gera það ekki að stórmáli að
hafa sagt hlutinn áður. „Með því
að leika leikritið; tala um sama
hlutinn aftur og aftur þá líður
viðkomandi betur og það eitt og
sér er næg ástæða.“
Fjölskyldan þekkti sjúkdóm-
inn vegna þess að móðir Hólm-
fríðar hafði einnig fengið hann.
„Þegar við Eiríka systir heim-
sóttum ömmu talaði mamma
um að hún vildi ekki verða
svona; sagði að við yrðum að sjá
til þess að hún fengi frekar
sprautu en þurfa að glíma við
þennan sjúkdóm. Þegar að því
kom gátum við það auðvitað
ekki, en ég viðurkenni alveg að
ég hugsaði mjög oft um þetta
samtal,“ segir Ragnheiður Elín.
Hún nefndi að ágætt hefði
verið að heyra lækni taka svo til
orða á ráðstefnunni, að sjúk-
dómurinn væri ekki endilega
ættgengur, „en tölfræðin er
okkur í fjölskyldunni ekki í hag.
Amma var svona, bróðir hennar
líka, mamma og nú er systir
mömmu á sömu leið.“
Ragnheiður Elín sagði í upp-
hafi að Alzheimer-sjúkdóm-
urinn rændi fólk persónuleik-
anum. „Því sem gerir mig að því
sem ég er. Í mínu tilfelli yrði það
tákn þess að ég væri komin út úr
heiminum ef ég sæti á hjúkr-
unarheimilinu að borða agúrku!
Ég borða ekki agúrkur og hef
aldrei gert, mér finnst þær
vondar, og þess vegna hef ég nú
þegar beðið alla sem ég þekki og
myndu hugsanlega koma í
heimsókn að gefa mér ekki
gúrku …“
’
Mamma sagði að við yrðum að
sjá til þess að hún fengi frekar
sprautu en þurfa að glíma við
þennan sjúkdóm. Þegar að því kom
gátum við það auðvitað ekki, en ég
viðurkenni alveg að ég hugsaði mjög
oft um þetta samtal
Síðustu sýningar vorsins
Skemmtilegar sýningar sem koma þér í sumarskap
„Mátti ekki vera betra“
BS, Pressan.is
IÞ, Mbl „Skemmtileg sýning“
EB, Fbl
„Dúndursýning“
EB, Fbl
„Hörkustuð“
IÞ, Mbl
„Guðjón Davíð Karlsson
vinnur leiksigur í
aðalhlutverkinu“
JVJ, DV
Dúfurnar
22. maí kl. 20 UPPSELT
28. maí kl. 20 UPPSELT
30. maí kl. 20 UPPSELT
3. júní kl. 20 örfá sæti
4. júní kl. 20 örfá sæti
5. júní kl. 20 örfá sæti
11. júní kl. 20
12. júní kl. 20 Síðasta sýning
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gauragangur
22. maí kl. 20 UPPSELT
28. maí kl. 20 UPPSELT
30. maí kl. 20 UPPSELT
4. júní kl. 20 UPPSELT
5. júní kl. 20 UPPSELT
11. júní kl. 20 örfá sæti
12. júní kl. 20 örfá sæti