SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Qupperneq 18
Á
rlegt töfrakvöld HÍT fór fram í Salnum á fimmtudagskvöldið. Þetta er fjórða
kvöldið sem HÍT stendur fyrir og eitthvert það glæsilegasta frá upphafi. HÍT
er skammstöfun á Hið íslenska töframannagildi og voru samtökin stofnuð
29. febrúar 2007 og eru hluti af alþjóðlegum samtökum töframanna, Int-
ernational Brotherhood of Magicians. Tilgangur félagsins er að vera vettvangur áhuga-
fólks um töfra og töfrabrögð, að auka áhuga á töfrum og töfrabrögðum í samfélaginu
og að bæta þekkingu og færni félagsmanna í töfrabrögðum. Þetta hefur áreiðanlega
tekist í Kópavoginum þar sem fólk á öllum aldri fylgdist með brögðunum.
Aðalgestur kvöldsins var sænski heimsmeistarinn Lennart Green, heimilislæknir í
næstum tvo áratugi, en hann ferðast nú um allan heim og heldur bæði töfrasýningar
fyrir almenning og fyrirlestra fyrir töframenn. Einnig voru Einar Mikael, Bergvin
Jónsson, Lalli töframaður og Jón Víðis með atriði. Svo má ekki gleyma séranum en
Pétur „óháði“ Þorsteinsson var hnepptur í spennitreyju á sviðinu og kepptist við að
losa sig á sem stystum tíma.
Kynnir kvöldsins var hinn óviðjafnanlegi áhugatöframaður Eiríkur Fjalar. Hann
hefur æft töfrabrögð í yfir 30 ár og skemmtu áhorfendur sér yfir brögðum hans sem
sum heppnuðust betur en önnur.
Áður en gamanið hófst skemmtu töframenn á vegum HÍT gestum Salarins frammi á
gangi og einnig í hléi og vakti það mikla lukku gestanna á þessari fjölskyldusýningu.
Nánari upplýsingar um HÍT er að finna á toframenn.is.
Eiríkur Fjalar var stress-
aður baksviðs áður en
sýningin hófst.
Það fer Eiríki Fjalari
vel að munda töfra-
sprotann.
Gestir gátu fylgst með
spilagöldrum heims-
meistarans Lennarts
Green á stóru tjaldi á
sviðinu.
Ungir gestir skemmtu
sér vel yfir töfrabrögð-
um, sem hægt var að
fylgjast með í návígi,
áður en sýningin hófst.
Töfrandi
kvöldstund
Árlegt töfrakvöld Hins íslenska töframannagildis
var haldið í Salnum á fimmtudagskvöldið og
voru áhorfendur töfraðir uppúr skónum með
spilagöldrum, sjónhverfingum og dúfnabrellum.
Myndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Bak við tjöldin