SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 23

SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 23
24. október 2010 23 þessa vídeóleigu eftir föður sinn. Hann er prentsmiður að mennt og vill í fyrstu bara losna við búðina. Síðan vex hún utan á honum.“ Siggi á sér gamlan draum. „Hann hefur lengi langað að spreyta sig sem einka- spæjari og notar þetta tækifæri til að láta slag standa. Hann setur spurningamerki við dauða föður síns og fer að rannsaka málið. Það spyrst út og fyrr en varir er hann komin með fjölmörg mál inn á borð til sín. Sum þeirra teygja anga sína upp í hæstu hæðir,“ segir Pétur og talar skyndi- lega í véfréttarstíl. Ýmsar hliðarsögur eru sagðar og fjöl- margir karakterar láta ljós sitt skína. Þeirra á meðal afgreiðslumaðurinn Anton, sem Vignir Rafn leikur, og Sómastúlkan, leikin af Ágústu Evu Erlendsdóttur, sem hefur það hlutverk með höndum að bæta á Sómasamlokurnar á vídeóleigunni. Þjóðin tók ástfóstri við síðasta karakter sem Pétur túlkaði í sjónvarpi, Ólaf Ragn- ar í vaktaseríunni. Kemur Siggi líka til með að eiga greiða leið að hjartarótum? „Það er ómögulegt að segja,“ svarar Pétur. „Ég hugsa þetta heldur ekki þannig. Reyni bara að gera mitt besta og nenni einhver að horfa er það bara plús. En þetta eru gjörólíkar týpur. Siggi er enginn frasagaur.“ Að sögn Péturs er líka grundvall- armunur á þessum tveimur þáttum. „Í vaktaseríunni kynntumst við ýktum karakterum í hversdagslegum aðstæðum en í Hlemmavídeói hittum við fyrir hversdaglega karaktera í ýktum að- stæðum.“ Pétur skrifaði Hlemmavídeó ásamt Sigurjóni Kjartanssyni yfirhandritshöf- undi og skrifarateyminu Ara Eldjárn, Hugleiki Dagssyni og Maríu Reyndal og segir samstarfið hafa gengið eins og í sögu. „Þetta er frábært fólk.“ Leikstjóri seríunnar er Styrmir Sig- urðsson og af öðrum leikurum má nefna Örn Árnason, Sólveigu Arnarsdóttur og Gunnar Hansson. Spennandi verklag Enda þótt fyrsti þátturinn sé að fara í loftið er tökum hvergi nærri lokið. Pétur kveðst ekki hafa kynnst þessu verklagi áður en þykir það spennandi. Vignir bætir við að hugsanlega komi þeir til með að leika síðustu þættina með allt öðrum hætti eftir að hafa séð þá fyrstu í sjónvarpinu. Svo hlær hann stríðnislega. Standandi inni í miðri vídeóleigu, þar sem gömlu gildin eru í hávegum höfð, er ekki hægt að láta hjá líða að spyrja þá fé- laga hver uppáhaldsbíómyndin þeirra sé. „Jaaá,“ segir Pétur og dregur seiminn. „Planes, Trains and Automobiles með Steve Martin og John Candy. Ég hef alltaf jafngaman af henni. Gæðamynd.“ Vignir er á öðrum nótum. „Klárlega Braveheart eftir snillinginn Mel Gibson. Allt sem hann snertir verður að gulli.“ „Jaaá,“ segir þá Pétur. „Það er líka gæðamynd.“ Skyndilega finn ég að andað er niður hálsmálið á mér. Það er aðstoðarleik- stjórinn. „Jæja, þið verðið að segja þetta gott núna. Þeir verða að fá að borða.“ Einmitt það. Síðast þegar ég var stöðvaður svona í miðjum klíðum var ég að tala við Lars Ulrich, trommuleikara Metallica. Það er ekki leiðum að líkjast. Pétur fylgir mér eigi að síður til dyra. „Heyrðu, hvenær kemur þetta svo?“ laumar hann að mér. Í Sunnudagsmogganum. „Einmitt. Þú splæsir kannski eintaki á kjellinn!“ Æringinn snýr sér undan en það skiptir ekki máli – ég heyri brosið.“ Fjör í vinnunni. Illa er ég svikinn ef lesendur heyra ekki hreinlega hláturinn í Pétri Jóhanni. Pétur Jóhann heldur á leifturljósinu eins og forseti vor forðum. Hvernig skyldi þessi vera? Fagmennskan drýpur af brún og brá. Hlemmavídeó, efst á Laugaveginum, miðpunktur þáttanna. ’ Skyndilega átta ég mig á mik- ilvægi þessa augnabliks. Þeir eru örugglega ekki margir Íslendingarnir sem gert hafa Pétur Jóhann Sig- fússon kjaftstopp. Enda þótt það hafi verið al- veg óvart.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.