SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 25

SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 25
24. október 2010 25 leggjum bæði metnað í að vera góð hvort við annað og börnin okkar. Það er guðdómlegt að lifa saman í svona góðu jafnvægi og við munum ekki láta neitt hafa áhrif á það.“ Án návistar föður Var erfitt að alast ekki upp hjá föður? „Mér fannst mjög erfitt að vera ekki hjá pabba, hafa hann ekki hjá mér og heyra hann segja að ég væri að standa mig í skólanum. Mér fannst erf- itt að vita að hann kæmi ekki í stúdentsútskriftina mína, eins og foreldrar vinkvenna minna gerðu. Það er erfitt að vera án návistar foreldris sem maður þráir að fá viðurkenningu frá. En það hefur líka gert mig að því sem ég er. Ég er dugleg og hugrökk, kannski er það mín aðferð við að sanna mig. Í dag er allt gott á milli okkar pabba og ég elska hann mjög mikið en er svolítið feimin við hann. Við hittumst sjaldan en ég hugsa oft til hans og finn að hann hugsar líka til mín. Þeir sem þekkja okkur segja að við séum mjög lík, bæði útlitslega og svo er mér sagt að ég hafi ýmsa takta frá hon- um og skapgerð. Pabbi lenti í skelfilegu slysi fyrir rúmum þremur árum þegar ég var ólétt að Ellý minni. Ég var mjög hrædd um hann því mér fannst ég eiga eftir að segja honum svo margt og við eiga eftir að bæta samskiptin okkar. Ég bað stöðugt fyrir honum. Hann er lamaður eftir slysið en það má hugga sig við að þetta hefði getað farið mun verr. Hann er í hjólastól, hef- ur fengið endurhæfingu og getur nú stundað sína vinnu. Pabbi á góða konu og samrýnda fjölskyldu sem hjálpar honum mikið. Hann er gríð- arlega öflugur og kraftmikill maður. Ég held að ég hafi kraftinn og orkuna frá honum.“ Þú ert búin að skrifa bók, þú skrifar um frægt fólk á visir.is og ert að skrifa skáldsögu. Þú hefur nóg að gera og rekur stórt heimili. Skipta peningar þig máli? „Ég vil fá peninga fyrir vinnuna mína eins og allir og hef metnað til að standa mig vel í því sem ég er að gera. Vefurinn sem ég skrifa á er mjög vinsæll, sérstaklega hjá konum, og ég legg áherslu á að hafa sem flesta notendur í hverri viku. Það er svolítið sérstakt að vera að skrifa á vefmiðil því ég er í stöðugri árangurmælingu á því sem ég er að gera. Ef ég er ekki með rétta efnið þá hverfa lesendur og þá þarf ég stundum að vera með aðeins djarfari greinar eða reyna að ná aftur til lesendanna með betra efni. Að því leyti eru fjölmiðlar á netinu mjög kröfuharðir því þú veist alltaf nánast um leið hvort einhver hefur áhuga á að lesa það sem þú skrifar. Ég vil að mér sé umbunað fyrir góða vinnu og finnst að þannig mættu fleiri konur hugsa. Vissulega er mikilvægt að gefa en við getum ekki gefið endalaust án þess að þiggja því þá brennum við upp í báða enda. Ég hef oft upplifað það að eiga enga peninga eða mjög litla peninga. Það veldur mér miklum áhyggjum og það er ekki góð tilfinning, sérstaklega þegar börn eru í spilinu. Ég, eins og margir Íslendingar, þarf að vinna mikið til að láta dæmið ganga upp. Karlaklúbbarnir eru þéttskipaðir, þar hvetja menn hver annan og styðja. Tala um peninga og hvernig þeir geti aflað meiri tekna. Konur gera allt of lítið af þessu. Sumir segja að konur eigi að hugsa eins og karlmenn, en ég er ekki viss um það. Við konur erum yndislegar, og sérstaklega þeg- ar við erum að hjálpa hver annarri og hvetja. Við eigum að gera meira af því. Við eigum að forðast öfund og baktal eins og heitan eldinn. Nota orkuna okkar til að hvetja hver aðra og gleðjast yfir velgengni vinkvenna okkar og allra annarra. Lifa fordómalausu lífi gagnvart öllu. Þegar við gerum það verða til töfrar.“ Morgunblaðið/Golli ’ Mér fannst mjög erfitt að vera ekki hjá pabba, hafa hann ekki hjá mér og heyra hann segja að ég væri að standa mig í skólanum. Mér fannst erfitt að vita að hann kæmi ekki í stúdents- útskriftina mína, eins og foreldrar vin- kvenna minna gerðu. Það er erfitt að vera án návistar foreldris sem maður þráir að fá viðurkenningu frá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.