SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 34
34 24. október 2010 A rney Þórarinsdóttir er framkvæmdastjóri Bjarkarinnar og Hrafnhildur Halldórsdóttir stjórnarformaður en þær stofnuðu Björkina síðasta haust með nokkrum öðrum ljós- mæðrum sem allar útskrifuðust árið 2009. „Markmiðið okkar var að kynna betur heimafæðingar og gefa fleiri konum kost á heimafæðingum en það hafa verið fáar ljósmæður í þessu. Við vinnum líka mikið saman en þetta er oft mikil binding ef maður vinnur einn,“ segir Arney. „Draumurinn okkar Arneyjar var alltaf að vera heimafæðingarljósmæður. Við fórum inn í námið með þetta að markmiði,“ segir Hrafnhildur. Þær voru báðar fastráðir hjúkrunarfræðingar á Land- spítalanum þegar þær hófu námið árið 2007. Þá var yf- irvofandi skortur á ljósmæðrum en eftir útskrift var ráðningarbann á Landspítalanum og flestum heilbrigð- isstofnunum. Þær fengu sumarvinnu í Hreiðrinu á Landspítalanum, deild 23B, sem er fæðingar- og skammtíma sængurlegudeild, en ekki meira og tóku því til sinna ráða og stofnuðu fyrirtæki. „Við viljum standa vörð um náttúrulega fæðingu. Námskeiðin okkar eru hluti af því að undirbúa konur undir þennan stóra lífsviðburð sem fæðing er og efla trú þeirra á sjálfa sig og líkama sinn,“ segir Hrafnhildur og þær ítreka báðar mikilvægi andlegs undirbúnings. „Það er mikilvægt að draga úr ótta. Við ölumst upp við það að fæðingar séu hættulegar og sársaukafullar og eigi að eiga sér stað á sjúkrahúsi. Ef kona kemur hrædd inn í fæðingu er líkaminn í varnarástandi og þá fer blóðflæðið til útlima og hún er tilbúin til að flýja eða berjast. Þá fer minna blóðflæði til legsins og þá á það erfiðara með að vinna og framkalla árangursríkar hríð- ar,“ útskýrir Arney en fjölmiðlar og kvikmyndir stuðla meðal annars að þessari skekktu mynd. Draumur að veita samfellda þjónustu „Fyrir flesta er heimilið griðastaður og sá staður sem þér finnst þú öruggust. Og í heimafæðingu ertu alltaf búin að kynnast ljósmóðurinni fyrir fæðinguna,“ segir Hrafnhildur en Arney tekur upp þráðinn: „Okkar draumur er að geta veitt stærri hóp kvenna samfellda þjónustu og við erum að vinna að því,“ segir hún og á þá við að sama ljósmóðir sinni konu á meðgöngu, í fæð- ingu og í sængurlegu en eins og kerfið er byggt upp í dag hitta flestar konur þrjár mismunandi ljósmæður í þessu ferli. Einn kostur við heimafæðingu er þessi sam- Hrafnhildur og Arney í salnum þar sem námskeið Bjarkarinnar eru haldin. Umhverfið er hreint og huggulegt. Standa vörð um náttúru- lega fæðingu Björkin er miðstöð fyrir verðandi foreldra og foreldra nýfæddra barna. Ljósmæður Bjarkarinnar taka að sér heimafæðingar, heimaþjónustu í sængurlegu og bjóða upp á námskeið fyrir verð- andi foreldra. Þær starfa eftir hugmyndafræði ljósmóðurfræð- innar sem lítur á meðgöngu, fæðingu og sængurlegu sem eðlilegt ferli en ekki sjúkdóm og vilja kynna heimafæðingar sem raun- verulegan valkost. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.