SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 24.10.2010, Blaðsíða 40
40 24. október 2010 L öngu áður en skólaeldhúsin og skóladagheimilin voru fundin upp var það siður íslenskra krakka að þeysast beint heim eftir skóla til að fá sér eitthvað í gogg- inn. Sjálf á ég ófáar minningar frá slík- um stundum en kakó og ristað brauð gat orðið þreytandi kostur til lengdar. Ég átti hins vegar leynivopn uppi í erminni gegn slíkum leið- indum sem ég nýtti mér óhik- að. Vopnið gekk undir nafninu Mat- reiðslubókin mína og Mikka en með fulltingi hennar runnu of- an í mig heilu lítrarnir af eggja- snaps bjarnarins Balú og heita ostabrauðið hennar Öskubusku var etið í hundraðavís. Pönnukökurnar frá Undralandi sem voru löðrandi í sírópi voru vissulega undursamlegar eða þá karamellueplin hans Gláms og einhverra hluta vegna voru slíkar uppskriftir vinsælli en Mikka-fiskur í móti eða grænbauna- súpa Gosa. „Við vissum að það væri mikil stemning í kringum gömlu bókina enda virðist heil kynslóð hafa lært að elda upp úr henni,“ segir Svala Þormóðs- dóttir, útgáfustjóri Eddu útgáfu, en ný- verið gaf forlagið út nýja barna- matreiðslubók í anda þeirrar gömlu. Bókin heitir Stóra Disney mat- reiðslubókin, en í dag eru það ekki bara gamlir félagar á borð við Mikka, Andrés og Öskubusku sem hvetja krakkakokka áfram í eldhúsinu heldur líka yngri hetjur á borð við Bósa ljósár, Leiftur McQeen og Lingvíní. „Bókin byggist á þeirri hugmynd að gera matreiðslubók til að auðvelda þeim yngstu að elda,“ segir Svala sem bætir því við að allar uppskriftirnar í bókinni séu nýjar. „Við vildum að þetta væri matur sem krökkunum fyndist góður og gaman að elda en væri um leið venjulegur heim- ilismatur.“ Heitt og beitt á ferð Eins og vera ber í matreiðslubók fyrir börn eiga uppskriftirnar það sameigin- legt að vera einfaldar. „Við reynum að hafa allar lýsingar eins ítarlegar og hægt er og sem partur af því eru upplýsingalínur í upphafi hverrar upp- skriftar þar sem fram kemur hvað mat- seldin taki langan tíma, hvað eldunin er erfið, hvaða áhöld eru nauðsynleg og hvort það þurfi aðstoð foreldra. Það Blómstrandi krakkakokkar í eldhúsinu Angan af sjóðheitum pizzasnúðum fyllir húsið, og einhverra hluta vegna eru þeir miklu betri en pizzasnúðar út úr búð. Það finnst alla vega tveimur ungum matreiðslumeisturum, enda virðist lögmálið vera að matur sem maður eldar sjálfur bragðist allra best. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Áleggi dreift; ein sá um ostinn og hin um skinkuna og þá þurfti stundum að vinna í kross. Þær voru ekkert að spara pizzasósuna og pössuðu sig á að bera vel yfir allt deigið. Halla Eiríksdóttir og Auður Arnardóttir voru fagmannlegar við baksturinn á pizzasnúðunum. Þegar rúlla þarf upp svona löngu deigi er ekki verra að hafa fjórar hendur í verkið. Morgunblaðið/Ómar Niðurskornir snúðarnir á leið inn í ofn og þá þarf að passa sig á því að brenna sig ekki. Matur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.