Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 15

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 15
AMMA. 141 hélt eg því, að hún væri úr allri hættu, nema ef vera kynni ótraust við landið hinumegin. En alt í einu sá eg, að hún stansaði, og eins og horfði til baka eða litaðist um. Síðan hörfaði hún aítur á bak fáein spor, baðaði út hönd- unum eins og hún væri að missa jafnvægið, og seig síðan hægt og hægt niður í ána. A meðan þetta var að gerast, var eins og mér yrði dimt fyrir augum, óg mér fanst hjart- að hætta að hreyfa sig í brjósti mér. Og voða- legri hugsun slóg niður í hug minn. Mér datt í hug, að þetta hefði henni verið mátulegt. Eg skyldi ekki hreyfa hönd eða fót til þess að reyna að bjarga henni. Parna væri hún best komin. Nú gæti eg átt unnusta hennar. En þá kom mér jafnframt í hug ásetningur minn í hvamminum um nóttina. Og þá var eins og mér væri hrundið út úr dyrunum. Og í einu vetfangi var eg kominn niður að ánni, þar sem stúlkan hafði lagt út á hana. Alt þetta gerðist fljótara en frá verði sagt. Og var þvf ekki liðinn nema örstuttur tími frá því að hún hvarf niður í ána og þar til eg hljóp út að vökinni, sem mér fanst gína við mér eins og gröf. Eg hugsaði lítið um það á leiðinni, hvað heimskulegt þetta var í raun og veru af mér. Þó stúlkan væri enn í vökinni, þá var sjálf- sagt lítil von til þess að eg gæti bjargað henni einsömul og tómhent. Og svo gat jafnvel far- ið, að eg hlypi með þessu út í opinn dauð- ann. Eg gat tæplega búist við því, að það héldi mér, sem ekki hafði haldið henni. En ekkert af þessu 'kom mér í hug. Eg hljóp á skelþunnum ísnum með þá hugsun eina að reyna að bjarga hamingju mannsins, sem eg hafði einum unnað. Og þegar eg sá ydda á höfuð stúlkunnar í vökinni, herti eg mig enn meir, ef nokkru hefði verið við að bæta. En þegar eg kom, voru kraftar hennar að þverra. Hún hatði aðeins staðið botn og geta haldið sér í vökinni með því að grípa um skörina. En nú var hún að uppgefast fyrir kulda og þreytu, því áin var straumþung þarna. Eg stiklaði þarna á vakarbarminum eins og trylt manneskja. Eg hélt, að eg mundi, ef til vill, gera enn þá verra, ef eg snerti hana nokk- uð. Og mér fanst sem skörin mundi þá og þegar brotna undan mér einni hvað þá, ef hún bættist við. En í einhverju dauðans ofboði þreif eg í handleggi hennar og fekk dregið hana upp úr. Fanst mér sem einhver yfirnátt- úrlegur kraftur væri þar að verki með mér. Hún var svo máttfarin, að hún gat ekki gengið ein. Varð eg því að leiða hana til lands. Pað brakaði og brast í ísnum og lautaði und- an fóturn okkar. Þegar við áttum eftir fá fet að bakkanum, brotnaði ísinn undan okkur á löngu svæði. Eg gat hrundið stúlkunni áfram, svo hún náði sér í bakkann, en við það hröklaðist eg sjálf ofan í. En um leið og eg var að hverfa niður i ána, sá eg tvo af vinnumönnunum koma hlaup- andi ofan frá bænum. Svo misti eg meðvit- undina.« Ef við krakkarnir, hefðum ekki séð ömmu þarna ljóslifandi fyrir augum okkar, heyrt rödd hennar og fundið hreyfingu hennar, þá hefð- um við sennilega öll farið að gráta af því að missa hana þarna niður um ísinn. En nú verð- um við að trúa því, að hún hefði bjargast upp úr á einhvern hátt. En nú dirfðumst við ekki að ýta undir hana eða láta nokkuð frá okkur heyra. Okkur fanst þvílík helgi hvíla yfir þessu verki ömmu, að við mættum ekki truíla frásögnina um það með innskotum og spurningum frá okkur. Og í meðvitund okkar hafði hún hækkað og stækk- að svo mikið, að hún var komin langt upp fyrir húsdýrin; hún var meira að segja farin að nálgast pabba og möminu. Og lengra var ekki hægt að komast í vegsemd og tign, í augum okkar. »þegar eg raknaði við aftur,* tók amma til máls eftir stundarbið, »voru margir dagar liðnir. Eg var búin að liggja með óráði, svo tvísýnt þótti um líf mitt. En þegar eg staui- aðist á fæturnar, var annar nokkru styttri. Hafði lærleggurinn brotnað, þegar eg féll á skarar- röðina og seig niður. Síðan hef eg verið hölt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.