Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 42
m NYJAR KVÖLDVÖKUR. Pað dróg nú skugga yfir Esjuna, og urðu hríðarjelin að mér virtist úlfúðarleg á svipinn, þar sem þau teygðust út á flóann.----------Mig sveið í þann vangann sem að Reykjavík sneri, og reyndi eg þó til að bera hönd fyrir höfuð mér á leiðinni. En það var eins og höndin Iefði máttlaus og sló kuldanum — að mér fanst — inn að hjarta.-------- Pegar eg var háttaður um kvöldið, varð eg andvaka, eitthvað fram eftir nóttunni. Hljóð- ið í storminum var einhvernveginn svo ámátt- arlegt úti fyrir glugganum, — líkast því að verið væri að blása í ílustrá — og voru sum hljóðin hvell og skerandi, eins og sagt var að útburðarhljóðin hefðu verið í fyrri daga.------- Og svo datt mér Pormóður í hug, og hvern- ig atvikin og baráttan fyrir lífinu, hefðu á nokkr- um árum, kreist úr honum þróttinn — og gjört hann þjóf. Pað var nú líkast því, að all- ar illar »nornir« hefðu þulið yfir honum galdra og verið að villa honum sjónir, — í nokkur ár. — Hann var orðinn að útburði, í hinni seiðrömmu gjörningahríð — og engrar hjálp- ar von. — — Við Þormóður höfðum róið saman á bát, part úr sumri. Pað hafði þá stundum slegið í brýnur á milli okkar út af ýmiskonar málefn- um og bókum, sem þá voru að korna út. Þormóður var þá maður bjartsýnn, og bar fult traust til framtíðarinnar, hann var þá hraust- ur að heilsú og snyrtimenni að allri framkomu með fangið fult af vonum. — Arið eftir giftist hann bláfátækri stúlku, og fluttu þau í hús- mensku veslur á strönd í V-hreppi. Par hlóðst á þau ómegð og Ientu þau í hinni sárustu ör- birgð sem hugsast getur — eftir nokkur ár. Pá fréttist það, að Þormóður var borinn 8auðaþjófnaði, — og hafði hann orðið uppvís að því að hafa stolið 2 kindum frá ríkisbónda nokkrum þar í nágrenninu — sér til hjálpar og börnunum. — — Svo beið þá tukthúsið hans og úrskurður sýslumannsins í H sýslu — — allra mildilegast!!! Tvær sagnir um lækna. Einu sinni spurði kona mokkur hinn heims- fræga doktor Hunt um, hvers u mikið hún ætti að borga honum í aukaþóknun, en hann kvaðst aldrei ákveða það sjálfur, en léti sjúklinga sína ráða því. »Agætt,« var hið fljóta svar konunnar, »ef þér ákveðið það ekki, þá get eg þail miklu síður,« og til mikillar undrunar fyrir doktor- inn, fór hún í burtu án þess að borga honutn einn grænan eyri. Ólíku hepnari var doktor Astley Cooper, þegar hann gerði skurð á miljónamæringnum, hr. Hyan að nafni frá Vestur-Indlandi. Eftir að hann hafði gefið aðstoðarmönnum læknisins 5,000 kr. hverjum, sneri hann sér að Cooper og mælti: »Hvað yður viðvíkur, skuluð þér fá ennþá betra. Takið þetta hérna,« hrópaði hann, í sama bili kastaði hann nátthúfunni til hins heimsfræga læknis. »Eg leyfi mér að stinga móðgun yðar í vasann,« svaraði læknirinn, um leið og hann stakk húfunni á sig, en þegar hann kom heim, fann hann ávísun upp á 20,000 kr., er faldist í nátthúfunni. Pú ert fölleit. « Pú ert fölleit, fóstra mfn, fönnum krýnd er bráin. Blessuð sumar blómin þín björtu, horfin, dáin. Heyri’ eg engan hörpuslátt á hreimblítt vorið minna. Sárt eg vina sakna þrátt sumar gesta þinna. En eg á von sem ekki deyr, yljar mínu hjarta: að sendi vorið síðar meir söngva’ og geisla bjarta. A. A. ].
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.