Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 28
154 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ur aftur og mun hafa þótst viss um að eng- inn tæki eftir þessari hreyfingu sinni. Svo fór hann að mjaka sér smátt og smátt nær tjald- inu, en lá þess á milli hreyfingarlaus. Var þetta háttalag líkt kongulóarinnar, þegar hún er að læðast að bráð sinni og liggur hreyf- ingarlaus á milli. Svarta þjóninum þótti þettaund- arlegt háttalag og hugsaði sér að vera viðbú- inn ef Tyrkinn sýndi sig í nokkrum vélráðum. Tyrkinn hélt áfram við og við að mjaka sér að tjaldinu þar til hann var eigi Iengra frá Rfkarði konungi en í kringum 10 álnir. Pá reis hann skyndilega á fætur og tók undir sig stökk Iíkt og tígrisdýr og var eins skjótt og auga eygði kominn að baki konungi með morðkuta á lofti, sem hann hafði falið uppi í erminni á hempuræfli sínum. Allur Englands- her mundi eigi hafa getað frelsað Ríkarð kon- ung, þótt hann hefði verið nálægur, en svert- inginn var við þessu búinn og greip um hönd morðingjans, þegar hann lyfti kutanum til lags og kom þannig í veg fyrir að hann gæti veitt konunginum banatilræði. Karegitin — því þetta var hann — sá sami er stórmeistari Templara- riddaranna hafði sagt Konráði greifa frá, og nú hafði búið sig sem tyrkneskur förumunkur, snerist nú í bræði gegn þeim, sem svo óvænt hafði ónýtt morðráð hans og reyndi að leggja til hans með hm'fnum. Ur því varð þó eigi annað en jjjónninn fékk litla skeinu á hand- legginn, því í sömu svifum hafði hann varp- að Tyrkjanum óþyrmilega til jarðar, enda átti í öllum höndum við hann sakir afls og snar- ræðis. Þegar Tyrkjanum var varpað til jarðar fyrir fætur konungi, tók hann fyrst eftir því, sem var að gerast. Rótt honum yrði þegar Ijóst hvað um var að vera, bar þá hvorki á meiri undrun eða réiði hjá honum heldur en algengt er hjá mönnum þá skorkvikindi ónáða þá og þeim verður að merja þau sundur til að vera laus við þau. Konunginum varð það og á, að hann greip stólinn, sem hann hafði setið á og mölvaði með honum haukúpuna á morð- ingjanum um leið og hann hrópaði: »Þinn armi hundur!« Hinn deyjandi Tyrki hrópaði tvívegis: »A1- lah úthlutar sigril* og gaf síðan upp öndina fyrir fótum konungs. Vaktir upp af hávaðanum brutust bogaskytt- urnar lafhræddir inn í tjaldið. »Pið hafið góða gætur á flækingunum hérna eða hitt þó held- ur,« sagði konungurinn með spottandi en um leið með ásakandi raust. »Rið eruð árvakrir varðmenn þar sem þið látið mig framkvæma slíkt böðulsverk með eigin hendi. Pegið þið nú allir saman, og hættið þessari vesældar suðu, eða hafið þið aldrei fyr séð dauðan Tyrkja. Svona nú takið hræ hans og kastið því út fyrir herbúðirnar, en höggvið hausinn frá skrokknum og festið hann á stöng en munið eftir að snúa því þannig að andlitið- viti í átt- ina til Mekka, svo hinn armi skálkur, sem sendi hann hingað fái séð hver erindislok hans hafi orðið. Og þú, minn svarti mállausi vin- ur,« sagði hann um Ieið og hann snéri sér að svertingjanum, — »en hvað er þetta? F*ú ert særður og ef að líkindum Iætur með eitruðu vopni, því varla hefir þetta afskúm getað bú- ist við að ná lengra með kuta sínum en rúm- lega inn úr ljónshúðinni. Sjúgið þegar eitrið úr sári hans, einhver ykkar, eitrið sakar eigi var- ir ykkar það hefir eigi áhrif nema þegar það nær inn í blóðið.* Dátarnir horfðu óttaslegnir og ráðalausir hver til annars. Ressi skipun skelfdi þá, þótt þeir óttuðust fátt. »Hvað bagar ykkur, slæpingjar?* spurði konungur, »eruð þið lífhræddir og huglausir?* »Ekki óttumst við að deyja eins og kristn- um mönnum sómir,* svaraði langi Alan, sem konungur helst hafði beinst að. »En eg er eigi hrifinn af því að drepast eins og rotta, sem eitrað hefir verið fyrir og það fyrir þýborinn svartan þjón, sem gengur kaupum og sölum eins og kvikfé manna.* »Hans hátign talar um að fólk sjúgi í sig eitur, eins og það væri eigi meira en að eta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.