Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 46
172 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Næsta dag, þegar Hákon var að fara í lcirkju með móður sinni, heyrði hann ólæti út í bakgarðinum og fór þangað. Ragna var þar að fljúgast á við einn heimapiltinn, hún reif hann og beit. Sátnur urraði og var albú- inn til að stökkva á manninn. Og heimafólkið stóð hjá og skellihló. Ragna sá ekki Hákon, en stökk upp til að reyna að klóra mótstöðu- mann sinn í andlitið, en hann þreif í axlirnar á henni, hóf hana upp og hélt henni út frá sér, fólkið hló enn meira og Ragna spriklaði hamstola af bræði. Blóðið steig til höfuðsins á Hákoni, honj um líkaði þetta illa en gat þó ekkí annað en brósað. Regar Ragna kom auga á hann rann af henni ofsinn og hún lét hendurnar síga og hætti að spriklg, það var eins og hún hefði mist máttinn alt í einu. Hákon gekk rólega að piltinum og tók Rögnu af honum. »Pið ætt- uð að skammast ykkar að fara svona með stelpuna, eg vil ekki hafa það oftar á mínu heimili,« sagði hann stuttlega og sneri sér við og fór. Ragna læddist á eftir honum eins og tryggur hundur á eftir húsbónda sínum, en hann leit ekki við henni. »Hákon!« sagði hún með grátstaf í kverkunum. Hann sneri sér við og leit á hana: »Eg hefi skömm á köttum,* sagði hann og hélt áfram. »Ertu reiður við mig, Hákon?» sagði hún biðjandi. »Þú ættir heldur að fara í kirkju eins og aðrar smástúlkur, heldur en að klóra og bíta,« sagði hann virigjarnlega. Hún leit framan í hann og síðan á rifna og óhreina > kjólinn og fór að gráta, svo varð hún blóðrjóð upp und- ir hársrætur, — það var sársaukatilfinning fá- tæktarinnar sem kom henni til að roðna, og tárin streymdu niður kinnarnar í sífellu. Hákon fór til móður. sinnar en Ragna hljóp inn til föður síns og stakk höfðinu undir vanga hans. »Hvenpr getum við farið héðan?* spurði hún. Hann horfði hissa á hana, — hingað til hafði henni hvergi þótt eins gott að vera eins og í Argerði. »Hefir einhver gjört þér eitthvað mein, barnið mitt,« spurði hann blíðlega. »Rér hefir altaf þótt svo gott að vera hérna.« Hún svaraði ekki en Ieit niður fyrir sig. Eftir örlitla stund Ieit hún upp og horfði fram- an í föður sinn, og spurði hálf vandræðaleg; »Kostar nýr kjóll afarmikla peninga?* »Meira en við eigum, barnið mitt,« sagði hann hrygg- ur og siundi við. Hljómurinn í rödd hans snerti hjarta hennar, hún strauk dökka hárið frá enninu og leit djarflega framan f hann. »Rað gerir ekkert, pabbi, þessi er fullgóður,* og hún brosti í gegnum tárin. Pegar Hákon kom heim með móður sinni, hljóp hún fram í eldhús og faldi sig fyrir honum. Svo heyrði hún Ingibjörgu kalla á sig, en hún tróð sér lengra inn í dimt skot, svo hún sæist ekki. Skömmu á eftir voru eldhúsdyrnar opnaðar og hún heyrði að faðir hennar kom. »Ragna, barnið mitt, hvar ertu?« Hún hafði ætfð hlýtt föður sínum, en nú mátti hún lengi berjast við sjálfa sig áður en hún kom hljóðlega og seinlega fram úr skotinu. »Komdu barnið mitt, Ingibjörg mun hafa eitthvað til að gleðja þig með, og ef eg get rétt til. þá mun það ekki vera svo lítið. Flýttu þér, telpan mín, sorgin heimsækir mann vana- lega nóg snemma, maður má ekki láta gleð. ina bíða.« »Gleði! Hvað var það, sem gat glatt hana þegar hún var í þessum tatatötrum?* hugsaði hún. Pað var fyrsti sorgarskugginn, sem hafði heimsótt hana, og hann vildi ekki fara aftur, hann gjörði henni þungt um sporin inn í stof- una, þar sem lngibjörg beið hennar. Hið fyrsta sem hún kom auga á var fatabunki á borð- inu. »Eg ímynda mér að þessi föt séu mátuleg á þig. Helga mín sáluga var á þfnu reki þeg- ar hún lést. En hún var gotl barn, sem hvorki reif eða beit og prílaði ékki upp í hvert tré, sem hún sá, þessvegna eru kjólarnir hennar óskemdir. Eg vona að þú verðir nú stiltari og betri stúlka hér eftir, Ragna mín. Ef mér þætti ekki eins vænt um þig eins og mér þykir, þrátt fyrir alt, fengir þú ekki að ganga í föt-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.