Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 25

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Blaðsíða 25
KYNjALYFIÐ. 151 Hinn mállausi hristi höfuðið rétti vísifingur- inn til himins og lagði hann því næst á varir sér. »Eg skii þig,« sagði konungur. iFyrir vilja guðs hefír þú mist málið, en eigi fyrir grimd mannanna. Kant þú að fara með herklæði og veita manni aðstoð að íklæðast þeim þegar á liggur ?« Svertinginn kinkaði kolli og tók hjálm, brynju og skjöld er héngu þar á snaga og fór að laga þau til og taka þau sundur. Gerði hann það með svo mikilli kunnáttu að auð- sætt var að hann var æfður í að fara með herklæði. »Þú ert höndugur piltur, og getur vafa- laust orðið mér til mikils gagns,« sagði kon- ungur ánægjulegur. »Eg tek þig fyrir þjón í tjaidi mínu og vil með því sýna hve mikils eg met' hina konunglegu gjöf Saladíns. Og þar sem þú ert mállaus geturðu eigi farið með óþarfa þrátting milli þjónanrta og varðmann- anna" hér eða æst mig og gramið, með ótil- hlýðilegum svörum.« Svertinginn hneigði sig svo djúpt, að enni hans snerti jörðina og staðnæmdist síðan tein- réttur eins qg hermaður í hæfilegri fjarlægð frá konungi, eins og hann biði eflir að sér væru falin einhvör störf. »Þú getur þegar tekið til starfa,« sagði konungur. »Eg sé riðbletti á skildinum þarna, þegar eg ber hann gegn Saladín má hann eigi sjá neina skugga eða bletti á honum.« Nú heyrðist hornablástur fyrir utan og herra Henrik af Neville kom þegar á eftir inn í tjáldið með bunka af bréfum. »Bréf frá Eng- Iandi, herra konungur,« sagði hann um leið og hann 'rétti honum bunkann. »Frá Englandi, voru kæra landi,« hrópaði * ^ konungurinn með angurværri raust. »Ojá, þeir vita líklega lítið um það þar heima hve mjög konungur þeirra hefir í vök að verjast og Wef- ir verið þjakaður af sorg og sjúkdómi, ótrygg- um vinum og harðsnúnum óvinum!« Þegar hann hafði opnað bréfin mælti hann: »SannarIega eru þá einnig heima þrætur og sundrung á ferðínni og alt að verða þar í upp- námi. Lofaðu mér að vera einum um stund, Neville, svo eg geti í næði hugsað um þau tíðindi, sem þessi bréf færa mér.« NeviIIe skundaði á brott og konungurinn sökti sér ofan í áð hugsa um þau ömurlegu tíðindi, sem bréfin færðu honum frá Englandi. Þau skýrðu frá flokkadráttunum, sem voru að liða sundur ríki hans og ósamkomulaginu milli bræðra hans Jóhanns og Gottfreðs og um deilur þeirra við hinn valdamikla kanslara, bisk- upinn af Ely. Hvernig aðallinn undirokaði al- múgann, svo liann var farinn að gera upp- reisn, sem víða hafði haft blóðsúthellingar í för með sér. Margt af því sem honum var ritað um þetta særði metnað hans og miðaði til þess að brjóta niður konungsvald 'hans. Þessum tíðindum fylgdu alvarlegar áskoranir frá hans trúlyndustu og vitrustu embættismönn- um um að hverfa tafarlaust heim aftur til Englands, því það eitt mundi geta bjargað ríki hans undan hörmungum borgarastríðsins, en bæði Frakkland og Skotland myndu reyna að færa sér það í nyt. Með angurværri gremju las konungur þessi bréf aftur og aftur og bar saman frásögn nokkurra þeirra um sömu við- burðina. Hann var svo niðursokkin í þær hugs- anir er bréfin vöktu hjá honum, að hann gaf því engan gaum, sem gerðist í kriugum hann og sat hann þó mjög nærri dyrunum í tjaldi sínu til þess að geta notið. sem best kvöld- kulsins. Tjalddyrnar stóðu opnar, svo hann gat séð varðmennina og þeir hann, og eins gátu allir, sem fram hjá gengu, séð konunginn. Svarti þjónninn var að -fást við að fægja skjöldinn, sem konungur hafði vísað honum á og sneri sér frá konunginum. Þetta var helj- armikill skjöldur, sem konungur var vanur að bera þegar víggirtir staðir skyldu takast með áhlaupi, því hann hlífði betur fyrir skotvopn- um en hinir smáu þríhyrndu skildir, sem ridd- arar þá voru vanir að bera er þeir sóttu fram á hestum sfnum. A þessum stóra skildi var hvorki hermerki (Ljónið) Englands eða annað krotað,' sem gæti vakið eítirtekt þeirra her-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.