Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 24

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 24
150 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. aukinn frægðarljóma, skundaði riddari einn inn til hans og tjáði honum að séndimaður frá Saladín biði úti fyrir með bréf tjl konungs. »Láttu hanu þegar koma inn!« skipaði konungur. »Ög sýndu honum fulla kurteisi.« Maður sá sem ríddarinn fylgdi inn leit í fljótu bragði út sem þjónn af blámannaætt, en við nánari athugun duldist eigi að hann bauð af sér góðan þokka og var afburðamaður að líkamsatgerfi. Hann var risi að vexti og allur ágætlega vaxinn, og þótt hörundslitur hans væri því sem næst hrafnsvartur, bar hinn djarf- mannlegi svipur hans vitni um að hann mundi þó ekki þrælaættar. Að hinu hrafnsvarta hár hans Iagðist drifhvítur vefjarhöttur og yfir herð- unum bar hann létta skikkju með sama lit. Undir skikkjunni mátti Ifta bol og stuttbrækur úr eltiskinni, en hinir þrýstnu handleggir hans voru berir og fótleggirnir fyrir neðan kné. Á fótunum bar hann þykka iljaskó. Silfurspenru hafði hann um hægri úlflið. Girtur var hann. belti og héngu við það tveir velbúnir tígil knífar og í annari hendi bar hanu stutt kast- pjót en með hinni hendinni leiddi hann stór- san veiðihund í gullsnúnu baridi. Sendimaður laut til jarðar við fætur kou- ungs og fletti um leið skikkjunni af öxlum sér, sem var auðmýktarmerki hjá austurlanda þjóðum. Meðan hann þannig álútur kraup á öðru knénu, rétti hann konungi silkiklæði og í það var haganlega gullofið bréf frá Saladín. sem var ritað á Arabisku, en því fylgdi þýð- ing á efni þess á ensku. Pað hljóðaði þann- 'g: »Saladín konungur konunganna sendir Rík- arði, hinu enska Ijóni, kveðju sína. Rar sem oss er kunnugt, samkvæmt síðasta boðskap þínum, að þú kjósir stríð Við oss fremur en frið, þá viljum vér eigi hika við að láta þá skoðún vora í Ijós, að þú í þessu efni hagar þér sem blindur maður. En það hughreystir oss hins vegar að vér vonum bráðlega að geta sannfært þig um villu þína með aðstoð vorra þúsund ósigrandi kynkvísla, þegar Mú- hamed spámaður Guðs og Allah guð spá- mannsins dæmir milli vor. Að öllu öðru leyti berum vér hina hreinustu lotningu fyrir þér og metum mikils að verðíeikum gjafir þær, sem þú hefir sent oss, þar á meðal dvergaparið, sem er konungSgersemi fyrir hve sjaldgæf þau eru, og til viðurkenningar fyrir þessa hugul- semi þína og höfðingsskap, sendum vér þér svartan þjón, sem ber nafnið Zahauk, sem þú mátt eiga. Dæm hann eigi eins og heimskingj- arnir gera, eftir hörundslit, því oft hafa dökkar jurtir hinn þægilegasta smekk. Og vita mátt þú, að þessi bjámaður er sterkur og frækinn og því mannafærastur um að fylgja- skipunum herra síns, Vitur er hann og ráðsnjall, en mál- laus er hann og fær því eigi gert sig skiljan- legan nema með bendingum, en heyrn hefir hann í góðu lagi. Vér felum þér hann til trausts og halds, og oss grunar að eigi líði á löngu þar til hann getur orð/ð þér að miklu liði. Síðan kveð eg þig í von um, að hinn mikli spámaður opni augu þín áður en það er of seint; en verði það eigi mót von minni, óska eg þér góðrar heilsu og viðvarandi bata, svo að Allah fái dæmt milli okkar á orustuvell- inum.« Undirskrift Soldáns og innsigli var undir bréfinu. Konungur virti svertingjann þegjandi fyrir sér, þar sem hann stóð frammi fyrir honum niðurlútur með krosslagða hendurnar eins og dökkleit marmarastytta, sem gerð hefði verið með frábærri list, en leit út fyrir að vantaði Iifandi anda. Englands konungur sem jafnan hafði haft mætur á vel bygðum og þreklegum mönnum, leist vel á þennan vöðvaþrekna og íturvaxna mann og spurði hann á mállísku þeirri sem tíðkaðist milli krossfaranna og Austur- landabúa: »Ert þú heiðingi?« Rjónninn hristi höfuðið, Iyfti hönd að enni og gerði krossmark til merkis um að hann væri kristinn og setti sig því næst í sömu stellingar. »Ef til vill kristinn svettingi, sem þessir heiðnu hundar hafa svift málfærinu?« sagði konungur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.