Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Side 27

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Side 27
KYNJALYFIÐ. 153 í standi til að kæfa manngarminn,* hrópaði Iangi Alan. »Pað er líka synd að eyða öllu þessu víni í þennan heiðna hund, því mikið hlýtur að fara til spillis eigi að hella því ofan í hann. Með þessu háttalagi eyðið þið víni, sem vel kristinn maður oftar en einu sinni gæti drukkið sig glaðan af.« »Öfundar þú hann?* spurði svarti Tumi. »F*að er synd að öfunda svona heiðinn ræfil af svolitlu víntári hér á þessari syndugu jörð. Minstu þess, að þessir heiðnu garmar fá eígi dropa til að kæla tungu sína um alla eilifð eftir dauðann.* »Vafasamt hvort svo verður, enda væri það hart fyrir hann,« sagði langi Alan, »bara fyrir það að hann er Tyrki, eins og faðir hans var. Annað mál væri það hefði hann verið kristinn og gengið af trúnni og tekið Muhamedstrú, þá mundi eg geta fallistáað hin heitasta hola væri verðskulduð vetrarvist fyrir hann.« »TaIaðu varlega, langi Alan,« sagði nú Hinrik Woodstall. »Hætt er við því að tunga þín komi þér í ónáð hjá föður Frans, eins og hún hefir komið þér hjá dökkeygu sýrlensku stúlkunum, sem þú veist best sjálfur. En þarna kemur þá stikillinn, stingið nú upp i hann knífskafti til þess að fá tennurnar á honum í sundur.* »Bíðum nú við, nú fer skinnið að átta sig,« sagði svarti Tumi. »Sjáið til, nú setur hann flöskuna á munn sér og sötrar eins og æfður drykkjumaður. Peir drekka auðvitað eins og svampar þessir Tyrkir, þegar þeir eru komnir upp á lagið.c Pessi eyðimerkurmunkur, eða livað sem hann nú var, tæmdi nú eda iét sem hann tæmdi, stóra flösku af víni í einum teig, og þegar hann tók flöskuna frá vörum sér blés ,hann þungan og mælti: »Allah er miskun- samur.« Dátarnir allir ráku upp slíkah skellihlátur, að konungur truflaðist í hugleið'ngum sínum. Hann ógnaði þeim með hendinni og hrópaði: »Pið slæpingar, kallið þið þetta reglusemi og prúðmannlegt háttalag?« > Allir þögnuðu á svipstundu og urðu hljóð- ir, sem mús í holu sinni. Dátarnir þektu kon- unginn grandgæfilega og vissu, að þótt hann að jafnaði liði þeim glens og ærsl, þá heimtaði hann þó stöku sinnum, þótt sjaldan væri, fylstu reglu og virðingu. F*eir hröðuðu sér nú að færa sig í hæfilega fjarlægð frá konungi og reyndu að draga Tyrkjann með sér, en hann stakk við fótum og vildi hvergi fara og lést vera dasaður mjög af dansinum og vínnautn- inni, svo hann gæti eigi á fótum staðið. »Látið hann bara liggja, heimskingjar,* hvíslaði langi Alan að félögum sínum. »F*að eykur hávaða að vera að tosast við hann og við fáum að kenna á því, ef eigi verður alt hljótt. Látið hann bara liggja segi eg, áður en mínútan er liðin sefur hann eins og hagamús, sé hann látinn í friði.« Um leið leit konung- urinn aftur til þeirra með vanþóknunarsvip, og meira þurfti ekki til þess að allir hypjuðu sig þegjandi fjær og létu tyrkneska munkinn eiga sig þar sem hann lá og virtist eigi geta hreyft legg né lið. Síðan varð alt hljótt og engin þorði að æmta né skræmta í nánd við kon- ungstjaldið. í fullan fjórðung stundar var alt hljótt umhverfis og í tjaldinu. Konungur las bréf sín og hugsaði um efni þeirra. Skamt frá inngangi tjaldsins, fyrir innan hann sat svert- ‘inginn og fægði skjöld þann, sem áður ér getið um. Hann snéri baki að dyrunum. Ná- lægt því hundrað skref frá tjaldinu stóðu, lágu eða sátu varðmennirnir með allan hugann við smáleiki, sem þeir voru að fást við hávaða- laust. Á hinu auða svæði milli þeirra og tjalds- ins lá Tyrkinn hreyfingarlaus og Iíktist helst hrúgu af fataræflum. Hinn mikli skjöldur, sem svarti þjónninn i tjaldi konungs hafði verið að fægja, var nú orðinn fullkomlega skýr og því ágætur speg- ill að horfa í. F*jónninn sá nú í þessum spegli, sér til undrunar, að förumunkurinn lyfti hægt höfði frá jörðu og litaðist um með mikilli vara- semi; bar þetta vott um að hann mundi eigi til muna drukkinn. Síðan stakk hann höfði nið- 20

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.