Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Side 36

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Side 36
162 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. mannflek-i en föruneyti laíknisins. Herklæði þeijra glömpuðu í morgun sólskininu og var því augljóst að hér voru Evrópuhermenn á ferðinni. Förunautar læknisins litu óttaslegnir til hans, en lækninum brá hvergi o'g var jafnstiltur og ávalt. Hann vék sér að tveimur sínum færustu ridd- urum og lagði fyrir þá að ríða svo nálægt þessum ókunnum hermönnum, sem þeir sæju sér fært, og grenslast um liðstyrk þeirra og vopnabúnað og reyna að gera sér grein fyrir, hvort þeir mundu fara með frið eða ófrið. Hættan, sem hér gat verið á ferðum, hafði sömu áhrif á Kenneth riddara eins og hress- andi drykkur og vakti hann til meðvitundar um kringumstæður sínar. »Er nokkuð að óttast af þessum kristnu riddurum?« spurði hann lækninn. »Óttast,« tók læknirinn upp eftir honum með fyrirlitningu. »Vitringurinn óttast eigi ann- að en misþóknun himnaföðursins. En af óguð- legurn mönnum má hann ávalt búast við hinu versta.« »En þetta eru kristnir riddarar og vopna- hléið er ekki útrunnið, því haldið þér þá að þeir muni ganga á sett grið?« »Retta eru geistlegir hermenn úr hinni ill- ræmdu temp!arareglu,« svaraði læknirinn. »Með eiði hafa þeir heitið því, að haida engin grið gagnvart Múhamedsmönnuni. Friðarheit þeirra er sama sem stríð, og sett grið þeirra sama sem svik og fals. Flestir aðrir höfðingjar, sem með ofbeldi hafa ráðist inn í Palestína, hafa þó hagað sér sem siðaðir menn og haldið sín drengskaparloforð. Ljónið enska gefur grið, þegar það hefir yfirstigið bráð sína. Björninn frá Austurríki sefur, þegar hann hefir fengið fylli sína, en þessir geistlegu hermenn eru eins og hópur af hungruðum úlfum, hverra blóð- þorsti þekkir engin takmörk. Nú hafa þeir sent nokkra léttfæra hermenn út til þess að króa okkur af og tefja fyrir okkur, þar til þeir koma með meiri liðsöfnuð, til þess að vinna á okk- ur, en við svikum þeirra og griðarofi vona eg að geta séð, því að eg er vanari við hernað í eyðimörku en þeir.« Síðan hvíslaði hann nokkrum orðum að hestasveini sínum, og öll framkoma hans bar vitni um, að hann mundi einráðinn í að sjá við aðför templarariddaranna. Kenneth riddari leit nokkuð öðruvísi á hættu þá, sem vofði yfir þeim, og þegar læknirinn sagði honurn að ríða sem næst sér, neitaði hann því með alvörusvip og mælti: »Parna úti í eyðimörkinni eru samherjar mínir, sem eg hefi svarið að berjast með eða falla og eigi kemur mér til hugar að flýja frá krossinum undir merki hálfmánans.« »Pú talar eins og heimskingi,* sagði Ha- kim. »Ef þú gengir í lið með þeim, mundu þeir eigi hika við að myrða þig, þótt aldrei væri í öðrum tilgangi en að dylja, að þeir hefðu gengið á sett grið og samninga.« »Pótt svo færi, yrði eg að sætta mig við þau örlög og vafalaust mun eg hrista af mér hlekki vantrúarinnar, hvenær sem eg fæ tæki- færi til þess.« »Pú vilt þá, að eg neyði þig til að fylgja mér?« »Neyða,« hafði Kenneth eftir með gremju- róm. »Ef þú værir ekki velgerðarmaður minn, eða að minsta kosti hefðir sýnt, að þú vildir vera það, og hefðir þú ekki sýnt mér það traust, að lofa mér að vera óhlekkjuðum, þótt þú hefðir getað haft á mér handjárn, þá mundi eg hafa sýnt þér, að enginn hægðarleikur er að ráða við mig, þótt eg sé vopnlaus.« »Um þetta er óþarfi að ræða og eyða dýr- mætum tíma,« sagði læknirinn, og um leið biés hann í pípu, hátt og skerandi hljóð. Við þetta merki tvístraðist sveit hans sitt í hverja áttina út í eyðimörkina. • Áður en Kenneth riddari gat áttað sig á því sem var að gerast, hafði Hakim læknir kipt af honum taumnum á hesti hans og hleypt sínum hesti og þeim sem hann nú teymdi undir riddaranum á rjúkandi sprett. Kenneth riddari var enginn viðvaningur að sitja á hesti, en aldrei hafði hann komið á bak hesti er hefði

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.