Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Side 40

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Side 40
166 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. »Og er þú sast að fótum hennar Lórengó, og hún hafði gleymt því í þungum hugsunum sínum, hversvegna hún hafði gert boð eftir þér, og þú sast hljóður og beiðst, og yfir þér var hennar yndislega andlit, fjarlægara í skýjum drauma sinna eft stjarnan er þér í hæð sinni, og þó svo nærri augliti þínu, að hver dráttur var gefinn aðdáun þinni á vald, hver yndis- lína, hvert litblóm hörundsins í sinni hvítu kyrð, sínum mjúka, bragandi rósablæ, — var þér þá ekki sem hún heyrði, þar sem hún sat, öðrum heimi til en þeim, þar sem þú beygðir kné í aðdáun, ætti sér annan heim í hjarta sínu, annan heim kringum sig, þar sem hugsanir hennar gengu brúðkaupsskrýddar að takmarki, er þér var ókunnugt, þar sem hún elskaði langt frá þér og þínu, þínum heim og öllu því, og dreymdi í fjarska og þráði í fjarska, og hvergi var neitt rúm að vinna handa þér í hug hennar — enda þótt þú log- aðir af þrá eftir því að fórna þér sjálfum sak- ir hennar, gefa líf þitt, alt, aðeins til þess að milli þín og hennar skyldi vera þó ekki væri nema svipur af samhygð, langtum minna en eining.« »Já, já, þú veist það, því er þannig farið. En . . . « / 1 þessu skokkar gull-græn ferfætla eftir járnkartarbrúninni. Hún nemur staðar og litast um. Rófan hvikar . . . Ef maður gæti náð sér í stein . . . Gæt þín nú, minn ferfætti kunningi! Nei, það verður ekki komið á þá höggi, þeir heyra til steinsins löngu áður en hann ríður að þeim. Jæja, honum skaut þó skelk í bringu. En riddarasveinarnir — þeir voru horfnir í einum svip. Hún sat þar svo prúð, bláa Ieikkonan, og nú lýsti einmitt hin sama, óvitandi þrá í augna- ráðinu, og væntingarfult óþol i öllum hennar hreyfingum, hinum óljósa sársaukadrætti um munninn, bæði er hún sjálf talaði, og miklu fremur er hún hlýddi á mjúka, djúpa rödd hins gula sveins, sem flutti henni af veggsvöl- unum hin storkandi og samt ástlátu orð, með keim af háði og keim af samhygð. Og er nú ekki eins og þeir séu báðir komnir aftur? Peir eru það, og þeir hafa leikið áfram leikinn meðan þeir vcru á burtu, hafa haldið áfram að tala um hina óljósu æskuást, sem al- drei nemur staðar, en sveimar þreyjulaus um öll lönd hinna þráandi drauma, alla heima vonarinnar, veik af þrá eftir að hverfa í heita glóð einnar, sameinaðrar, máttugra kendar. Um það hafa þeir talað: Sá yngri með sárum trega, hinn eldri stöðugt angurværri, — og nú segir hinn guli, sá eldri, við hinn bláa svein, að hann skuli ekki vera svo óðfús að endurást konu taki hann fanginn og haldi honum föstum. »Nei, trú þú mér,« segír hann, »sú ást er þú kennir bundinn tveim hvítum örmum, með tvö augu fyrir þinn nálæga himin og tveggja vara trygða sælu, hún er of nærri jörðinni og duítinu, hún hefir haft skifti á hinni frjálsu eilífð draumanna og hamingju sem mæld verð- ur í stundum og eldist að stundum. Pví þótt hún yngist æ aftur, þá glitrar hún í hvert skifti einum af þeim geislutn, sem glitra í helgi- Ijómasveig, er aldrei fölnar um draumanna éilífu æsku. Nei, þú ert hamingjusamurl*, jNei, þú ert hamingjusamur.* svarar hinn blái, »heilan heim vildi eg gefa, að eg væri sem þúl* Og hinn blái sveinn rís á fætur og heldur eftir veginum út á vellina, og guli sveinninn horfir eftir honum með angurværu brosi og hvíslar fyrir munni sér: *Nei, hann er ham- ingjusamurN En lengst út á veginum snýst hinn blái sveinn enn einu sinni við veggsvölunum og hrópar, lyftir húfunni: »Nei, þú ert hamingju- samurlc Par skyldu hafa verið rósir. Og svo gæti vel komið dálítil vindhviða og hrist reglulega skúr af rósblöðum af blórn- þrungum greinunum, og hvirflað þeim eftir hinum brottgengna riddarasveini. Porkell undir Fjalli, þýddi. ----------------

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.