Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Page 47

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Page 47
SNJÓKÚLAN. 173 um, sem hún hefir átt og klæðst. Hákon sagði að það væri synd að láta þetta fúna og möl- jetast, sem önnur börn gætu haft gleði og not af, og drengurinn hefir ætíð á réttu að standa.« Ragna leit fyrst á fötin og síðan á Ingi- björgu, síðan hvarflaði hún augunum til Há- konar, sem sat við gluggann. Hún mætti hinu rólega og drengilega augnar^ði hans, og áður en hún þakkaði fyrir sig, stökk hún til föður síns og fal höfuðið við brjóst hans og fór að gráta. »Retta er lélegt þakklæti,« sagði Ingibjörg. Ragna leit upp, þurkaði tárin úr augunum og sagði fastmælt: »Kæra þökk fyrir fötin,— mér komu þau afar- vel, — — eg grét bara af gleði.« Svo leit hún niður á gamla kjólinn sinn og strauk hann blíðlega, eins og hún væri að skilja við gaml- an vin og flýtti sér svo út. Hún klifraði upp í hæsta tréð, sem hún kom auga á, — gamla kjólnum gerði það ekkert til, — og sat þar og horfði yfir umhverfið, sem hvildi svo friðsælt í faðmi vetrarins. Hún gætti ekkert hvað tím- inn leið og varð ekki kuldans vör. Hugurhenn- ar var allur á reiki, svo hún náði eigi föstum tökum á neinni hugsun. Hún hrökk upp af leiðslu við það að heyra Hákon tala, og rendi sér þá undirleit niður úr trénu. »Andarunga er hægt að gera ófleyga,* mælti ,hann brosandi, »en það er ekki til neins að stýfa flugfjaðrirnar á erninum, þær vaxa aftur og fuglinn hefur sig enn hærra upp á móts við 'skýin. — Pabba þínum er farið að lengja eftir þér. Komdu nú góða.« Ingibjög mætti henni í dyrunum. Pað átti að vera skemtun þar um kvöldið, og ef Ragna ætti að geta tekið þátt í henni yrði hún að líta ögn betur út, og umyrðalaust leiddi Ingibjörg hana inn í svefnherbergi sitt. »Hákon vill að þú lítir ekki ver út en hin- ar telpurnar, svo nú verður þú að þvo þér, og verða falleg stúlka. Strax og Ragna hafði lokið að þvo sér, tók Ingibjörg skærin og klipti miskunarlaust mikla, dökka hárið hennar. Ragna mælti ekki orð en grét heitum tárum að skilnaði. Fötin af Helgu sálugu fóru Rögnu eins vel eins og þau hefðu verið sniðin á hana. Ingi- björg virti hana fyrir sér með tárin í augunum. Ragna stóð fyrir framan hana, hún var' mjög föl og varirnar skulfu, Ingibjörg lagði blíðlega höndina á nýklipta höfuðið og fór sfðan út úr herberginu. Pegar hún var farin, kraup Ragna niður og virti fyrir sér hárið, sem lá þar á gólfinu, og brast í grát. Svo tók hún gömlu fötin saman, vafði þau í böggul og fór út. Hún faldi bögg- ulinn í sleðanum gamla og gekk svo inn í stof- una. Par var gleðin byrjuð. Jafnskjótt <pg hún kom inn leit Hákon á hana og brosti, og því leng- ur sem hann virti hana fyrir sér, því erfiðara átti hann með að halda hlátrinum í skefjum. Pað var fleirum en honum, sem kom hún kát- lega fyrir sjónir. Hún hafði aldrei verið reglu- lega falleg, en fjörið og glaðværðin hafði bætt upp það sem á fegurðina skorti. En nú stóð hún þarna á miðju gólfi, teinrétt og alvarleg, eins og myndastytta, með snoðklipt höfuðið og starði út í loftið eins og fáráðlingur. Allir fóru að skellihlæja og hláturinn buldi á Rögnu eins og óveður, henni fanst eins og kuldanepja næddi í gegn um hana. Hún horfði hálfringluð í kring um sig, svo var eins og líf færðist í haua, hún flýtti sér út í arinskotið til föður síns og fleygði sér í faðm hans. Hans klappaði henni blíðlega á kollinn og talaði hughreystingarorðum til hennar. lngibjörgu féll þetta atvik illa, og bað hljóðfæraleikarann að taka til starfa. Dansinn byrjaði og allir gleymdu Rögnu. Pegar hún sá að henni var ekki lengur veitt athygli, dró hún andann léttara, þrýsti hönd föður síns og læddist svo lítið bar á út úr stofunni. Strax og hún var komin út fór hún að leita að Sám. Hún vissi að hann mundi ekki hlæja að henni. Honum þótti jafnvænt um hana hvernig sem hún leit út. Hún vafði hand- leggnum utan um hálsinn á trygga dýrinu og hvíslaði að honum því, sem þyngdi hjarta

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.