Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Síða 56

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Síða 56
182 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ætlaði fyrst að fara í kirkju ásamt Hákoni, og svo á skíði og skauta með veislufólkinu í Birkidal. Hákon bar höfuðið eins hátt, er hann gekk inn kirkjugólfið, og það væri konungsdóttir sem við hlið hans gengi. Athygli alls kirkjufólks- ins beindist öll að þeim, honum fanst kjark- urinn þverra, — en jafnhált bar hann höfuð- ið fyrir því. Pegar farið var úr kirkjunni, gengu allar ungmeyjarnar í einum hóp, en eng- in þeirra lést sjá Rögnu, svo hún varð að ganga ein síns liðs. »Stúlkan þín er fremur einmana!< sagði einn af félögum Hákonar, glottandi. »Ekki þegar eg geng við hlið hennar,® sagði Hákon djarflega og gekk til hennar. »Pú verður eigi öfundaður af þeim félags- skap!!« sagði annar háðslega. Hákon svaraði eigi, en svipþungi kom á andlit hans. Upp frá ánni var hátt fjall, mestmegnis skógi vaxið. Niður við ána slútti fram á einum stað hrikalegur klettur, sem sýndist að því kominn að hrynja þá og þegar, en þannig hafði hann staðið í mörg herrans ár, og öllum var kunn- ugt um, að eigi var að óttast, að hann mundi hrynja skjótt. Piltarnir stigu nú á skíð- in og höfðu stúlkurnar fyrir aftan. Hákon tók Rögnu á skíðin sín, hún var döpur í bragði og kvíðandi, roðinn í kinnum hans spáði engu góðu. Hákon fór hæsta upp í fjallið og rendi sér fram af hengifluginu við ána, þau tóku feikna loftkast og ekkert hinna þorði að fylgja þeim eftir, en Ragna stóð teinrétt og ó- skeikul á bak við hann og hló að hættunhi »Bara að ísinn á ánni brotnaði, og skíðin flýgju með okkur í faðm straumiðunnar — faðm dauðans — og skolaði okkur á brott með sér,« hugsaði hún. Svo var hætt á skíðunum, og sleðaakstur- inn hófst. Félagar Hákons þyrptust utan um hann með keskni og gamanyrðum, og mörg ör hæfði hann í hjarta þá stund. Hann treysti sér ekki að líta á Rögnu. Skömmu síðar stóð Inga við hlið hans. »Viltu sitja á sleðanum hjá mér oían brekk- una?« spurði hann vandræðalegur. »Við hliðiua á flökkustelpunni! Nei þökk fyrir. Pann félagsskap kæri eg mig ekki um.« Hákon beit svo fast á vörina að blæddi úr, og vék sér að annari stúlku, en fékk sama svar. Ragna stóð skamt frá, og þótt hún heyrði eigi orðaskil, sagði hjartað henni hvað um var að vera. Snjóbreiðan umhverfis hana var eigi hvítari en andlit hennar. Hákon spyrnti fæti í sleðann, svo hann rann niður brekkuna og hraut út í ána. »Eg skal aldrei renna mér framar á sleða,« tautaði hann harmþrunginn. Félagar hans fóru að kasta snjókúlum á eftir sleðanum, og meyjarnar tóku þátt í leiknum, með hverri kúlu, er hæfði, fylgdi hlátur og og hæðnisglósur. Hákon horfði á með krosslagðar hendur, og blóðið brann í æðum hans. Honum fanst þessa stundina Ragna eins og álfkona, er hefði tælt hann afvega, og alt háðið, og sáryrðin koma frá henni. »Ætlar þú ekki líka að taka þátt í snjó- kastinu og reyna að hæfa sleðann?* hrópaði einn piltanna. Hákon tók handfylli sína af snjó og hnoðaði af alefii. Alt í einu sagði Inga háðslega: »Ragna er ágætur skotspónn. Hún stendur alveg hreyfingarlaus, og hún legg- ur þó aldrei á flótta, þó reynt verði að hæfa hana, nema hún sé því huglausari. Inga kastaði sinni snjókúlu í áttina til Rögnu, Allir aðrir fylgdu dæmi hennar. Ragna hreyfði sig ekki, en sársaukabros lék um varir hennar, engin kúlan meiddi hana neitt, svo heita mátti; Hákon stóð enn kyr með snjókúluna í hend- inni. Alt í einu hrópaði Inga: »Sjáið þið hvað hann er hræddur vesaling- urinn! — Hann þorir ekki að kasta kúlunni, af hræðslu við að hann fái ávítur þegar heim kemur!« Inga hafði tæplega Iokið máli sínu, þegar Hákon þeytti kúlunni af alefli. Kúlan lenti í enni Rögnu. Hún reikaði og þrýsti báðum höndunum að hjarta sér,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.