Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Síða 58

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Síða 58
184 NÝJAR KVÖLDVÓKUR. Rar gekk hann álútur fram og aftur, eins og hann væri að leita að einhverju. A!t í einu rak hann upp gleðióp, beygði sig niður og tók upp gullhringinn, sem Ragna hafði fleygt. Hann hafði fundið hringinn eftir nokkurra klukkustunda leit. »Hún skai fá að sjá hann afíur, hún skal fá að sjá hann,« tautaði hann og hélt af stað heim til sín. Pundur hringsins hafði glætt vonar- neista í hjarla hans. Engum hafði þótt verulega vænt umRögnu, meðan hún var í Argarði, en nú, er hún var farin, grétu allar stúlkurnar hástöfum, því að þá fyrst varð þeim það Ijóst, hvað Ragna hafði verið þeim. Hið fyrsta, er Hákon kom auga á í Argarði, voru stúlkurnar, allar grátandi, og hugrekki hans þvarr til muna. Hann gekk inn í stofuna og sá þar sálmabókina á borðinu með nafni hennar. Honum fanst hún vera ákæra á sig. Hann tók sálmabókina og opnaði hana af handahófi. Hann las upphátt sáiminn, er hann kom niður á. Sálmurinn hljóðaði allur um kær- ieika og fyrirgefningu en eigi um reiði, hefnd né dóm. »Já,« sagði hann lágt, og lokaði bók- inni. »Sé kærleikurinn nógu mikili fylgir hon- um blessun þrátt fyrir alt mótlæti.« Hann stakk bókinni á sig, dró hringinn á fingur sé'*, tók staf í hönd og hélt af stað að heiman. Hans og Ragna hröðuðu sér eftir þjóðveg- inum, sem mest þau máttu. Hvert fótrnál, er fjarlægði þau frá helmili hans, létti þungum steini af hjarta hennar, — og þó — henni fanst það vera jafn þungt eítir sem áður. Klukkan 9 um kvöldið náinu þau stuðar í afskektu gistihúsi. Drykkjustofan var auð, og eldurinn brunninn út á arininum. Veitingakonan var mjög góðgjörðasöm, gaf þeim bæði mjólk og brauð og leyfði þeim að sofa í drykkju- stofunni um nótt na. Ragna hagræddi föður sínum eins vel og henni var unt. Svo lagðist hún sjálf á gólfið við hliðina á Sám, vafði handleggjunum ut- an um háls hans og brast í grát. í fyrs u var gráturinn bitur og sár, en eftir því sem tárin runnu lengur, skoluðu þau mesta jsársaukanum og reiðinni á brott með sér, og að lokum sofnaði hún út frá angurværum barnsgráti, er hafði slétt úr hörkudráttunum og gefið henni angurværan og harinblíðan svip með öllum ein- kennum æskunnar, enda var Ragna aðeins lóára. Stuttu á eftir opnuðust dyrnar hljóðlega. Sámur hóf höfuðið, en svefninn hafði fjötrað Rögnu og föður hennar svo ramlega, að þau urðu einkis Vör og hreifðu sig eigi. Unglingurinn, er inn konT*kiptist við, er hann leit Rögnu á gólfinu. Nokkur augnablik stóð hann kyr og horfði á hana — svo beygði hann sig yíir hana og stórt tár féll niður á hár hennar. Sámur leit framan í hann, eins og hann vildi hughreysta hann, en hreifði sig ekki, til að vekja eigi Rögnu. »Hún skal fá að sjá hringinn, — hvort sem henni fellur það vel eða eigi,« sagið hann, og dauft bros lék um varir hans. Hann leysti festina frá úri sínu, festi hringinn í hana og batt svo utan um hálsinn á Sám. Dýrið trygga dillaði skottinu og sleikti hönd hans. Hákon tók sálmabókina upp úr vasanum og fletti upp sálmi, er talaði um yðrun og fyrirgefning, og lagði hana svo á gólfið við hlið Rögnu. Að því loknu læddist hann hljóðlega út úr stof- unni. Ragna vaknaði eigi fyr en veitingakonan kom inn næsta morgun. Hún kom óðara auga á sálmabókina,— hún hrökk við. Henni kom fyrst til hugar að ýta henni frá sér, en hætti við það og tautaði eins og sér til afsökunar: »R:tta er þó guðsorð.« Hún las sálminn, og skildi vel hugsanir þess, er hann hafði valið. Sámur hljóp um kring, eins og hann væri orðin ung- ur í annað sirrn, en hann bar sig að, eins og hann þyrfti að segja henni frá einhverja. Hún klappaði honum, og varð þá vör við úrfestina hún leysti hana og starði mállaus af undr- un á hringinn, sem hún áleit að hún myndi aldrei sjá framar, festin var uppáhald Hákon- ar, því hún var gjörð úr hári móður hans, en samt sem áður hafði hann skiiið hana eftur handa Rögnu. »Hann elskar mig þrátt fyrir

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.