Teningur - 01.04.1986, Blaðsíða 8
KARL KVARAN
í LISTMUNAHÚSINU
Þaö verður forvitnilegt að sjá þróun
mynda Karls Kvarans á löngum starfs-
ferli hans, en Listasafn íslands mun
halda yfirlitssýningu á verkum hans á
næstu listahátíð. Það er einungis ljóst
þeim er fylgst hafa með sýningum Karls
frá upphafi hvernig verk hans hafa
breyst í gegnum árin. En verk hans hafa
ekki einungis þróast frá sýningu til sýn-
ingar. Hvert málverk Karls á sér langa
sögu. Það sést ef rýnt er í yfirborð flatar-
ins. Undir snæhvítu yfirborðinu má
greina ótal lög lína og forma. Yst er síð-
an fullsköpuð myndin, leikandi svartar
línur og einstaka sinnum glittir í skæra
liti inn á milli. í tússmyndunum er löng
saga sköpunarinnar ekki sýnileg á fletin-
um. í staðinn skynjum við augnablikið
og fullkomna ögun.
Ogun og jafnvægi eru þau orð sem má
hafa yfir heildaráhrif sýningar Karls.
Fegurð myndanna felst í vinnubrögðun-
um sem svo sannarlega skína í gegn.
HALLGRÍMUR HELGASON
í LISTMUNAHÚSINU
Landslagið, sem var aðalyrkisefni þessa
unga listamanns á síðustu sýningu hans,
hefur nú vikið fýrir öðru. Sólin er gengin
til viðar (Síðasta sólarlagið nr. 4) og nú
fylla kropparnir himin næturinnar í
draumalandinu. Grímur er í ævintýra-
vímu og málar kroppalitteratúr heims-
listarinnar sem hann hefur kynnt sér
rækilega í bernsku og í listaskóla hjá
Thames & Hudson. Einkum vitnarhann
þó í stórmeistaraliðið, Picasso, Leon-
ardo, Michaelangelo, Blake og fleiri.
Auk málverkanna sýnir Hallgrímur 280
teikningar unnar á A4 nýgullinsniðs-
pappír.
Hallgrímur Helgason er mjög flinkur
málari. Hann málar í anda ný-útþynn-
ingarstefnunnar og notar Winsor &
Newton Oil Painting Medium til að flöt-
ur málverksins verði sléttur og felldur.
Aðeins í einni myndinni sáust smá
hnökrar, en það var í myndinni Þrjár
systur, nr. 12. A maga einnar systurinnar
höfðu límst nokkur hár sem fallið höfðu
úr pensli þessa unga listamanns. Það er
vonandi að Hallgrímur athugi í framtíð-
inni betur gæði pensla sinna.
Þessi fyrstu spor Hallgríms Helgasonar á
listabrautinni lofa um margt góðu, um
áframhaldið er ekki gott að segja, tíminn
einn leiðir það í ljós.
EGGERT MAGNÚSSON
í LISTMUNAHÚSINU
Eggert Magnússon er sjómaður og vél-
stjóri sem nú er sestur í helgan stein. í
myndum sínum segir hann okkur sögur
og lýsir atburðum. Eggert er Reykvík-
ingur og á ættir að rekja af suðvestur-
horninu, þaðan er líka flest innlenda
myndefnið. f málverkunum er andrúms-
loft ævintýra. í fallegum litum ferðast
hann um fjarlæg lönd og fortíð, og á
kíminn hátt sýnir hann okkur frægt fólk,
fugla, fiska, hvali og rostunga. Dýrin eru
fremur villt en tamin. Þannig er líka list
Eggerts Magnússonar, ótamin. Ekkert
hefur haldið honum frá því að hefja
Iistamannsferil sinn á miðjum aldri. Sýn-
ing Eggerts Magnússonar í Listmuna-
húsinu var einstaklega falleg.
EINAR ÞORLÁKSSON
í ÍSLENSKRI LIST
Einar Þorláksson sýndi akrylmálverk af
meðalstærð í íslenskri list. Myndimar á
sýningunni voru abstrakt, þó ekki þann-
ig að maður hefði á tilfmningunni að
þetta væri eingöngu litur, lína og form
heldur var eitthvað lífrænna á ferðinni.
Það er einhver dularfull stemmning í
þessum myndum og hefur Einar dálitla
sérstöðu hér á landi, en gæti stundum
tengst þeim tilfinningum sem vissir ungir
hollenskir myndlistarmenn eru að vinna
með í verkum sínum. Málverkin em
þunnt máluð og ekki mikið um yfirmál-
un. Þó virðist það alls ekki þannig að
kastað hafi verið til höndum eða yfirlegu
skorti. Einar á fyllilega skilið meiri at-
hygli.
TUMI MAGNÚSSON
í NÝLISTASAFNINU
Tumi Magnússon sýndi í Nýlistasafninu,
olíumálverk, gouache og akrýlmyndir.
Tumi hefur gert mjög spennandi og per-
sónuleg verk undanfarin ár, en með
6