Teningur - 01.04.1986, Side 53

Teningur - 01.04.1986, Side 53
fannst mér að ég hefði ekkert lesið, að ég vissi ekkert um það.3“ Leikhúsið krefst beinna kynna. Þess vegna skipta leikferðir svona miklu máli. Þar fá menn að sjá, í orðsins fyllstu merkingu, nýja fegurð. Og það er aðeins þannig sem menn koma auga á það sem er nýtt við hana. Ef Meininger-leikar- arnir og sýningar þeirra eru upphafið að nútíma sviðsetningu, þá er það vegna leikferða þeirra um Evrópu. Antoine fer til Brussel til þess að sjá þá leika í la Monnaie árið 1888. Hann er enn sem þrumu lostinn þegar hann skrifar í frægu bréfi:, ,Þetta er að öllu leyti ólíkt því sem við fáum að sjá í París.“4 Stanislavski helgar Meininger-leikurunum kafla í ævisögu sinni og segir að „sviðsetningar- formúIaþeirraséglænýíMoskvu. . .Eg missti ekki af neinni sýningu, ég yar ekki bara að horfa á: ég var að læra.5“. Onnur mikils háttar leikferð verður til þess að and-natúralískar hræringar finna stuðning í austrænni list. Þegar Sadda Yacco kemur árið 1900 verður Gordon Craig stórhrifinn og finnur í fullkomnun hennar drög að þeim leikstíl sem hann er sjálfur að leita að. Mörgum árum síðar segir Meyerhold frá því að það hafi haft varanleg áhrif á sig að kynnast þessari japönsku dansmey. Hún fer um Evrópu, frá London til Moskvu með viðkomu í París, Vín og Varsjá, og leikferð hennar hefur varanleg áhrif á evrópska leikhús- hugsun í upphafi aldarinnar. Fleiri leikferðir frá Asíu verða stefnu- mótandi í fagurfræðilegum grundvallar- efnum á tuttugustu öld. Brecht setur fram kenninguna um fjarlægingu eftir að hann hafði séð Mei Lan-fang. Skilgrein- ing Artauds á líkamlegu máli handa leik- húsinu verður ítarlegri í grundvallarat- riðum eftir að hann sá balíníska leikhús- ið. Meyerhold og Eisenstein hagræddu kenningum sínum um mál í Ieikhúsi þeg- ar þeir komust í snertingu við kabuki- leikferð Ichikawa Sadonji árið 1928 - og Mei Lan-fang-leikferð til Moskvu árið 1935. Stanislavski talaði meira að segja oft um Mei Lan-fang við leikarana sína á síðustu árum ævi sinnar. Leikferðin gef- ur dæmi um leikhús úr öðrum heimi - fjarlægðin skiptir miklu fyrir það hvem- Sadda Yacco. 51

x

Teningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.