Birtingur - 01.06.1959, Blaðsíða 6
hann eyjarinnar sinnar með söknuði. Ég á aðeins þig / þú hjarta ættar
minnar, segir hann um hana í ljóði. Nafnið Sikiley kemur mjög oft
fyrir í Ijóðum hans, hún er honum eins og Wales Dylan Thomas og
Andalúsía var fyrir Lorca.
Fyrsta bók Quasimodos kom út 1930. Hún hét Vatn og jörð. í þessari
bók er hann mótaður af hermetismanum, sem var ríkjandi bókmennta-
stefna á Italíu milli heimsstyrjaldanna. Hermetistarnir dýrkuðu ljóða-
gerð sem var orðfá og torskilin, óaðgeingileg fyrir almenna lesendur.
Kannski var hermetisminn flótti. Fasisminn var að skjóta rótum, fútúr-
istarnir höfðu ruðst fram með miklum bægslagángi, lofsýngjandi stríð og
vélaskrölt með Marinetti í broddi fylkíngar. Það var því eingin furða að
skáldin drægju sig í hlé, leituðu að einhverju varanlegu á bak við grimm-
an veruleikann. Meðal þeirra skálda sem aðhylltust hermetismann voru
þeir Ungaretti og Montali, sem nú eru talin ásamt Quasimodo merkustu
nútimaskáld Itala.
En skáld eins og Quasimodo undi ekki leingi í fílabeinsturninum. Stríðið
koin brjótandi niður hugsjónir og vonir, hið miskunnarlausa stríð sem
neyðir alla til að endurskoða afstöðu sína, sjá heiminn í nýju ljósi eða
myrkri. Og skáldið varð djúpt snortið af hörmúngum þjóðar sinnar, ljóð
þess breytast, verða auðskildari. Þau eru mikið lesin, því þau fjalla um
hluti sem öllum voru hugstæðir um þessar mundir. Hinn harmræmi tónn
þeirra varðar nú ekki leingur einn mann, heldur verður harmur allra
manna:
Og hvernig ættum við að geta súngið
með ókunnan fót á hjarta
við hlið þeirra sem skildir voru eftir
hér á torginu
dánir í frosnu grasinu
Og hvernig ættum við að geta súngið
þegar barnið grætur
og móðirin finnur son sinn
krossfestan við símastaur
Nei
Hvernig ættum við að geta súngið
Hörpur okkar voru einnig festar upp
í greinar pílviðarins
og vögguðu hljóðar í vindinum
Þetta kemur skýrast fram í bókinni Dag eftir dag, 1947, sem þetta ljóð
birtist í, og Lífið er ekki draumur, sem kom út 1949. Það nafn er tákn-
rænt fyrir skáldið. Seinni ljóð þess eru aðvörun til okkar að láta ekki
ógnirnar gerast á ný, þau eru baráttuljóð fyrir mannlegleikanum, friðar-
2 Birtingur