Birtingur - 01.06.1959, Blaðsíða 80
— Góðan dag, vinkona, sagði hún.
María lyfti augnabrúnunum.
— Við þekkjumst þó ekki, sagði hún.
— Það er sama, sagði Agnieska. — Við komum til með að kynnast
betur og hjálpast að með eitt og annað.
— Við giftum okkur í vikunni, sagði Zawadski. Andlitið ljómaði af
hamingju. — Nú fer ég að útrétta eitt og annað sem vantar. Ég er bú-
jnn að fá nóg af aðskilnaðinum. Óskarðu ekki til hamingju?
— Til hamingju, sagði hún — einkum þér eftir allar áhyggjurnar sem
þú hafðir. Þarna sérðu! Dygðugar tilfinningar uppskera alltaf sín
laun. Á því byggist heimshrynjandin. Verið bless í bili; ég þarf að fara
á fyrirlestur.
Zawadski og María brostu til hennar. Hún kinkaði kolli. Enn einu sinni
snéri hún inn í stofuna eftir töskunni sinni. Faðir hennar stóð við glugg-
ann og horfði niður á götuna.
— Lágskýjað, sagði hann. — Nú rignir hann alla vikuna. . . Hann
snéri sér að henni. — Guð minn góður, sagði hann — bara að það
væri kominn sunnudagur.
Eftirmáli frá ritstjórninni
Því miður hefur nafn Þorvaldar Ágústssonar fallið niður en það átti að
fylgja viðtali Thors Vilhjálmssonar við Robbins. Þorvaldur hefur tekið
ljósmyndirnar sem greininni fylgja.
Útkoma ritsins hefur dregizt af óviðráðanlegum orsökum, vegna anna í
prentsmiðju o. fl. Þess skal getið að efnið var fullsett í desembermánuði
s. 1. Lesendur eru beðnir að afsaka hve útkoma ritsins hefur dregizt.
Þeir sem ekki hafa ennþá greitt áskriftargjald sitt eru beðnir að gera
það hið bráðasta annað hvort í Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar eða til
Einars Braga, Unuhúsi við Garðastræti.
76
Birtingur