Birtingur - 01.06.1959, Blaðsíða 53
— Nú man ég það, sagði hún.
— Hvað?
— Hvar ég sá þetta andlit sem er svona líkt þér. Kanske var það
ekki einu sinni andlitið, kanske bara maður sem stóð í sömu stellingum
með sama svipinn á andlitinu.
— Nú?
— Það var í kvikmynd. Uppreisnarmaður drepur mann af tilviljun og
verður að flýja. Hann særist sjálfur. Allur bærinn er á hælum hans;
lögreglan, njósnarar, nokkrar smáhýenur; allir eru á eftir honum í ein-
um eða öðrum vesölum tilgangi. Og stúlkan hans leitar líka að honum.
— Það var fallega gert af henni. Hvað svo?
— Loksins finna þeir hann, sagði Agnieska. Hún brosti: — Það finnur
hann þar sem hann liggur fyrir dauðanum og hefur ekki þrótt til að
flýja lengur. Lögreglan nálgast, ég man vel eftir ljóskösturunum þegar
þeir koma. Og þá ákvað stúlkan að deyja með honum. Ég man ennþá
lokaorð myndarinnar. Deyjandi maðurinn spyr: ,,Er langt enn?“ Og
hún svarar: „Já, það er löng leið, en við förum hana saman“.
Hún þagnaði.
— Og hvað svo? spurði hann.
— Og þau deyja saman, Zawadski. Þau deyja fyrir kúlum lögreglunnar.
En það er ekki það sem mestu máli skiptir. Þau treysta hvort öðru
fram á síðustu stund. Auðsýnilega á það svo að vera, öðru vísi hefur
það víst ekkert gildi, bara þannig. Lífið ógnar með sldlnaði en dauð-
inn sameinar að eilífu.
— Þú ert kjáni, skilurðu það?
— Já. Góða nótt.
Hún fór.
VII
Hún leitaði hans á öllum knæpum í miðbænum og fann hann hvergi;
hún leit inn á staðina þar sem fyrirfólkið var vant að skemmta sér
og hina staðina þar sem starfsmennirnir koma með skjalatöskur sínar
með vodkaflöskum í til að taka upp undir borðinu. I „Kameralna“
hvísiaði dyravörðurinn — hinn fyrirferðarmikli Miecio, einkavinur
Grzegorz — um leið og hann dró annað augað í pung: „Hann var hérna
en fór eitthvað lengra niður í bæinn. Hann á víst í einhverjum hjarta-
sorgum uppá síðkastið, eða hvað?“ „Já“, sagði Agnieska. Hún var
úrvinda eftir að horfa inní hundruð drukkinna andlita og eftir óteljandi
samtöl við dyraverði á knæpunum; hún reikaði á fótunum og hugsaði
í sífellu: „Sofa, sofa....“ Miecio tók hana og leiddi að fatageymsl-
unni; þar hellti hann í hana glasi af vodka og sagði: „Þér ættuð að
Birtingur 49