Birtingur - 01.06.1959, Síða 69
— Hún hver?
— Stúlkan þín.
— Það ég best veit er eng-in stúlkan mín.
— Þú ert þó að bíða eftir henni.
— Ég hef beðið eftir fleiru. Ekkert af því hefur rætst. Hann reis
snögglega á fætur. — Hvað gengur þér eiginlega til? Ef þú vilt fá
svör við dægurvandamálunum þá lestu „Vettvang æskunnar“. Þar
voru einu sinni fyrirspurnir um það hvað meðlimir hinnar kommúnist-
ísku æsku segðu um ástina. Mjög lærdómsríkt. Hvað þessi krakka-
rassgöt gátu borið á borð um konur og ástir, það var sko Balzac sem
segir sex. Og má ég svo fara að sofa.
Faðir þeirra kom inn.
— Mamma ykkar er sárlasin, sagði hann. — Hún kvartar undan hjart-
anu. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera.
— Það er best að gera ekki neitt, sagði Grzegorz — þá geturðu að
minnsta kosti sagt með hreinni samvisku að þú hafir ekki flýtt fyrir
því. Og kanske þið gætuð svo hypjað ykkur með þessi stóru vandamál
ykkar sem ekki eru annað en rok í vatnsglasi.
Agnieska drakk teið sitt og fór niður. Pietrek beið eftir henni í undir-
ganginum.
— Við skulum fá okkur kaffi einhvers staðar, sagði hún. Hún kastaði
hettunni yfir höfuðið. — Það er best við minnumst ekki á það í
dag.
Hann kinkaði kolli.
Kaffihúsin voru yfirfull og engin borð laus. Þau tóku sporvagn niður
í miðbæinn. Nokkrir áberandi drukknir menn voru á pallinum. Þeir
höfðu sýnilega skálað fyrir hinum nýja degi þegar aðrir fóru í spari-
fötin.
— Heyrðu, sagði Pietrek: hefurðu nokkurntíma gert þér ljóst hvernig
Pólland er?
— Hvað áttu við?
— Jú, Marianne er tákn Frakklands, sagði Pietrek — ameríkanar
vilja gjarna láta svo sem frelsisgyðjan sé tákn lýðræðisins þar, Paiss-
land táknar sig stundum í bjarnarlíki. Og Póiland?
— Það veit ég ekki.
— Ég hef oft hugsað um það, sagði hann. — Veistu hvað? — Hann
benti á fylliraftana: — Einmitt svona náungi í sportfötum uppá sex-
hundruð zloty. Góðglaður. I risastórum biðsal. Stefnulaus. Og til að
fullkomna myndina gæti hann verið með viðhafnarútgáfu af „Hinum
göfga anda“ í vinstri hendi og flösku í þeirri hægri — vegna jafnvægis-
ins. Er það alveg fráleitt?
Birtingur 65