Húsfreyjan - 01.10.1964, Page 27
fer nokkuð eftir því magni, sem smurt er.
Þó er hæfilegt að gera ráð fyrir 3—4 teg-
undum fyrir utan síld og ost.
Þegar raðað er á fötin, má ýmist leggja
liverja brauðtegund á fat fyrir sig, eða
blanda þeim saman. Síld er þó ætíð höfð
sér á fati og einnig ostur. Er þá gert ráð
fyrir því að síldin sé borðuð fyrst og ost-
urinn seinast.
Setjið brauðsneiðaranr ekki of þétt á
fötin, svo að þær njóti sín, og raðið þeim
þannig að litirnir fari vel saman. Brauð-
fötin má oft skreyta með salatblöðum,
steinselju, tómatbátum og sítrónusneiðum.
Hafið skrautið þó ekki það mikið, að það
sé sem blómagarður á að líta.
Setjið ekki brauðfötin inn á borðið, fyrr
en á síðustu stundu. Geymið þau á köldum
stað, vel tilbirgð, svo að brauðið þorni ekki.
Hér á eftir koma svo nokkrar vísbending-
ar um álegg, brauðtegund og skraut á smurt
brauð við betri tækifæri.
REYKT ÁLEGG.
Hangikjöt:
Rúgbrauð eða flatbrauð. Fellið kjöt-
sneiðina á brauðsneiðina, leggið sneið af
eggjaldaupi eða eggjabræru á miðja sneið-
ina. Stingið steinseljutoppi í.
Skinka:
Heilhveitibrauð eða rúgbrauð. Fellið
kjötsneiðina á brauðsneiðina. Setjið eggja-
bræru á miðjuna og þar ofan á majonnes,
sem lirærð befur verið lit með dálitlum
tómatkrafti. Þar ofan á agúrkusneið eða
niðurklipptur karsi. Á skinku er einnig
gott að láta ítalskt salat.
Ham borgarliryggur:
Heilliveitibrauð eða rúgbrauð. Á kjötið
er ýmist bægt að láta lirærð egg, liráa
sveppi í majonnes, ananas, agúrku og tó-
mata auk remoulaðisósu.
Reyktur lax:
Hveitibrauð. Reyktur lax er beztur án
nokkurs nema með nýmöluðum pipar.
Einnig er liægt að láta á liann eggjaliræru
og eitthvað grænt eða piparrótarrjóma, alls
ekki neitt með majonnes, þar eð laxinn
sjálfur er svo feitur.
Reyktur áll:
Rúgbrauð. Þekjið brauðsneiðina með
ál, leggið ofan á liann að endilöngu eggja-
bræru, skreytt með grænu. Einnig er gott
að liafa ofan á álinn lirátt, fínt rifið bvít-
kál í rjómamajonnes eða liráa sveppi, nið-
ursneidda í livítlaukskryddnðu majonnes.
Reykt síld:
Rúgbrauð eða beilbveitibrauð. Raðið
síldarsneiðunum fallega á brauðsneiðarnar,
klippið graslauk yfir. Einnig má liafa
eggjahræru með steinselju, breðkur, eggja-
rauðu eða eggjasneiðar með dálitlu af
majonnes á. Framhald á bls. 42
HÚ9FREYJAN
25