Vera


Vera - 01.04.2001, Page 9

Vera - 01.04.2001, Page 9
Feg u rða rsa m keppn i kúa Opera er glæsileg ung kýr og vel að fyrsta titlinum komin. Hún segist hafa verið mjög hissa á að vinna keppnina: „Ég bjóst alls ekki við þessu," segir hún við VERU. Ópera játar feimnislega að hafa fellt tár þegar úrslitin voru tilkynnt, en hún er mjög fallega eygð og hafa brúna- ljósin brúnu hennar örugglega tindrað fag- urlega við það tilefni. Hún segir að það hafi verið mjög þroskandi að taka þátt í keppn- inni og henni finnst að sem flestar kvígur ættu að stefna að þátttöku. Henni finnst mjög leiðinlegt að hafa ekki hitt hina kepp- endurna en þær voru ailar uppteknar við skyldustörf. „Ég er viss um að við hefðum allar orðið góðar vinkonur," segir Ópera og brosir geislandi brosi. Eyjo frá Eyjafjarðarsveit var kjörin Ljósmyndafyrirsætan, og bíða hennar örugglega mörg tækifæri í framtíðinni. Skrauta varvalin Miss T - Bone. Hún verður full- trúi keppninnar á erlendri grundu og er enginn vafi að hún verður landi og þjóð til sóma. Ungfrú Gateway var kjörin með viðhöfn 18. apríl síðastliðinn. Hin heppna heitir Opera og er sjö ára yngiskýr frá Bjólu í Djúpárhreppi. Flekka var kjörin Ungfrú júgurstærð. Doppa hlaut titilinn Ungfrú fótleggir. Kýrnar sem þátt tóku í keppninni lögðu allar mikið á sig til að vera sem glæsilegastar á lokadeginum, enda til mikils að vinna að láta draum allra kvíga rætast: Að fá borða um hálsinn og vera miðpunktur athyglinnar. Enda fór það svo að dómnefndin, sem skipuð var valin- kunnum dómnefndarmönnum, s.s. Bald- vini Jónssyni og Ástu Kristjánsdóttur, átti í mesta basli með að gera upp á milli kepp- enda og fengu því flestar kýrnar einhverja titla sem gerir þeim auðveldara að koma sér á framfæri - því allar dreymir þær auð- vitað um að verða fyrirsætur.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.